Vikan - 04.06.1964, Side 47
klukkan oft eitt og jafnvel meira
þegar hann loksins kemur heim.
Hún kvaðst vera orðin vön þessu
og hafa ágætan félagsskap þar
sem eru synir þeirra tveir. Þrátt
fyrir þennan óvenju langa vinnu-
dag er Albert ekki þreyttari en
svo, að hann tekur sér gjarna
bók eða blað í hönd, þegar heim
kemur og les frameftir nóttinni,
stundum til klukkan fjögur eða
fimm. „Það kemur fyrir“, segir
hann, „að ég sef aðeins í tvo
tíma“.
Hann er heima við á sunnu-
dögum, eða þá að hann hittir
menn að máli, sem erfitt er að
ná tali af aðra daga. Annars
segist hann kunna fremur illa við
helgidaga; líður tæplega vel, þeg-
ar sprettinum linnir. Honum
finnst það svo undarlegt ástand
að sitja heima í rólegheitum, að
hann á það til að spyrja sjálfan
sig: „Hvað er eiginlega að; er
allt að fara á hausinn eða hvað?“
Þrátt fyrir þetta erilsama líf,
verður ekki séð nein þreyta á
Albert, né 'heldur merki þess að
hann brenni kertinu í báða enda.
Hann hefur þrek, sem aðeins
mjög fáum er gefið.
Gísli.
DR. NO
Framhald af bls. 25.
Bond fann það sem hann leitaði
að. Árvík, þar sem vatnið virtist
vera dýpra. Hann sagði: — Pass-
aðu þig að br|óta ekki greinarnar.
Hann beygði sig og óð inn í víkina.
Hún var um 10 m á lengd. Sand-
urinn undir fótum þeirra varð dýpri
og mýkri. Svo varð trjáveggurinn
fyrir þeim og þau komust ekki
lengra. Brúnt vatnið myndaði þarna
breiðan, þögulan poll. Bond nam
staðar. Stúlkan kom þétt upp að
honum: — Þetta er reglulegur felu-
leikur, sagði hún spennt.
— Já, finnst þér það ekki? Bond
var að hugsa um byssuna sína.
Hann var að velta því fyrir sér,
hvernig hún myndi vinna eftir að
hafa verið böðuð í ánni — og hve
marga menn og hunda hann mundi
geta drepið ef þau fyndust. Hann
fann til nokkurrar óánægju. Það
hafði verið óheppilegt að rekast
á þessa stúlku. Hvort sem menn
vilja eða ekki, verður stúlka alltaf
þungamiðja bardagans, ef hún er
með ( leiknum. Og það sem verra
var, óvinurinn hafði þá tvö skot-
mörk ( staðinn fyrir eitt.
Bond var þyrstur. Hann tók vatn
í lófa sinn. Það var óhreint og
moldarbragð af því. En það var
ekki slæmt. Hann fékk sér meira.
Stúlkan lagði höndina á handlegg
hans og kom í veg fyrir að hann
drykki það. — Drekktu ekki of mik-
ið. Skolaðu munninn og skyrptu
því svo. Þú getur veikzt af þessu
vatni.
Bond leit þögull á hana. Svo
gerði hann eins og hún sagði hon-
um.
Quarrel blístarði einhversstaðar
utar með aðalánni. Bond svaraði
og óð á móti honum. Þeir komu
saman inn í víkina. Quarrel skvetti
á trjástofnana, þar sem hugsanlegt
var, að líkamar þeirra hefðu snert
þá. — Drepur af okkur lyktina,
útskýrði hann stuttaralega. Hann
dró fram bambuspípurnar og tók
að tálga þær til. Bond skoðaði byss-
una sína og varaskotfærin. Þau
stóðu kyrr ( pollinum til þess að
róta ekki upp meiri leðju.
Sólarljósið brauzt í geislum niður
í gegnum þykkt laufþakið. Rækj-
urnar nörtuðu ( fætur þeirra. Spenn-
an óx í heitri þrúgandi þögninni.
Það var næstum léttir að heyra
geltið í hundunum.
10. KAFLI. - DREKAKYN.
Leitarflokkurinn kom hratt niður
ána. Mennirnir voru í sundskýlum
og vöðlum og þurftu að hlaupa
til þess að hafa við hundunum.
Þeir voru stórir Kínnegrar og báru
byssur í axlarhulstrum og ólarnar
lágu yfir nakin svitaglansandi brjóst-
in. Endrum og eins skiptust þeir á
hrópum sem voru einkum bölv og
klámyrði. Á undan þeim var hópur
af stórum Dobermann Pinschers lög-
regluhundum, sem svömluðu og
hentust gegnum vatnið og geltu
ákaflega. Þeir höfðu fundið lykt-
ina og sóttu ákaft fram með sperrt
eyrun.
— Þetta getur svo sem verið
djöfuls bölvaður krókódíll, kallaði
forystumaðurinn. Hánn bar stutt
keyri, sem hann sveiflaði endrum
og eins ( kringum sig.
