Vikan


Vikan - 05.12.1963, Side 47

Vikan - 05.12.1963, Side 47
sást aðeins stöku már á flugi yfir úfnu grunnsævinu og það var orðið kvöld'egt til loftsins. Tveir farþeganna voru seztir inn til hans og rúðurnar urðu brátt ógagnsæjar vegna móðunnar sem settist á þær þegar hlýnaði í stýrishúsinu. Farþegarnir voru líka að bíða eftir fiski. Klukkan vor orðin fimm, þegar annar farþeginn fór út til að líta á fjörðinn. Hann sagði að bátarnir væru að koma. Þeir urðu allir þrír samferða fram á bryggjuna og norpuðu þar í vindinum meðan bátarnir nálguðust. Þetta voru litlar trill- ur sem héldu hópinn og komu höktandi upp að bryggjunni hver á fætur annarri og innan stundar hafði töluverðu af fiski verið varpað í kasir upp á timb- urgólf bryggjunnar. Hann hafði verið beðinn að kaupa nokkrar kippur og þeir sem seldu honum báru þær að bílnum. Hann fór upp á pallinn og tók á móti kippunum úr vot- um rauðum og bólgnum höndum þeirra og hlóð þeim fyrir aftan brúsana. Stúlkan kom meðan hann var að þessu og hann sá hún horfði á eftir trillukörlun- um, sem enn voru í gulum stökk- um sínum og gengu með þessum einkennilega hliðarslætti sjó- manna niður bryggjuna. Svo leit hún upp á pallinn til hans og sagði: — Er þetta bíllinn. — Nei, ég er maður, sagði hann. — Talaði vertinn ekki við þig. Hann stökk niður af pallinum. Hann bjóst við að hún mundi vera um þrítugt. Hún hafði púðr- að sig töluvert og það var sterk ilmvatnslykt af fötum hennar og þegar hann horfði niður eftir henni sá hann að þetta var ákaf- lega þokkalegur kvenmaður. brúnt hárið kom í stórum lið- um undan spanjólunni. Það var samskonar greiðsla og mátti sjá á auglýsingaspjöldum um hár- freyði. — Alveg rétt, sagði hann. — Þú ert stúlkan. — Hvað hélztu ég væri. — Kannski farartæki. — Mér var sagt að þú værir kurteis og öruggur bílstjóri. — Ég tek ekki ábyrgð á orð- um vertsins. Farþegarnir tveir komu með fisk sinn og hentu kippunum upp á pallinn og snöruðust á eft- ir. Hann rétti þeim tösku stúlk- unnar og hleypti henni síðan inn í stýrishú^ið. Hún settist alveg úti við hurðina og leit eltki á hann meðan hann var að setja í gang og aka út af auða svæðinu. Kannski hafði hún móðgast og hann lét sig það einu gilda. Úrið hans vantaði enn tuttugu mínútur í sex. Hann þurfti því ekki að flýta sér og fór í lágum gír suður götuna. Það var nokkur mannþröng við áfengisverzlunina og það var eins og fólkinu á götunni væri sveiflað að dyrum hennar. Hann átti enn nokurn spöl að húsinu, þegar hann tók eftir þessu. Þetta verkaði á hann eins og skyndi- legt brennivínsæði, nema fólkið fór ekki inn, heldur stóð fyrir utan og teygði úr sér til að sjá. Þegar hann var kominn á móts við húsið, tók hann bílinn úr gír og steig rólega á bremsuna, og þeir sem höfðu verið að teygja úr sér og þrengja sér að dyrunum voru allt í einu orðn- ir undirleitir og hnípnir og virt- ust vera að bíða eftir einhverju. Þá sá hann lækninn koma hlaup- andi frá sjúkrahúsinu. Fólkið við dyrnar rýmdi fyrir honum. — Hefur orðið slys, sagði stúlkan. Tveir strákar voru reknir frá dyrunum. Þeir hrökkluðust út á götuna og stönzuðu hjá