Vikan - 11.06.1964, Blaðsíða 28
Kraftar og kvenhylli
Það er nú komið svo, að varla er hægt að opna nokkurt
blað nokkurs staðar í heiminum, að maður reki ekki augun
í mynd af einhverri fallegri stúlku. Ilún þarf ekki endilega
að vera „Miss World“ eða eitthvað svoleiðis, bara að hún sé
fallega vaxin og hafi eitthvað til að bera, eins og t.d. fallega
fætur, falleg brjóst, fallegt hár, falleg augu, fallegan munn,
að hún sé fallega klædd, lítið klædd — eða ekkert klædd.
Aðalatriðið virðist vera það, að viðkomandi persóna sé kven-
maður og hafi enga áberandi persóunlega galla, eins og t.d. að
vera hjólbeinótt, rangeygð, sköllótt, tannlaus eða að tærnar
snúi aftur. Þannig er næsíum hvaða kvenmaður sem er, tal-
in góð og gild vara í kyntöframyndir heimsblaðanna, og þær
keppast um að gefa upp á sér málið yfir mjaðmir, mitti og
brjóst — eins og það hafi eitthvað að segja þegar öllu er á
botninn hvolft!
Það vita allir, að það gildir raunar einu hvort karlmaður-
inn nær utan um mitti stúlkunnar, aðeins ef hann fær að
reyna.
Á þessu má sjá hversu kvenkynið er eftirsótt, og hvað þær
eiga gott, blessanirnar, og þurfa eiginlega ekkert að gera nema
sýna sig, stæra sig af sinum vexti eða ákveðnum líkamshlut-
um, Það er allt og sumt.
Ekki er þessu þannig farið með karlmennina, greyin. Að
vísu er stundum sagt um einstaka kvikmyndahetju: „Guð,
hvað hann er myndarlegur!" En hafið þið nokkurntíma heyrt
minnzt á málin yfir mjaðmir, mitti og brjóst hjá karlmanni?
Nei, mér datt það í hug. Hann gæti verið með rauðbirkið
kartöflunef, grátið í kross á bakinu og haft heilt olíufat
milli fótanna. Hann gæti verið sköllóttur, tannlaus, eineygður
ístrubelgur og samt verið „anzi myndarlegur“.
Kannske er þetta gott. Sennilega alveg prýðilegt fyrir karl-
menn. Það sýnir að hinir karlmannlegu eiginleikar fara ekki
eftir útlitinu einu saman, — eða þá kannske að það sýni
hve skynsamara kvenfólkið er en karlmennirnir, að dæma
manninn ekki eftir roðinu. En mig grunar óljóst að þarna sé
ekki allt með felldu. Mér finnst ekki allt vera kæfa, ef það
bara heitir kæfa, lítur út eins og ópússaður múrveggur og
kostar kr. 18,75 pr. stk. Mig grunar að fleiri hafi sömu sögu
að segja.
Það er vitað mál, að álit kaupenda fer mikið eftir útlit-
inu, hver svo sem varan kann að vera, kadillakk, kvenmaður
eða kúlutyggjó, og þannig á það að vera. Ef kvenfólk kann
ekki að velja vöru — eða karlmenn — eftir útliti, þá þarf
að kenna því það. Það þarf að láta það vita hvaða eigin-
leikar ættu að vera eftirsóttastir í fari þess karlmanns, sem
það kýs sér, hvort sem þeir eru „hið innra“ eða brilliantín,
bjórvömb og bognir fætur. Það er nauðsynlegt að karlmenn
rækti með sér ýmsa eiginleika, sem líklegir eru til að draga
til sín athygli kvenna í fljótu bragði.
Framhald á bls. 37.
Undir ffjögur
— VIKAN 24. tbl.