Vikan


Vikan - 04.06.1964, Blaðsíða 37

Vikan - 04.06.1964, Blaðsíða 37
ég sat enn á bekknum, glennti upp augun, svo brúnirnar hurfu undir faxið, þandi nasavængina og anzaði: — Hvers vegna ekki ?Það gæti verið gaman að syngja í snjó- húsi fyrir Eskimóa. Svo hló hann með öllu andlit- inu, hneppti að sér jakkanum og fór. Ég hafði lokið við að lesa ann- an kafla sögunnar um stórborg. Hann fjallaði um óþekktan blaða- mann utan af íslandi, sem gekk inn til söðlasmiðs í London og hitti þar óvænt eina þá stjörnu, sem hæst ber í glamurheimin- um. Sagan um kóngsdóttur og karlsson í nútímaformi. Og hverju var ég nær? Hafði ég lesið mér til gagns? Var ég ekki eitthvað öðruvísi nú, eftir að hafa talað við mann, sem í huga venjulegs íslendings er vera án áþreifanleika, annað hvort skræk rödd í glymskratta eða ómennsk filmuvera. Fann ég ekki ein- hverja breytingu á hugarfarinu, eftir að hafa átt samtal við einn þeirra, sem ógna hinni ævafornu menningu íslands? Ég gat ekki fundið það. Það var miklu líkara, að ég hefði átt orðastað við saltgráan fiskiskip- stjóra í þorskagöngu við íslands- strönd. Og kannski er þetta ekkert svo ólíkt. Fiskiskipstjórinn byggir sitt á góðum veiðarfærum og útbúnaði, svo sem fisksjá og fleira, en dægurlagaútgerðar- menn kanna fyrst hvað markað- ur er fyrir og miða svo allt út frá því. Og skipulagningin er góð hjá bítlunum. Svo það getur vel verið, að þeir haldi enn um skeið áfram að vera vinsælir. Og segja mætti mér, að þegar sala í plöt- um þeirra fer að verða tregari, líður yfir færri stúlkur, þegar þeir ganga hjá, og færri reyna að rífa sér lokk úr hári þeirra eða pjötlu úr fötum þeirra, muni þeir og framkvæmdastjóri þeirra finna sér ný veiðarfæri og ný mið. Því allt er þetta vísindalega útreiknað. Og það skiptir Ringó engu máli, að hafa talað við eskimóa eina kvöldstund, meðan æskan, sem á hann trúir, tvistaði og sjeikaði á dansgólfinu í The Saddle Room. ★ TÍMINN SKREPPUR SAMAN Framhald af bls. 19. rúm eru svo óaðskiljanleg, að það er fjarstæða að hugsa sér annað án hins. Hver hlutur, hver maður, hver pláneta, hver sól, heimurinn allur, — gerist í þvi sem visindamenn kalla „sam- hengi rúms og tima“. Sé þetta samhengi staðreynd, en stundin, sem er að líða, ekki nnnað en depill, sem færist til um þessa heild og liggur þá ekki fjarri að álykta, að tíma-rúm liins liðna sé ennþá til með nokkrum hætti, og sama máli gengdi um hið ókomna. Sé þetta staðreynd, ætti ekki að vera fjarstæða að ímynda sér, að sá, sem hefði hin réttu tök, gæti horfið úr stundinni, sem er að líða, yfir á annan stað tímarúms- ins, fyrri eða seinni. Það er nógu auðvelt að fara þessa ferð í huganum, og það er jafnvel unnt að sveifla rafeindum eða mu mesonum upp í afstæðan hraða. En er það ekki óhugsandi, að lifandi manni, sem staddur væri í geimskipi gerðu úr efnum jarð- arinnar, yrði hrundið á svo ofsa- liraða reið um geimdjúpin? Ó- fáir vísindamenn hafa reynt að leysa úr þessu, og þeir hafa lát- ið sér hugkvæmast livert elds- neytið öðru ólíklegra, og hverja aðferðina annarri fjarstæðari til að koma geimskipi á slika braut. Það var árið 1960 að eðlis- fræðingur að nafni R.W. Buss- ard stakk upp á því að nota „þrýstilofts-túrbínu", eða dælu, sem sópaði að sér þvi litla er til félli á ferðinni af „geimryki", og brenndi ])ví á mjög magnað- an hátt og þótti mörgum af sam- verkamönnum Bussards þetta á- gæt hugmynd. Stjörnufræðingur við Harvard- háskóla, Carl Sagan að nafni, hélt þá fyrirlestur á fundi í Eldflaugafélagi Bandaríkjanna, sem hann kallaði „Beint sam- band við viti bornar verur á öðrum hnöttum í Vetrarbraut- inni, með flugferðum förnum með allt að þvi hraða ljóssins,“ og var ekki laust við að sum- um þætti þessi hugmynd nokk- uð nýstárleg. Meðal þess sem hann sagði var þetta: „Ef svo fer, sem líklegt er, að vísindi haldi áfram að þróast næstu ald- irnar, held ég að flug milli hnatta með allt að þvi ljóshraða verði siður en svo óhugsandi fyrir okkur jarðbúa." En svo hafa verið gerðar til- raunir á mönnum til að láta þá ferðast um tímann, ekki með þvi að þeyta þeim á braut út í geim með ofsahraða, heldur með því að láta lífsstörfin hægja á sér, eða stöðvast þvinær, ann- aðhvort með því að djúpfrysta þá eða gefa þeim meðul, sem hefðu svipuð áhrif. Maður sem sætti slíkri meðferð, mundi falla í dá likt og björn í hýði, meðan farkostur hans þeyttist um himingeiminn, og vakna síð- an sem nýr af nálinni, þegar hagkvæmast þætti! Til eru þeir menn, sem halda að þeir hefðu unað lifinu betur á einhverri liðinni öld, en er nokkur ástæða til að halda, að þeim geti orðið að trú sinni? Við lifum með nokkrum hætti í hinu liðna. Til dæmis má nefna það, að í hvert sinn sem við Ullarkápur - terrelinekápur poplinkápur - nylonkápur apaskínnsjakkar - hattar hanskar og töskur. Ennfremur glaesilegt úrval aff allskonar sumardrögtum Póstsendum Sumartízkan 1964 BERNHORD LOXDOL, Kjörgarði Laugavegi 59 - slmi 1 44 22 VIKAN 23. tbl. — 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.