Vikan


Vikan - 11.06.1964, Side 8

Vikan - 11.06.1964, Side 8
Yfirstéttarfólk Englands hefur undan- farna mónuði fengið á sig heldur slæmt orð fyrir vafasama lifnaðarhætti. Þetta er að vísu ekkert nýtt fyrirbrigði, né neitt sérstakt fyrir það land, því að alls staðar, þar sem ríkt fólk er sam- ankomið, spinnast um það ýmsar sög- ur, bæði sannar og lognar. Það, sem hefur helzt orðið til þess að vekja athygli almennings á aðlinum í Bret- landi, var Profumo-málið fræga, þegar Christine Keeler varð fræg á einum degi fyrir greiðasemi sína við karl- kynið. í það blönduðust fleiri kunnir aðalsmenn, eins og t.d. Lord Astor, sem átti sundlaugina, þar sem Profumo og Christine hittust fyrst. Þess er líka skammt að minnast, er hertogaynjan af Argyll fékk sig auglýsta í blöðum sem óvenju léttlynda aðalsfrú, þegar hertoginn. komst að því að hún hefði farið í strípaleik með ýmsum heimilis- gestum, og krafðist skilnaðar á þeim forsendum að hún væri ekki nægilega ' trú eiginkona. •J Sennilegt er þó, að aðalsfólk og auðjöfrar hafi engan einkarétt á slík- um leikaraskap, en að það þyki meira til þess koma, þegar upp um það kemst. Sannleikurinn er einfaldlega sá, að margir verða til þess að öfunda ríka fólkið — sem líka þykist stund- um vera betra en annað fólk — og reyna að ná sér niður á því með því að gera mikið úr slíkum sögum, sem varla þætti ómaksins vert hjá „venju- legu fólki". Sá maður, sem einna mest hefur orðið fyrir barðinu á slíkum hugsun- arhætti og sögusögnum, er önnur æðsta persóna brezka heimsveldisins. Philip prins, hertogi af Edinborg, eiginmað- ur Hennar Hátignar, Elizabetar drottn- ingar. Sannleikurinn mun samt vera sá, að fáir aðalsmenn hafa eins góða samvizku í þessum efnum og einmitt hann. Til þess eru þó margar skiljanlegar ástæður, að hann fer ekki varhluta af slúðursögunum. Prins Philip er myndarlegur og karl- mannlegur maður, og eftirlætisgoð milljóna manna um allan heim, sem ekki geta né vilja trúa því, að hann noti sér ekki persónutöfra sína á þann hátt, sem karlmönnum er oftast eig- inlegast. Hann er öfundaður af þess- um eiginleikum sínum og stöðu í þjóð- félaginu. Hann er hataður af mörgum undirmönnum sínum fyrir hörku og óbilgirni í starfi. Ljósmyndarar reyna margir að sýna hann á óheppilegan hátt, því að Philip er illa við blaða- Ijósmyndara, og gerir þeim allt til miska, sem hann getur. Hann sá einu sinni þegar Ijósmyndari datt niður úr háum staur, þar sem hann hafði kom- ið sér fyrir til að ná myndum. Nær- staddir heyrðu hann þá segja stund- arhátt: „Ég vona að helvítið háls- brotni!" Prins Philip er líka dáður og virt- ur af milljónum, sem engu illu vill á hann trúa. Það er þess vegna oft freist- andi fyrir dagblöðin, að birta um hann vafasamar sögur, því þá er salan örugg þann daginn. Það er grátbroslegt að þótt Philip sé einn áhrifamesti maður Bretlands, þá er hann næstum varnarlaus gegn g — VIKAN 34. tw. slíkum sögum. Það er sagt að það sé nokkrum erfið- leikum bundið að dveljast einn eða tvo tíma í nætur- klúbb í London án þess að heyra einhverja sögu um Hans Hátign og einhverja konu — eða konur. Það er t.d. oft sögð sú saga að hann eigi tvö börn með þess- ari eða hinni, — að einhver þekktur maður sjái honum reglulega fyrir leikkvendi, — að frú þetta hafi trúað frú hitt fyrir því, að hún hafi samrekkt honum. Margar konur, sem hafa hitt hann í nokkur skipti í samkvæmum, virðast ekki geta staðizt þá freistingu að trúa sinni beztu vinkonu fyrir því að kunnings- skapurinn hafi orðið annað og meira en það. Og hver sá, sem hefur gengið þarfa sinna á opinberu salerni í Bretlandi, getur séð þar skrifað á vegginn, hvað Philip hafi gert, hvað hann ætti að gera, eða hver áhugaefni séu honum hugfólgnust. Við þessu getur hann hreint ekkert gert. Meiðyrðalöggjöfin í Bretlandi er mjög stíf — kannske enn stífari en sú íslenzka — og það hefur oft orðið til þess, að blöðin hafa ekki þorað að birta ýmsar sögur, sem þó er vitað að eru sannar. Þess