Vikan - 04.06.1964, Qupperneq 26
Ljósm: Kristján Magnúss.
-O Frfi Brynhildur í eldhúsinu að renna uppá könnuna. Hún
kvaðst annars aiveg geta séð af eldhúsverkunum. En Albert er
ekki þungur á fóðrunum heima fyrir; hafði vikuna áður en
þessar myndir voru teknar aðeins getað borðað einu sinni há-
degismat heima og einu sinni kvöldmat. „Það venst og verður
hversdagsiegt lika“, sagði Brynhildur.
<> Brynhildur Jóhannsdóttir og Albert Guðmundsson í stofunni heima sjá sér á Hraunteigi
28. Eins og sjá má eru húsgögnin óvenjuicg, að minnsta kosti hér á íslandi, enda dýrgripir,
sem vart verða metnir til fjár. Sófinn og stólarnir eru í Lúðviks XIV. stfl, búnir til í Frakk-
landi einhverntíma um eða eftir 1700. Hvert stykki er handskorið og engin tvö eins. Útskorin
myndskreyting efst á baki hvers stóls á að tákna hinar ýmsu iistir og vísindi. Skápurinn til
hægri er iíka „antik“ og mjög verðmætur. Málverkið er eftir Guðmund heitinn frá Miðdal
og er af Tvídægru.
-lj- r joisayiaan sat ryrir rraman sjönvarpstækið, þegar við komum. Aibert sagði: „Eg vildl ekki missa sjón-
varpið og teldi það afturför, ef það yrði afnumið. Viö viljum ógjarna missa af ýmsum þáttum og ég held, að
það ýti fremur undir enskunámið hjá eldri syninum, scm er I skóla. Og mórallinn er góður í þessum myndíim;
það er alltaf góði maðurinn sem sigrar“. BrynhUdur heldur á kjölturakkanum Deedle, sem hafði meiri áhuga
fyrir ljósmyndaranum en sjónvarpinu. Málverkið af Laufási í Eyjafirði er eftir Gunnlaug heitinn Biöndal og
er með síðustu verkum hans.
2Q — VIKAN 23. tbl.
Albert Guðmundsson hefur ekki setzt
í helgan stein eftir að hann fluttist heim
með konu, börn og bú og lagði atvinnu-
mennsku í knattspyrnu á hilluna. Hann
stofnaði heildsölufyrirtæki, sem hann
stýrir sjálfur. Albert hefur umboð fyrir
víntegundir svo og vélar og verkfæri. Það
er aðeins um tiltölulega fáar sölur að
ræða á ári hverju í þungavinnuvélum og
þess vegna getur Albert annað fyrirtæk-
inu að mestu leyti einn. En það er óhemju
mikil vinna. Hann / verður að fara utan
á þriggja eða fjögurra mánaða fresti að
meðaltali; standa í stöðugu sambandi við j
aðila, sem ráðstafa kaupum á þungavinnu- |
vélum og allt er það gert uppá von og |
óvon. Bregðist viðskipti er langur tími |
og mikil vinna unnin fyrir gíg.
Þau hjónin, Brynhildur og Albert, byrj- |
uðu búskap suður á Miðjarðarhafsströnd i
Frakklands fyrir 16 árum. Elzt þriggja j
barna þeirra er Helena Þóra, sem nú P
er 16 ára og stundar nám við skóla í 1
Englandi. Eldri sonurinn fæddist í Frakk- p
landi. Hann heitir Ingi Björn og er 11 i|
ára. Yngsti sonurinn, Jóhann Halldór, 5 |
ára„ er fæddur hér heima. Þau Bryn- I
hildur og Albert mundu ekki til þess að I
það hefði verið neitt undarlegt við það |
að byrja búskap suður í Frakklandi frem- f
ur en það hefði verið hér heima, en tóku i
fram, að þau hefðu engan samanburð |
þar um. Knattspyrnufélagið útvegaði þeim I
íbúð með öllu tilheyrandi, húsgögnum og |
jafnvel leirtaui.
Framhald á bls. 46. I
1
í
í