Vikan - 30.04.1964, Síða 46
valdamenn og leiðtogar þjóð-
félagsins valdir. í tíu ár á þessi
hópur að brýna stál viljans, efla
siðferðisþrek og hugrekki og hon-
um er ætlað að fullkomna þekk-
ingu sína á hinum 5 vísindagrein-
um og að skilja þessi fræði sem
eina samræma heild. Að þessum
10 árum liðnum fer enn fram
nýtt val. Hinir tregari hætta
námi og gerast opinberir starfs-
menn ríkisins.
Hinir nýju úrvalsmenn eru
þeir einu sem teljast færir um
að stunda hina eiginlegu heim-
speki. Plató segir: ,,í dag eru
þeir, sem þessi fræði stunda
stráklingar, naumast komnir af
barnsaldri. Þeir fást við heim-
speki, áður en þeir hafa num-
ið einföldustu hluti, og hætta við
hana aftur jafnskjótt og þeir
þurfa að glíma við hin erfiðustu
vandamál hennar. Samt eru það
þessir menn sem þykjast útlærð-
ir heimspekingar. Síðan þykjast
þeir vinna mikil afrek með því
að sækja heimspekifyrirlestra,
sem þeim er boðið að hlýða á.
Þeir halda að heimspeki sé að-
eins tómstundagaman. Þegar þeir
eldast slokknar ljós þeirra flestra
eins og sól Herakleitosar, — og
meira en það, því að eldur þeirra
kviknar aldrei að nýju“. — Þann-
ig getur heimspeki aldrei orðið
eign fjöldans, heldur aðeins
fárra útvaldra. Þetta heimspeki-
nám eiga hinir útvöldu að leggja
stund á frá 30--35 ára aldurs.
Eftir það eru þeir settir í skóla
reynslunnar og næstu 15 árin
verða þeir að sanna gildi sitt
og getu með starfi í þjónustu
mannfélagsins í stríði og friði
þar sem reynir á mannvit og
þekkingu, hugrekki og siðferðis-
styrk. í eldi þessa lokaprófs sést
hvað er gull og hvað er hinn
óæðri málmur. Þeir einir, sem
standast þetta próf eru hinir end-
anlegu útvöldu leiðtogar ríkisins,
heimspekikonungarnir eins og
Plató nefnir þá. Eftir fimmtugt
stunda þeir eingöngu hin æðstu
fræði, unz kall þeirra kemur og
þeir taka að sér hin þýðingar-
mestu stjórnarstörf í þágu ríkis-
ins.
Heimspekikonungurinn er eins
og hinn frelsandi bandingi í sögu
Platós um hellisbúana. Hann hef-
ur yfirgefið skuggamyndir hellis-
ins og er kominn upp til Ijóssins.
En ríkið, sem annaðist uppeldi
þeirra og kom þeim til þroska á
rétt á leiðsögn þeirra. Þeim ber
því siðferðjaleg skylda til að
halda aftur niður í hellinn til
hjálpar meðbræðrum sínum og
að vísa þeim veginn frá myrkri
til meira ljóss. Allur tilgangur
mannsins er að þroska sál sína
og stefna að því að hún verði
fullkomin eins og frummyndirn-
ar í ríki andans.
Heimspekikonungurinn gegnir
hlutverki spámanns sem gefur sig
heilan og óskiptan að þessari
köllun sinni. Hann afsalar sér
fjölskyldu og heimili. Hann má
ekki einu sinni snerta gull eða
silfur og hann afsalar sér öllum
eignum, en ríkinu ber að sjá fyr-
ir þörfum hans. Hann verður al-
gjörlega að snúa baki við verald-
legum hégóma og halda fast við
köllun sína. Hann má aldrei
missa sjónar á hinu æðsta tak-
marki lífsins, að lifa ævintýrið
mikla, — hinn andlega veru-
leika.
Ríki Platós er draumur um
nýtt og fullkomið þjóðfélag.
Plató vissi sjálfur að sá draum-
ur gat aldrei rætzt að fullu. Enn
hefur „heimspekikonungur"
Platós aldrei stjórnað ríki á jörðu
hér. Og slíkir vitringar geta
naumast orðið til meðal manna,
þar sem vizkan er að sögn Platós
eign guða fremur en manna.