vegna er það að slíkar sögur ganga manna á milli án þess að nokkuð sé við því að gera, og fólk hefur oft kom- izt að raun um að þær eru sannar, þegar öll kurl koma loks til grafar. Sagan um Profumo og Christine Keeler var t.d. á flestra vitorði í London löngu áður en hún komst í blöðin. Þetta leiðir af sér að slúðursögum er trúað ef heimild- ir eru líklegar, sérstaklega ef um frægt fólk er að ræða. Það kemur ósjaldan fyrir, að sagðar eru sögur, eða birtar á prenti urh drykkjuhreysti Philips. Þó er það svo, að hann hefur á undanförnum 19 árum verið í hundruðum samkvæma, afmælisveizlum, giftingar- veizlum, skipsskírnum, opnunum ýmissa stofnana, sem allt eru viðurkennd tækifæri til drykkju fyrir þá, sem þess óska. Þau tækifæri munu teljandi, þar sem sézt hefur að hann hafi drukkið meira en tvo drykki. Ef hann er einn og óafskiptur, velur hann sér oftast bjór með mat eða glas af rínarvíni. í síðdegisveizlum kýs hann helzt að drekka einhverja ginblöndu. Þegar þau hjónin matast saman, eru oftast engir slíkir drykkir á borðum, annars velur hún sér sherryglas en hann ginblöndu. Philpi er fæddur á grísku eynni Korfú. Hann hét Philip af Schleswig-Holstein — Sonderburg — Glúcks- burg. Hann og Elizabet drottning eru frændsystkin í þriðja og fjórða lið. Langafi hans var Kristján IX, Danakonungur, en langa-langamma Victoria Breta- drottning. Victoria er líka langa-langamma Elizabetar og Kristján IX langa-langafi. Til gamans og fróðleiks birtum við sameiginlegan uppruna þeirra frá Victoríu og Kristjáni í töfluformi. Það var taminn api, sem varð til þess að faðir Philips kom fram á sjónarsviðið. Þessi api var uppá- hald Alexanders Grikkjakonungs, og einu sinni beit apinn í kónginn með þeim afeliðingum að hann fékk blóðeitrun og dó eftir þrjár vikur. Föðurbróðir Philips, Konstantín, sem áður hafði verið konungur í Grikklandi, tók aftur við krúnunni í desember 1920. Nokkrum mánuðum síðar var farið í stríð við Tyrki, sem lauk með því að Tyrkir unnu Smyrna, stjórnin sagði af sér og Konstantín flúði land. Faðir Philips, prins Andréw, hafði verið einn æðstu hershöfðingja Grikkja. Hann var tekinn höndum og álitinn í lífshættu. Bretar sendu þá herskip til Grikklands með þau skilaboð, að ef það kæmi ekki til baka með Andrew og fjölskyldu hans, þá yrðu afleið- ingarnar ófyrirsjáanlegar. Þetta náði fram að ganga, og fjölskyldan fór til Bretlands, ásamt Philip prins, sem þá var eins árs gamall. Það er sagt að fjölskylda Philips hafi ver- ið mjög fátæk, en það er e.t.v. nokkuð orð- um aukið. Þau settust að í París, og móð- ir Philips opnaði þar verzlun með listmuni. Það var þó ekki eingöngu í því augnamiði að hafa ofan af fyrir fjölskyldunni, heldur einkum til að aðstoða gríska flóttamenn til að koma listvefnaði sínum og öðrum lista- verkum á markað. Móðir Philips er enn á lífi í Aþenu og er þar í nunnukiaustri. Faðir hans lézt í Monte Carlo 1944. Philip fór í skóla í París, síðan í Bretlandi og Þýzkalandi, og var þar þegar nazistarn- ir voru að komast til valda. Hann fylgdist lítið með stjórnmálastefnu þeirra, en mis- líkaði hetjudýrkunin og Hitlerskveðjan, fannst það kjánalegt og hló að þessum látum, hve- nær sem hann sá þau. Það var reynt að útskýra þetta fyrir honum, en það virtist engin áhrif hafa, svo að systur hans fjórar, sem allar eru giftar þýzkum prinsum, álitu það heillavænlegra fyrir hann að fara úr landi, og sendu hann á skóla í Bretlandi. Ef Philip hefði ekki haft þessa sérstöku kímni- gáfu, hefði sennilega farið svo að hann hefði barizt í stríðinu með Þjóðverjum, hvort sem honum hefði fundizt það Ijúft eða leitt. Eftir skólavist í Gordonstoun, fór hann á sjóliðsforingjaskóla i Dartmouth, og þar er álitið að Elizabet hafi fyrst séð hann. Hann var þá 18 ára gamall og tók þátt í íþróttakeppni, en Elizabeth var áhorfandi ásamt fylgdarfólki. Þegar hún sá hann stökkva léttilega yfir tennisnetið, hrópaði

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.