Hinn maðurinn fór aðeins nær
honum. Svo kallaði hann ákafur:
— Það veit sá sem allt veit, að
hann er var um sig! Ég þori að
veðja að hann liggur einhversstað-
ar í feninu. Passaðu þig að hann
freti ekki á okkur. Forystumaðurinn
tók byssuna úr hulstrinu og hélt
henni í skotstöðu.
Þeir voru á leið frá opna svæð-
inu niður í skógargöngin. Fyrri mað-
urinn var með flautu. Hún stóð út
úr breiðu andliti hans eins og vindil-
stubbur. Við og við blés hann (
flautuna og þegar hundarnir
sveigðu til hliðar, sló hann með
keyrinu fram fyrir þá, til þess að
beina þeim á rétta leið. Með báðar
byssurnar reiddar óðu mennirnir
hægt undan straumnum ( fenjaleðj-
unni.
Leitarstjórinn kom að þrönga op-
inu í skógarvegginn, sem Bond
hafði fundið. Hann greip ( háls-
bandið á hundinum og neyddi hann
inn milli trjánna. Hundurinn urraði
ákafur og öslaði áfram. Maðurinn
renndi augunum á trjástofnana sitt
hvoru megin við mynnið til þess að
sjá hvort þeir hefðu skrapazt.
Maðurinn og hundurinn komu inn
( litla víkina. Maðurinn leit var-
færnislega í kringum sig. Hann tók
aftur í hálsbandið á hundinum og
dró hann til baka. Hundurinn vildi
ekki fara. Maðurinn barði ( vatn-
ið með keyrinu.
Hinn maðurinn hafði beðið við
mynnið. Fyrri maðurinn kom út,
hristi höfuðið, og þeir héldu áfram
niður eftir ánni, og hundarnir,
sem ekki voru lengur eins ákafir,
fóru fyrir þeim.
Smám saman fjarlægðist hund-
gáin og hvarf. Næstu fimm mínút-
urnar hreyfðist ekkert ( tjörninni.
Loks kom mjó bambuspípa upp á
yfirborðið. Svo birtist andlit Bonds.
Hárið lá vott niður á ennið. Þetta
var eins og lík, sem rís úr sæ. 1
hægri hendinni var byssan tilbúin.
Hann hlustaði af athygli. Það var
dauðaþögn. Ekkert heyrðist. Eða
hvað? Var einhver hreyfing úti á
aðalánni? Oð einhver hljóðlega á
eftir leitarflokknum? Bond teygði
út höndina og snerti mjúklega við
líkömunum tveimur, sem lágu á
botni tjarnarinnar við hlið hans.
Um leið og andlitin komu upp á
yfirborðið brá hann fingri á varir.
Það var of seint. Quarrel hóstaði
og spýtti. Bond gretti sig og benti
ákafur út að aðalánni. Þau hlust-
uðu öll. Það var dauðaþögn. Svo
heyrðist lágt svampið aftur. Hver
sem þetta var, var hann að koma
gegnum trjágöngin. Bambussteng-
urnar hurfu aftur upp í munnana
þrjá og höfðuðin sukku hægt aftur.
í kafi í vatninu hvíldi Bond höf-
uðið ( leðjunni, hélt fast um nas-
irnar með vinstri hendinni og herpti
varirnar um bambusstöngina. Hann
vissi, að tjörnin hafði þegar verið
rannsökuð. Hann hafði fundið, þeg-
ar hundurinn kom þangað. í það
skiptið höfðu þau ekki fundizt.
Mundu þau geta leikið sama leik-
inn aftur. Að þessu sinni hafði aur-
leðjan ( vatninu ekki fengið ráð-
rúm til að setjast til. Ef leitarmaður-
inn sæi, hvar vatnið var gruggugt,
mundi hann skjóta í gruggið eða
stinga í það? Hvernig skyldi hann
vera vopnaður? Bond ákvað að
tefla ekki á tvær hættur. Um leið
og hann fyndi einhverja hreyfingu
í vatninu nálægt sér, ætlaði hann
að þjóta á fætur og skjóta og vona
það bezta.
Hann lá grafkyrr og beitt öllum
slnum skilningarvitum Það var
óþægilegt að anda gegnum bamb-
usrörið og rækjurnar, sem nörtuðu
( líkama hans gerðu honum gramt
LOXENE er fegrandi
Hún þekkir leyndarmálið
Hún veit að LOXENE Medicated Shampoo með hinni heilbrigðu
nærandi sópu tryggir henni fagurt, heilbrigt og flösulaust hár.
KAUPIÐ
lears clumlrulY
- leuves luiir
eleancr
■uiul lovelier
LOXENE
STRAX I DAG
Takið eftir nýju
rauðu og grænu
umbúðunum.
LOXENE
Heildsölubirgðir:
KRISTJÁN Ó.
SKAGFJÖRÐ H.F.,
Reykjavík.
VIKAN 23. tbl. — ^rj