Vikan


Vikan - 09.04.1964, Blaðsíða 30

Vikan - 09.04.1964, Blaðsíða 30
Það bezta sem íæst Nýir litir i HARRIS-TWEED JAKKAR TERYLENE BUXUR og lurkum lamin. Henni var ekki einu sinni illt í höfðinu. Henni fannst hún vera næstum heil- brigð og hún var undarlega ró- leg, þrátt fyrir allt það óhugnan- lega, sem öðru hverju skaut upp í huga hennar. Hjúkrunarkonan fór og skildi hana eina eftir og hún horfði á dagsbirtuna dvína og rökkrið færast yfir. Hún gat ekki sofnað þó að allt væri kyrrt inni í her- berginu. Eftir nokkurn tíma kom vin- gjarnlega hjúkrunarkonan inn og fór að tala við hana. -— Þessi fallegu blóm, sagði Marian, — hver hefur sent þau? í einum vasanum voru hvitar sýrenur, í öðrum ilmandi rósir og í þeim þriðja grein með indæl- um mímósum. Hún elskaði mí- mósur. Fyrst hlét hún að Jackie hefði sent þær, en svo áttaði hún sig á því, að Jackie gat ekki vitað að hún var hér. En hún átti bara þessa einu vinkonu. Það var ef til vill einhver annar, sem átti blómin, einhver, sem átti fjölskyldu og vini og fékk sent mikið af blómum . . . •— Er það einhver annar, sem á þau? spurði hún. — Nei, nei, þér eigið þau öll . . . Hjúkrunarkonan brosti. Það var herra Chard, sem kom með þau. Alan Chard, sem kom með yður hingað eftir — slysið. Marian leit undrandi á hana og fann að hún roðnaði. — Hef- ur hann verið hér? Til þess að spyrja eftir mér? Einhver eðlisávísun hafði frá upphafi sagt henni, að hann væri vinur hennar, vinur sem hún gat treyst og mundi hjálpa henni. — Já, já. Tvisvar á dag, sagði hjúkrunarkonan. — Hann var farinn að verða óþolinmóður, vegna þess að hann fékk ekki að sjá yður. En það hefur ekki verið hægt hingað til. Þegar yður líður betur, getum við kannski. . . — Get ég fengið að sjá hann núna? spurði Marian áköf. — Er hann hér núna? — Já. Hjúkrunarkonan fór að hlæja. — Þér megið tala við hann, en aðeins í fimm mínútur. Þeg- ar þær eru liðnar, komum við inn og sækjum hann. — Það gerir ekkert til, sagði Marian glaðlega. — Fimm mínút- ur eru nóg — í þetta sinn. Alan hélt á fjóluvendi þegar hann kom inn til hennar. Hann sagði ekkert strax — lagði bara blómin á borðið og horfði á hana. Marian leit á sterka hendi hans og vissi nú að það var hann, sem haldið hafði á byssunni. — Það varst þú, hvíslaði hún. — Jú, það var ég. Hann settist á stólinn hjá rúm- inu og brosti til hennar. Hún endurgalt brosið og velti því fyrir sér, hvernig hún gæti þakk- að honum, en hún fann engin orð. Hún rétti fram höndina og hann tók hana og þrýsti innilega. 2Q — VIKAN 15. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.