bíln- um. Hann losaði ólina af nagi- anum innan á hurðinni og lét rúðuna síga. — Hvað kom fyrir, sagði hann út um opinn gluggann. — Hann er dáinn, sagði ann- ar strákurinn án þess að hafa augun af fólkinu við dyrnar. - Er það slys, sagði stúlkan. Hún hafði ekki heyrt hvað strák- urinn sagði. — Það var gamall maður að deyja, sagði hann. Svo rak hann höfuðið út um opinn gluggann og sagði: — Hvernig dó hann. — Ég veit það ekki, sagði strákurinn. — En ég heyrði mann segja það hefði eflaust verið hjartað. Kannski það hafi sprungið. Fjórir menn komu út með öld- unginn í segldúk og einhver hafði sett hatt á höfuð hans og klætt hann í jakkann. Fólkið vék til hliðar og horfði á þá bera hann suður götuna og lækninn ganga á eftir þeim í sloppnum, sem hann hafði ekki gefið sér tíma til að klæða sig úr áður en hann hljcp út. — Hvað var hann að gera þarna, sagði stúlkan. Hann seldi saltfisk. - - í þessari búð. — Nei, þetta er vínverziun. — Hann hefur bara gengið þarna inn, aumingja maðurinn. — Hann hefur verið þarna ár- um saman. — Drakk hann svona. — Það hefur þá verið púrt- vín. Mennirnir báru líkið eftir miðri götunni og seglið seig í höndum þeirra. Þeir reyndu að láta bað ekki dragast. Hann ók af stað er þeir voru horfnir með segidúkinn inn í sjúkrahúsið. Hann stanzaði syðst í kaup- staðnum og studdi á flautuna. Langdregið gaul hennar dundi á húsunum og hundur fór að gelta einhvers staðar handan húsanna við götuna. Maður kom hlaupandi eftir götunni og fór upp á pallinn og seinna fann hann tvo fara upp á pallinn til viðbótar. Konan var að kveðja Sigvalda bróður sinn upp á stein- tröppunum utan á grámáluðu húsi þeim megin sem hann hafði stanzað. Tvö börn fylgdu henni að bílnum. Hún opnaði hurðina og varð dálítið bylt við, þegar hún sá stúlkuna. — Það verður þröngt, sagði hann. Konan kvaddi börnin og dreif sig upp í sætið. Hún hélt á göml- um hveitipoka með einhverju dóti og kom honum fyrir í kjöltu sinni. Skömmu síðar var barið oní þakið. Hann hleypti rúðunni niður og rak höfuðið út. — Allir komnir var kallað ofan af pallinum. Hann dró rúð- una upp og setti bílinn í drátt- argír. Þau þokuðust af stað og hundurinn byrjaði að gelta þarna einhvers staðar inn á milli hús- anna. Hné stúlkunnar urðu fyrir honum, þegar hann setti í fyrsta gír. En hann lét sér ekki fipast. Hann spennti fætur hennar sundur til að koma stönginni nógu langt aftur og finugrgóm- ar hans strukust óviljandi um hnéð sem var nær honum, þegar hann dró höndina til baka. Hann ætlaði að biðjast afsökunar, en þá fann hann að hnéð fylgdi hönd hans og þá vissi hann þetta mundi ekki verða eins köld og bölvuð nótt og hann hafði haldið. Þegar kominn var góður skrið- ur á bílnin. — Það er nóg um fiskinn. Svo hló hann og leit snöggt og vandræðalega yfir til konunn- ar, sem sat undir hveitipokanum sínum. En það var ekkert nema bílveiki í svip hennar. DAGBÓK AF MARÍU JÚLÍU FRAMHALD AF BLS. 10. þar hafði einn með sér dauðan kálf í þessu augnamiði. —• Já, það kom svipur á þá, þegar kálfsi birtist! sagði I. meistari og hló. VIKAN 49. tbl. —

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.