Vikan - 30.04.1964, Qupperneq 29
DÝR NÆTURINNAR
Framhald af bls. 13.
fara að æða á eftir henni, þegar
mér datt allt í einu annað ráð í
hug, og sneri við að borðinu þar
sem Doddi og Gunna sátu og bað
hana að dansa við mig einn dans.
Doddi ætlaði að fara að rjúka upp
með kjaft, en ég stillti hann af
og slapp með Gunnu út á gólfið.
„Þekkirðu þessa nýju?" surði ég.
„Þessa í pilsinu? Nei, ég hefi
engan áhuga, góði. Hilli má alveg
eiga hana fyrir mér. Mér er skít-
sama".
„Nú . . .? Ég hef nú frétt annað.
„Hvað þá?"
ÞAÐ ER
SPARNAÐUR í
AÐ KAUPA GÍNU
Óskadraumurinn
við heimasaum
Ómissandi fyrir allar konur,
sem sauma sjálfar.
Stærðir við allra liæfi.
Verð kr. 550.00
m/klæðningu kr. 700.00
Biðjið um ókeypis leiðarvisi
Fæst í Reykjavik hjá:
Dömu- & fierrdbáðinni
Laugavegi 55 og
Gísia Marteinssyni
Garðastræti 11, sími 20672
„Hilli var að gorta af því um
daginn, að þú værir kolvitlaus í
sér, en að þú værir ónothæf nema
með hauspoka".
„Sagði Hilli það?"
„Já, ég man ekki betur".
„Mér hefur nú fundizt hingað til
að hann hefði áhuga fyrir öðru
en andlitsfegurðinni einni saman.
Léztu hann komast upp með að
segja þetta, eða hvað?"
„Nú, ég gat auðvitað ekkert
gert, því ég vildi ekki láta hann
vita að það væri neitt á milli okk-
ar". Ég sá að skvísan var komin
inn aftur og farin að dansa við
Palla í Sumarhúsum, svo ég vissi
að Hilli mundi ekki ná strax í
hana aftur. En ég var ekkert hrædd-
ur við Palla, því ég gat stungið
honum í vasann hvenær sem var.
Ég flýtti mér að losa mig við Gunnu
og labbaði út á hlað, þar sem ég
sá Hilla úti við vegg að reykja.
„Ég veit ekki hvað ég á að
gera við hann Dodda", sagði ég
við hann. „Hann er orðinn svo full-
ur, að ég verð að reyna að koma
honum heim, en hann hreyfir sig
ekki á meðan Gunna er hjá hon-
um. Þú ættir nú að skreppa inn og
dansa einn dans við hana á með-
an ég reyni að liðka hann til".
„Djöfullinn, ég nenni því ekki",
ansaði Hilli. „Ég hef allt öðrum
hnöppum að hneppa".
„Blessaður láttu ekki svona út af
þessari Keflavíkurgæru. Doddi
kannast við hana að sunnan og
segir að hún liggi undir hverjum
sem er. Reyndu heldur að hjálpa
mér að koma honum heim fyrst,
það tekur enga stund".
„Ókey, sama er mér", sagði
hann, slökkti í sígarettunni og labb-
aði inn.
Ég fylgdist með því hvað gerð-
ist, þegar hann gekk að borðinu
til þeirra, og ég þurfti ekki lengi
fyrr en varði voru þeir komnir i
hár saman, því Gunna hafði auð-
vitað kjaftað öllu í Dodda. Áður
en ég gat talið upp að fimm hafði
Doddi gefið Hilla svo duglega
SH: á kjaftinn, að hausinn á hon-
um snaraðist aftur á bak. Síðan
fylgdi búkurinn eftir, fæturnir lyftust
frá gólfinu. Svo skall höfuð og herð-
ar í gólfið, síðan bakið, og rassinn
og loks fæturnir.
Hilli lá grafkyrr.
Það varð þytur í salnum. Hofs-
bræður hættu að spila, og dansend-
urnir þyrptust utan um Hilla og
Dodda. Doddi stóð enn með kreppta
hnefana við borðið og starði á and-
stæðing sinn. Það var kurr í saln-
um, en enginn gerði neitt. Olafur í
Skarði, sem fyrir nokkrum árum var
þjálfaður í að líta eftir á böllum,
tvísté aftast í hópnum og reyndi
að skyggnast yfir á atburðasvæðið.
Allt í einu kom hreyfing á mann-
fjöldann. Sú úr Keflavík kom í sal-
inn. Hún bar höfuðið hátt, hnarreist
eins og stóðhryssa. Andartak stóð
hún kyrr í dyrunum. Svo gekk hún
yfir gólfið að þvögunni, sem laukst
þegar upp fyrir henni. Hún fór rak-
Hrein
frísk
heilbrigö
húö
Hoilbrigð húS í 4 nllll&i!
Finnst yður það ekki vera athyglisvert, að Nivea skuli
vera iafn vinsœlt og nýtízkulegt og fyrir 50 árum.
há uppgötvuðu vísindameon Ezurit, sem gerði það mögu-
legt, að næra húðina með fitu og raka.
Fegrunarsérfræðingar segja f dag: Nivea getur
olls ekki verið betrd, hvort sem um er að ræða Nivea-
creme eða hina nýju Nivea-milk. Og reynsla
hinna mörgu millióna sem nota
Nivea sýnir það daglega: Sá, sem snyrtir húð
sfna reglulega með Nivea, heldur henni hrelnnl, ferskri
og heilbrigðri.
HIVEA\hivea
i