Vikan


Vikan - 30.04.1964, Blaðsíða 17

Vikan - 30.04.1964, Blaðsíða 17
Verkfall var yfirvofandi, en skipið varS að láta úr höfn - hvað sem það kostaði. hann hafði mestar áhyggjur af. Hann hafði fylgzt með því hvernig aðrir skipstjórar tóku á hlutum eins og brottfararseinkun, verkföllum, andbyr og óheppni og numið af því. En það voru aðrir hlutir, sem hann kunni ekki eins að taka. Það var að vísu ekki svo fjarri legt vandamál og einkavandamál, og það mátti finna því einn samnefn- ara, „Calderstone lávarð“ — forseta skipafélagsins og þann mann, sem skipstjórar þess skelfdust mest sem farþega. Næstum átta sólarhringa mundi Calderstone lávarður verða sú staðreynd, sem hann kæm- ist ekki hjá að reikna með. Calderstone lávarður mundi sitja við borð hans. Honum yrði heimilt að ganga í stjórn- klefa hverju sem viðraði, og einkaíbúð skipstjóra hvenær sólarhringsins sem var. Hann yrði alltaf og alls staðar ná- lægur dómari, varðandi hæini og hæfileika Blacklocks sem skipstjóra. Blacklock yppti öxlum, en það gerði hann ekki oft. Kannski yrði þetta dagur til að yppta öxlum, einn af þess- um dögum, þegar taka verður hverju því, sem að höndum ber. Það varð að snúast gegn vandamálunum, stórum sem smáum, jafnóðum, hugsaði hann, og í sömu svifum kom Martin áhafnarstjóri inn í klefann, sem það vandamálið holdi klætt, er sízt þoldi bið. Þau tuttugu ár, sem þeir Martin höfðu klifið forfröm- unarstigann hlið við hlið, hafði hvorugum fallið hinn. Kannski var það óhjákvæmilegt; þeir voru nánir keppinautar í heimi miskunnarlausrar sam- keppni, og þeir höfðu lengi alið á tortryggni hvor gegn öðrum. Og þá fjóra daga, sem Blacklock hafði verið skip- stjóri á ,,Góðvon“, þóttist hann verða var vissrar af- stöðu í fari Martins; ekki beinlínis ósvífni heldur einskon- ar yfirlætis, rétt eins og hann áliti það eingöngu fyrir duttiunga heppninnar, að Blacklock skyldi vera orðinn skipstjóri, en Martin enn áhafnarstjóri. Það var eins og Martin vefðist hálft í hvoru tunga um tönn, þegar hann ávarp- aði skipstjórann, eins og hann vildi með því gefa í skyn, að það væri einungis nokkra máhaða munur á starfsaldri, sem réði því, að það var ekki Blaclock, sem ávarapði hann sem skipstjóra. Það var að vísu ekki svo fjarri sanni, hugsaði Blackloek, þegar hann leit upp og kinkaði kolli til Martins. En staðreynd var staðreynd — hann var skipstjóri og Martin áhafnarstjóri. Martin gekk inn, hægt og ró- lega, og lagði skjöl nokkur á skrifborð skipstjórans. Sagði því- næst: „Vaktskráin", rétt eins og hann væri í vafa um, að Black- lock skipstjóri kannaðist við þau plögg, og nú fannst Blacklock skipstjóra tími til kominn að fá þetta útkljáð. Væri þetta dagur til að fást við vandamálin, eitt og eitt í einu, þá var það sann- arlega góð byrjun að takast á við þetta. Hann kinkaði enn kolli, sagði „þökk fyrir" eins stuttur í spuna og honum var unnt. Og þegar Martin dokaði við, eins og hann ætti einhverju ólokið, bætti Blacklock við: „Nokkuð annað?“ „Nei“, svaraði Martin kæru- leysislega. „Mér datt bara í hug, að ef til vill gæti ég orðið að einhverju liði“. Blacklock skipstjóra féll ekki ágengnin í framkomu hans og ákvað að gera honum það skilj- anlegt. „Þér hafði yðar störfum að gegna, er ekki svo?“ „Já, vitanlega", svaraði Martin, rétt eins og störf hans væru ekki meiri en það, að hver fær og dug- andi maður gæti sinnt þeim í hjáverkum. „Ég átti einungis við . . . þér skiljið . . . það er alltaf eitthvað, sem kemur upp á og ekki þolir neina bið. Ef það væri eitthvað þessháttar . . .“ „Sinnið þér yðar störfum“, sagði Blacklock. „Ég mun annast mín. Við skulum hafa það þannig“. „Já, herra“, sagði Martin. „Hefur nokkuð nýtt gerzt í máli brytanna?" „Nei, herra“, og nú brá fyrir geðvonzku í rómnum. „ Nei, af þeim er ekkert nýtt að frétta“. „Hvernig stendur málið? Haf- ið þér rætt við Bryce yfirbryta?" „Bryce segir að þeir séu enn að ræða það, og annað verði eig- inlega ekki um það sagt .Einn af þeim er í landi; þeir segja að hann hafi farið á fund McTeague, en ekki veit ég hvað af því kann að leiða. Það er svo að sjá sem þeir hinir bíði átekta“. „Hver er í landi?“ „Swann bryti á ferðamanna- rými“. „Setjið honum viðvörun, þeg- ar hann kemur aftur um borð. Hann hefur ekki leyfi til að fara í land þegar komið er að brott- farartíma“. „Já, herra . . .“ Martin gerð- ist kumpánlegur aftur; vildi gefa honum góð ráð sem gamall kunn- ingi. „Ég hafði eiginlega hugsað mér að sjá í gegnum fingur við hann í þetta skiptið. Ég vil ekki verða til að koma neinu af stað á þessu stigi málsins“. „Setjið honum viðvörun“, end- urtók skipstjórinn. „Ég tek það á mig“. „Já, herra", svaraði Martin, grunsamlega samþykkur. Skipstjórinn lét það lönd og leið í bili. „Hafi þessi Swan far- ið til fundar við McTeague, er bezt að vera við öllu búinn. Það er náunginn, sem stendur á bak við þetta. Hann bíður einungis Framhald á næstu síðu. VIKAN 18. tbl, 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.