Vikan


Vikan - 30.04.1964, Blaðsíða 45

Vikan - 30.04.1964, Blaðsíða 45
ins og allt fyrirkomulag þjóð- félagsins á að miðast við þarfir einstaklingsins. Hið fullkomnasta ríki er það sem fóstrar flesta fullkomna einstaklinga. Engin lög og ekkert stjórnskipulag þarf fyrir fullþroska menn. En þar sem fáir eru fullkomnir verður að setja mönnum lög til að tryggja þeirra eigin velferð. Rík- ið verður þannig til vegna þess, að maðurinn er ekki sjálfum sér nægur, vegna þess að mannleg náttúra er ófullkomin. Það bygg- ist á samhjálp og samvinnu ein- staklinga. Hver maður verður að leggja fram sinn skerf til ríkisins með því að vinna þau störf sem hann er hæfastur til. Eins og fyrr segir er mann- félag Platós hliðstætt mannssál- inni.. í ríkinu er mönnum skipt í þrjár stéttir. Fer sú skipting eftir því hver hluti hinnar þrí- skiptu sálar stjórnar þeim. Þeir sem stjórnast af andlegu innsæi eiga að mynda yfirstéttina. Þá nefnir Plató heimspekinga eða heimspekikonunga. Þeir eiga að vera hin sjáandi forsjón og hin raunverulega sál ríkisins. Þeir sem stjórnast af skaps- munum eiga að vera stríðsmenn þjóðfélagsins, hið hugdjarfa og stolta hjarta landsins. Þetta er önnur stétt ríkisins og hún á að vera sverð þess og skjöldur. í þriðju stétt eru þeir sem stjórn- ast af hinum lægri hvötum eða lægsta hluta sálarinnar. Þeirra hlutverk á að vera veraldleg þjónusta og framleiðsla hins dag- lega brauðs. í þessum hópi telur Plató iðnaðarmenn, bændur, kaupmenn og þræla. — Því ríki er vel stjórnað, þegar lágum hvöt- um fjöldans er haldið í skefjum með vísdómi hinna fáu vitru, þar sem hver maður fæst við það eitt, sem hann er hæfur til að leysa af hendi. Plató leggur þennan mæli- kvarða ekki aðeins á einstaklinga heldur einnig á þjóðir. — Sem dæmi um fyrsta flokks þjóð, sem einkennist af menningu og stjórn hinna vitrustu nefnir Plató Grikki. Sem dæmi um annars flokks þjóð, sem einkennist af hugrekki. skapsmunum og bar- áttu nefnir Plató barbara norð- ursins. Sem dæmi um þriðja flokks þjóð, sem einkennist af kaupmennsku og auðhyggju nefn- ir hann Fönika. í draumsýn sinni um hið rétt- láta þjóðfélag sér Plató ríkið sem eina samræmda heild, þar sem engir árekstrar eru milli manns og manna. Ríkið er stór fjölskylda. Þar má enginn einstakur eignast mik- inn auð því að auðurinn er vald og auðurinn getur orðið verstur og lægstur allra harðstjóra. All- ar eigur eiga því að vera sam- eign þegnanna. Og Plató gengur lengra. í þessari stóru fjölskyldu, segir Plató, í „Ríkinu“ eiga kon- ur og börn einnig að vera sam- eign meðal hærri stéttanna. Börn- in eru alin upp af ríkinu, sem sér um menntun þeirra frá fyrstu tíð. Hjónabönd eru að vísu við- urkennd en þau eiga að standa stutt, og mega ekki verða varan- legur „hyrningarsteinn þjóð- félagsins“. Þjóðfélag Platós er fyrst og fremst skóli. Þar á að móta barn- ið alveg frá fyrstu tíð og inn- ræta því hugsjónir hins fagra, góða og sanna. Þetta gildir jafnt um bæði kynin. Fyrstu þrjú ár- in er uppeldið eingöngu fólgið í því að efla heilbrigði og hreysti barnsins. Á aldrinum 3—6 ára hefst strax hið siðferðilega upp- eldi. Fyrsta sporið er að breyta þeim helgisögnum hetjusögum og ævintýrum sem börnum eru sögð á þessum aldri: í stað hinna gömlu heimskulegu goðsagna sem fullar eru af ósannindum, ranglæti og illum hvötum manna, á að kenna börnum sögur og Ijóð, sem fela í einfaldleik sínum djúp og fögur sannindi, það á að segja þeim ævintýri sem vekur blund- andi öfl og mynd hins góða og sanna í barnssálinni. Þannig er strax í bernsku lagður sá grunnur, sem siðferði, heimspeki og öll sönn menntun byggist á. Á aldrinum 7—10 ára leggur Plató megináherzlu á íþróttir og eflingu líkamlegrar hreysti. Á aldrinum 11—13 ára er barn- inu ætlað að læra lestur og skrift. Frá 14—16 ára aldurs á ungviðið að stunda músík, það er að segja það á- að læra skáldskap nema tónmennt og kynnast myndlist. — Ekki svo að skilja að Plató geri sér háar hugmyndir um skáldskap og listir, nema þá helzt góða tónlist: — „Veruleikinn“ er, eins og fyrr segir aðeins skuggi frummyndanna og listin skuggi veruleikans. Þannig verð- ur myndlist okkar aðeins skuggi af skugga, leikritið eftirherma á eftirhermu og ljóðið bergmál af bergmáli. Listin getur bæði þjón- að hinu illa og hinu góða. Hún getur aukið á ljótleikann, ósam- ræmið og vanskapnaðinn og hún getur líka þroskað fegurð og göfgi sálarinnar. Listir geta því falleg síslétt gluggatjöld Litekta og hlaupa ekki. Aðeins ekta Gardisette veita þessa einstæðu ábyrgð: Fullar bætur ef nokkur metri hleypur eða reynist ekki sísléttur. Sjáið fallega liti og gerðir hjá okkur: gegnt siðrænu uppeldishlutverki, og það á að vera hlutverk henn- ar í mótun mannsins á þessu ald- ursskeiði. En aðeins góð list, sem byggist á fegurð, góðleika og hinu sanna getur gegnt þessu hlutverki. Á aldrinum 16—18 ára á unglingurinn að nema stærð- fræðivísindi og frá 18—20 ára aldurs er honum ætlað að þjálfa sig í hermannlegum íþróttum. Þetta er hin almenna menntun sem ætluð er bæði körlum og konum. Að loknu þessu námi skyldi unglingunum skipt í hópa eftir því hvern árangur uppeldið hef- ur borið. Úrvalið á enn langt nám fyrir höndum, því að úr þessum hópi verða síðan allir Plcat plcaie me — I wanl te held you hand — Twut and thout — lovo mc do — The hippy hippy thake — og allir 14 textarnir of plötunnl „with tho Beollct" útamt fjöldo myndo of BEAHES TVÖ N Ý HEFTI Þriðja heftið af Nýjum danslagatextum var að koma út. í heftinu eru aðeins íslenzkir textar við öll nýjustu lögin. Beatles — mynda- og danslagatexta- heftið er fyrir nokkru komið út í því eru 23 textar við Beatleslög og 23 myndir af þessari heimsfrægu hljóm- sveit. Sendið kr. 25,00 fyrir hvoru hefti og þið fáið það sent um hæl burðargjalds- frítt. NÝIR DANSIAGATEXTAR PÓSTHÓLF 1208 — RVÍK. J VIKAN 18. tbl. —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.