Vikan - 30.04.1964, Qupperneq 3
Útgefandi Hilmir h.f.
Kitstjóri:
Gisli SÍRiiríVsson (ábm.).
Augl ýsingastjóri:
Gunnar Steindórsson.
Blaffamenn:
Guffmundur Karlsson og
Si'íuröur Hreiffar.
Útlitsteikning:
Snorri Friffriksson.
Ritstjórn og auglýsingar:, Skiphol! 33.
'Símar: 35320, 35321, 35322, 35323.
Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími
36720. Dreifingarstjóri Óskar Karlsson.
■Verð í lausasölu kr. 25. Áskriftarverð
er 300 kr. ársþriðjungslega, greiðist
fyrirfram. Prentun Hilmir h.f. Mynda-
mót: Rafgraf h.f.
VIK41Í
I NÆSTA BLAÐI
FLJÓTANDI HÓTEL Á HLÍÐARVATNI. Við
segjum frá djörfu og nýstárlegu hóteli; vík-
ingaskipi, sem verður vestur á Hlíðarvatni.
OG ENN MEIRI NÝJUNGAR í BYGGING-
ARMÁLUM: Nýtt hverfi við Lágafell í Mos-
fellssveit. Nú þykir ekkert langt þangað, sem
áður var kallað Iangt uppl í sveit.
VIKAN IIEIMSÆKIR SR. ÁRELÍUS NÍELS-
SON. Myndafrásögn.
SÆMILEGT DAGSVERK. Síðari hiuti sögu
eftir Monsarrat.
ÉG FÉLL FYRIR BORÐ í MIÐJU ATLANTS-
HAFI. Ótrúleg frásögn um mann, sem féll
um nótt af skipi og hvcrnig hann barðist við
að halda sér lifandi unz hjálpin barzt.
I ÞESSARI VIII:
Kaunin á andliti borgarinnar
Kannski er velmegun í Reykjavík meiri en víðast gerist
í borgum, en við eigum líka ömurleg fátækra-
hverfi, sem eru smánarblettir á borginni. Við höf-
um tekið myndir af nokkrum hlutum borgarinnar,
þar sem vesöldin er verst og birtum þær ásamt
grein um málið, ef vera mætti að það yrði
til þess að þessi hreysi yrðu afmáð.
Dúett eftir SH og GK
Við íslendingar eru vaxandi kvikmyndaþjóð, en
það stendur okkur fyrir þrifum, að snautt er um
heppileg kvikmyndahandrit. Blaðamenn VIKUNNAR
leggja nú sitt að mörkum: beir hafa samið drög
að kvikmyndahandriti og skiptu mjög nákvæm-
lega með sér verkum.
Sæmilegt dagsverk
Hann var að leggja af stað í sína fyrstu ferð
sem skipstjóri á stóru farþegaskipi, og einn æðsti
maður skipafélagsins var með í förinni. En sumir eru
uppreisnargjarnir, og ekki hætir úr skák, þegar
næstu undirmönnum skipstjórans finnst, að geng-
ið hafi verið framhjá þeim. — Fyrri hluti góðr-
ar sögu eftir Monsarrat.
Plató og kenningar hans
Gunnar Dal er löngu þekktur fyrir heimspeki-
rannsóknir sínar og rit um þau efni. Nú hefur hann
skrifað fyrir VIKUNA grein um ævi Platós og
kenningar hans.
FEGURÐARSAMKEPPNIN; Sjötta stúlkan í
úrslitum, Elízabet Sigríður Ottósdóttir úr
Reykjavík.
BÍLAPRÓFUN VIKUNNAR; TRABANT.
Þar að auik smásögur, Undir fjögur augu,
Síðan síðast, framhaldssögurnar Dr. No og
Erkihertoginn og hr. Pimm, póstur o.fl.
Cfl DQ IXI H fitfi LenSi hafa menn verið göldróttir á Hornströndum
rUltdlllMll og veitti ekki af í erfiðri lífsbaráttu. Ekki er þó
þar meff sagt, að Pálína Jónmundsdóttir sé fjöl-
kunnug þótt hún sé ættuff af Ströndum. Hins vegar er hún fimmta stúlkan í
röffinni í yfirstandandi fegurðarsamkeppni.
VIKAN 18. tbl.
3