Plató skrifar síðar aðra bók
„Lögin“, sem er endurskoðun á
kenningum hans í „Ríkinu“.
Þar bendir Plató á að alræðis-
vald sé svo fjarlægt eðli manns-
ins að sá sem með það fer hljóti
að bíða tjón á andlegri heilsu
sinni. Þar bendir hann á að vin-
átta og frelsi sé ekki síður mikil-
vægt en köld skynsemin: Allir
borgarar eiga að njóta frelsis og
taka þátt í stjórn ríkisins. í „Lög-
unum“ fellst Plató á að allir
menn megi eiga jarðeignir en er
enn sem fyrr andvígur auðsöfn-
un og fésýslu: Kaupmennska á
að vera í höndum þræla og út-
lendinga. Fjölskyldan er í „Lög-
unum“ orðin viðurkennd stofnun.
Hafa verður í huga, að ríki Platós
er miðað við lítið borgríki og
ýms stefnumál hans voru þegar
komin í framkvæmd í Spörtu á
hans tíð. Það er því ekki hægt
að líta á þúsundáraríki Platós
sem loftkastala eða draumóra.
Margar af hugmyndum hans hafa
verið reyndar og þær sem aldrei
hafa verið nema hugsjón eru eigi
að síður í fullu gildi. Hugsjónir
um fullkomnun hefur orðið
mönnum stjarna til að stýra eft-
ir, — jafnvel þótt takmarkinu
hafi aldrei verið náð.
STAÐA PLATÓS.
Viðfangsefni Platós er að end-
urskapa alla heimspeki samtíðar
sinnar og fortíðarinnar í eitt
voldugt kerfi og sameina það sem
virðast andstæð sjónarmið og
lyfta þeim um leið í æðra veldi:
í frummyndakenningum sínum
fylgir hann kenningu þeirra sem
álýta að tilveran sé andlegur
veruleiki — hugur og hugmyndir
(idealismi).
Heimspeki Platós er realismi
að því leyti, að þar er haldið
fram að til sé veröld ofar hlut-
veruleikanum óháð hugsun eða
skynjun.
Heimspeki Platós er rational-
ismi að því leyti, að kennt er að
andi mannsins geti þekkt raun-
veruleikann án skynjunar skiln-
ingarvitanna. Gildi skilningarvit-
anna og jarðneskrar reynslu ligg-
ur hins vegar í því að vekja
gleymda eða dulvitaða (a priori)
þekkingu sálarinnar.
Heimspeki Platós er algerlega
andstæð materialisma, þeirri
kenningu að efnið eitt sé veru-
leiki og allt sem til sé megi skoð-
ast sem efnislegt form. Efnis-
heimurinn er í heimspeki Platós
aðeins skuggi hins andlega veru-
leika.
Heimspeki Platós er Phenom-
enalismi að því leyti að hinn sýni-
legi heimur er þar sagður ann-
að en hinn raunverulegi heimur.
Heimspeki Platós er panþe-
ismi sem kennir að guð sé í öllu.
Heimssálin er sögð í öllum hlut-
um og allt er birting guðdómsins
sem öllu stjórnar. Hins vegar er
kenning Platós um skaparann
(Demiurge) þeismi, (guðstrú) en
hann má sennilega skoða sem
skáldlega túlkun guðdómsins í
gervi persónulegs guðs.
Veröld Platós er yfirskilvitleg,
þar sem hún kennir að hinn raun-
verulegi heimur verði ekki skynj-
aður með skilningarvitunum, en
veruleikinn er lika í „efninu" og
í veröld skynfæranna, þar sem
heimssálin er sögð fylla allt rúm-
ið.
Heimspeki Platós er öll miðuð
við að lífið og allt í tilverunni
hafi ákveðinn tilgang, stefni allt
til guðdómsins („frummynd hins
góða“).
Heimsepki Platós er nefnd
dualismi þar sem hann kennir
FRAMUS er frábær
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
HLJÓÐFÆRAVERZLUN SIGRÍÐAR HELGADÓTTUR
Vesturveri — ASalstræti 6 — Sími 11315.
— VIKAN 18. tbl.