Vikan


Vikan - 11.06.1964, Page 17

Vikan - 11.06.1964, Page 17
Fanelli hafði komið því þannig fyrir með vilja. Þriðji farþeginn var Barry Smith, sem strax lagð- ist aftur á bak í sætið og sofn- aði. „Ég þarf varla að segja yður, faðir, hve þakklátir við erum yður fyrir að koma með okkur. Ég vona bara að yður leiðist ekki“. „Þvert á móti“. Faðir Monahan kveikti í pípu og dró nú að sér reykinn, eins og hann væri að losa sig við óviðeigandi hugsanir. „Ég hlakka til að fara þetta“. „Við höfum farið fljúgandi þarna til Cape Florence núna í sex ár — sami hópurinn", hélt Fanelli áfram. „Við höfum kofa þar á sandhæðunum og hugsum um okkur sjálfir. Það er ein- kennilegt — eða yður gæti fund- izt það skrýtið —- en ég er eini maðurinn, sem ekki er íri í hópn- um. Hins vegar get ég eldað. Ég vona áð yður falli ekki ítölsk fæða illa, faðir?“ Presturinn hló, kannski einum of hjartanlega, hugsaði Fanelli. „Ég er mikið fyrir ekta ítalskan mat og lítið fyrir óekta íra — ef svo mætti taka til orða“. Lou Fanelli stundi með sjálfum sér. Hann vildi ekki vera ósann- gjarn í dómum um kunningja sína. Þeir hefðu alls ekki þurft að bjóða honum með, en það var ekki hægt að loka augunum fyrir því, að hann var hafður með af því að hann var ávallt tilbúinn til að taka að sér meira en hon- um bar af óþægilegustu verkun- um. Hann sagði: „Þeir eru ágætis náungar, faðir“. Faðir Monahan varð undrandi á svipinn. „Ég hef aldrei efazt um það“. „Hafið þér stundað veiðar áður, faðir?“ „Ég var í skotklúbb í háskól- anum. Við skutum leirdúfur. Það er varla hægt að kalla það veiði- skap“. Hann horfði upp í gegn- um gluggann á þaki bílsins, upp í himin fullan af háværum flug- vélum. „Það er orðið æðilangt síðan, Mr. Fanelli". Þeir leigðu tvo bíla til þess að flytja sig frá Fayetteville út á Cape Florence, og eftir nokkra viðdvöl hjá matvörukaupmannin- um og töf við að leigja tvo veiði- hunda, voru þeir komni’ veiði- kofann. Hann var inni í strjál- um furulundi með útsýni yfir hæðirnar. Bak við hann var hrjóstrug sjávarströnd þakin þangfléttum. Á báðar hliðar voru fen og votlendi með hávöxnum marhálmi og dalurinn endaði með lágri brekku í suðri. Faðir Monahan heyrði öldurnar skella á klettunum, og fyrsta skipi í mörg ár fann hann til djúprar gleði. Meðan hinir losuðu bíl- ana, gekk hann niður að strönd- inni. Stormurinn fyllti lungu hans og sjúvarúðinn lék um hann og hann fann biturt saltið í nasa- holunum. Engir mannabústaðir voru innan sjóndeildarhringsins, og kyrrðin og einveran hafði djúp áhrif á hann. Hann kveikti í pípunni sinni og sat í hálftíma og horfði út á sjóinn. Þegar faðir Monahan kom aft- ur inn í kofann, höfðu allir geng- ið frá dótinu sínu. Frank Rear- don sagði: „Jæja, faðir, má ég bjóða yður eitthvað til að bæta meltinguna?“ Mennirnir hiðu spenntir eftir svarinu. Þeir höfuð alltaf gengið út frá því, að hann byggist við að þcþ- smökkuðu áfengi. En drakk hann sjálfur? En faðir Monahan virtist taka þessu með ró. „Það megið þér“, sagði hann vingjarnlega. „Bourbon eða Skota, faðir?“ spurði Reardon. „Bourbon er ágætt. Aðeins vatn í“. Meðan Reardon var að hella í glösin, kveikti Luo Fanelli upp í eldstónni. Það var ekki auð- velt og hann varð að hafa mikið fyrir því. Allt var orðið heimils- legra, en mennirnir höfðu farið í peysur til að mæta kvöldkuld- anum, Faðir Monahan var að- eins á skyrtunni. Davitt horfði rannsakandi á hann og velti því fyrir sér, hvort hann væri kannski drykkfelldur. Hann reyndi að sjá einhver merki þess, en eftir tvö glös neitaði prestur- inn því þriðja og kveikti í píp- unni sinni. Hann virtist ánægð- ur með að hlusta á þá rifja upp minningar frá síðustu veiðiferð og að horfa á Lou Fanelli búa til spaghettisósu. Eftir kvöldverðinn stakk Lou Fanelli upp á því, að þeir spil- uðu bridge. „Þér spilið, er það ekki faðir?“ „Það geri ég“, svaraði faðir Monahan. Reardon kvartaði um þreytu og fór að hátta, en Smith og Fallon báðust undan. Jack Davitt var ekki sú manngerð sem sá sig Framhald á bls. 29. . - ■««« . ■

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.