Vikan - 11.06.1964, Side 11
O „The Road Stars“ eru gamalkunnir í London. Þeir birtast íyrirvaralaust á götunni
og taka að skemmta vegfarendum. En þetta er bannað, og þess vegna hafa götustjörnurnar
menn á verði á vissum götuhornum, og ef sézt til lögreglunnar, gellur við skerandi blíst-
ur. Og „The Road Stars“ eru horfnir í sömu andrá, cins og gatan hafi gleypt þá.
Li6smyndip
Qíslí Gestsson
Þa3 vekur gjarnan athygli íslendings, að sjá Breta veita ástar-
þörf sinni útrás í skemmtigörðum landsins. í Hyde Park er það
daglegur viðburður að sjá pörin í heitum atlotum, og þykir
engum mikið. O
Hann er orðinn roskinn og
lítilþægur, enda aflar hann
sér matar á þann hátt að
hirða úr ruslatunnunum í
Soho. En hann er þrifinn,
og þess vegna tekur hann
dúkinn sinn með sér og
breiðir liann yfir hnjákoll-
ana áður en hann sezt að
snæðingi.
íslendingum þykir bágt að
fá ekki glasið sitt á mið-
vikudögum, en Bretar mega
ekki fá sér sopa nema á
vissum tímum sólarhrings.
En þá eru menn gjarnan
þaulsætnir yfir bjórnum
sínum og ræða landsins
gagn og nauðsynjar af
VIKAN 24. tbl. —
•O Þessar myndir eru teknar skammt frá „bum“hverfinu. Á myndinni til vinstri híma
menn og bíða eftir því að Hjálpræðisherinn opni. Á hinni myndinni, sem tekin er handan
götunnar, hefur einn gefizt upp á að vaka eftir því.
Q Bretar eru einhverjir þolinmóðustu menn, sem til eru. Þessi mynd er frá járnbrautar-
stöð og geislar af langlundargerði.