Vikan - 30.04.1964, Blaðsíða 4
Tízkusundbolir 1964, frá KANTERS. Fjöl-
breytt úrval lita og sniða. Allar stærðir.
KANTERS bolirnireru saumaðir úrgúmmí-
þráðlausum teygjuefnum: Helanca og
Spandex. Falla þægilega að líkamanum,
en hindra ekki frjálsar hreyfingar.
Veljið það bezta - biðjið um
Lausnir á lausum
blöSum ...
Kæri Póstur!
Hvernig er það með ykkur,
getið þið ekki haft myndasögu
bak við krossgátuna, svo að við
þurfum ekki að eyðileggja VIK-
UNA.
Virðingarfyllst -- H. B.
sem hægt er að koma fyrir á ólík-
legustu stöðum (til dæmis í
hjónarúminu) og einnig mun
hægt að fá örsmáar kvikmynda-
tökuvélar, sem gæut orðið þér
hjáliplegar. Þessi tæki eru nú orð-
in mjög þýðingarmikil fyrir alls-
konar njósnir og gæti verið að
VIKAN birti eitthvað um þess-
háttar tæki í næsta blaði.
--------Kæri H. B. Það er
þannig með okkur, að við getum
það ekki. Þetta höfum við marg-
sinnis útskýrt í Póstinum, og
greint frá því um leið, að lausn-
ir eru teknar til greina, þótt þær
séu skrifaðar á laus blöð.
Virðingarfyllst. Pósturinn.
Veggir, sem sjá og
heyra...
Kæri Póstur!
Ég er einn þeirra manna, sem
ekki eru alveg öruggir um kon-
urnar sínar og hef meira að segja
lúmskan grun um, að hún hafi
ekki hreint mél í pokahorninu.
Ég er fjarverandi í vinnu allan
liðlangan daginn, svo hún getur
gert hvern skollann sem hún vill
án þess að ég hafi hugmynd um
það. Samt hef ég fengið ákveðn-
ar bendingar, enda er víst óhætt
að segja, að hún er frekar „til-
kippileg“ eins og sagt er og hefur
aldrei unað því reglulega vel að
vera húsmóðir. Nú hef ég heyrt
um það, að erlendis geti menn
fengið leigðan prívat leynilög-
reglumenn til að fylgjast með
svona málum. Ég mundi ekki
hika við að borga vel fyrir slíka
þjónustu, en spurningin er bara
þessi: Er hægt að fá prívat leyni-
lögreglumenn einhvern tíma?
Vonast eftir svari fljótt.
Einn í vafa.
--------— Þetta er vissulega mik-
ið vandamál. VIKAN reyndi að
greiða úr þessu og átti tal af
Sveini Sæmundssyni, yfirmanni
rannsóknarlögreglunnar hér í
borg, en hann kvað þess engin
dæmi að menn hefðu beðið um
þessa þjónustu og kvað helidur
ekki líklegt að hægt væri að
veita hana. Svo nú er aðeins um
tvennt að gera: Ráða útlendan
prívat leynilögreglumann, sem
kynni þó vafalaust að vera ýms-
um vandkvæðum bundið. Hitt er
að taka tæknina í þjónustu sína.
Nú eru fáanleg örsmá segulbönd,
ÞakkaS fyrir þættina...
Það eru alltaf allir eitthvað
að nöldra yfir dagskrá Ríkisút-
varpsins, þess vegna finnst mér
ekki nema sjálfsagt að biðja þig,
póstur minn, að koma á framfæri
þakklæti fyrir þáttinn hans Svav-
ars Gests og þá alveg sérstak-
lega fyrir lögin, sem þeir félag-
ar úr Fóstbræðrum syngja í út-
setningu Magnúsar Ingimars,
nefnilega „Fyrr var oft í koti
kátt“. Það er hreinasta unun að
heyra létt lög flutt á svo smekk-
legan og skemmtilegan hátt á
þessari öld öskur-apa-hljómlistar.
íslenzku sjómannalögin voru svo
fjörlega flutt að jafnvel ungling-
arnir á heimilinu voru farnir að
„taka undir“ með Fóstbræðrum
og virtust ekki sakna öskursins
hið allra minnsta. Vonandi sjá
þeir félagar úr Fóstbræðrum sér
fært að flytja meir af slíku.
Þá er það líka annar þáttur,
sem okkur fertuga fólkinu a.m.k.
þykir skemmtilegur en það er
þátturinn hans Egils, „Syngjum
og dönsum“, því enda þótt mörg
okkar séu orðin afar og ömmur
þykir okkur nú samt gaman að
fá okkur snúning og þá helzt eft-
ir rólegri tegundinni af dans-
músíkinni. Það er bara þetta,
hann Egill mætti tala svolítið
minna og spila fleiri lög.
Þakka þér svo kærlega fyrir,
póstur minn, og segðu honum
Jóni Múla að Stefdís biðji kær-
lega að heilsa honum og Pálínu
frænku. Hún segist vera farin
að hoppa fram úr á hverjum
morgni klukkan 7.
Amma.
Hvar er þéringa-
línan ... ?
Kæra Vika!
Ég var að blaða í Vikublöð-
um frá síðasta ári og rakst þá
á ýmis skrif um þéringar í Póst-
inum. Bréf um þetta efni hljóta
að vera orðin þér mesta hrell-