Vikan


Vikan - 13.08.1964, Síða 6

Vikan - 13.08.1964, Síða 6
HILLMAN IHP Wellaform hárkrem heldur hárinu þétt og vel, og gef- ur því ferskan og mjúkan blæ. Ákjósanlegt fyrir hverskyns hárlagningu. Engin feiti. Klístrar ekki. Mjög drjúgt. Wella fyrir alla fjölskylduna. HALLDOR JONSSON H.F. Heildverzlun Hafnarsfræfi 18-Símar 23995 og 12586 Algjör nýjung fró Rootes verk- smiðjunum: Einstæður í gerð minni bifreiða. Nú er hægt að íá rúmgóða, þægilega, sparneytna og vel byggða, létta bifreið, sem hefur sömu kosti og útlit sem stór fjölskyldubifreið. Þetta hefur Sunn- izt með tilkomu hins nýja HILLMANS IMP., hinni einstæðu ,,compact“-bif- reið, sem er aðeins 3,53 m á lengd, drifin nýrri léttri almuninium „DIE- CAST“-vél aftan í, með mjög fullkomnum þar til gerðum gírkassa. Hámarkshraði 120 km. — Sparneytinn jafnvel á miklum hraða. IMP hefur alla kosti kraftmikils afturdrifs, fullkomið hlutfall milli þyngd- ar og afls og fjölda annarra nýjunga. HILLMAN IMP. hefur fengið frábæra dóma um allan heim: f Daily Express segir meðal annnars: „Ég fæ ekki séð hvernig nokkur ökumaður getur stjórnað betri sameiningu, orku og nýtni, en 1 Hillman Imp., einn hugvitsamlegasti smábíll, sem framleiddur hefur verið af brezka bilaiðnaðinum eða jafnvel í heiminum". — Dennis Holins, Daily Express. Standard hlutir í HILLMAN IMP. eru m.a.: Miðstöð — Thru-flow-loftræstikerfi — Rúðusprautur — Hurðarljós — Teppi á gólfum — Tvær sólhlífar — Aðalljósablikkarar og fcstingar fyrir öryggis- belti. Leitið upplýsinga og skoðið þessa einstæðu bifreið áður en þið festið kaup annnars staðar. RAFTÆKNI H.F. Langholtsvegi 113 — Laugavcgi 168 — Símar 20411 & 34402. Frétt af ManfreS! Kæra Vika! Ég er kominn á síldarplanið Neptún h.f. á Seyðisfirði. Og þá er það víst ekki meira. Manfreð Jóhannesson. — — — Jæja, Manfreð minn. Hver er að gera hverj- um bölvun? Heiðraði póstur! Þótt ég sé ekki áskrifandi að Vikunni má heita, að ég sjái hana að staðaldri, fæ hana lánaða í næsta húsi. Erindið er samt ekki að þakka efni hennar eins og mér sýnist vera móðins í póstinum. Ég sé enga ástæðu til þess, enda er það upp og ofan (þó meira ofan) eins og gengur. Maður les þetta, þegar maður nennir ekki að lesa almennilegar bækur, enda sjálf- sagt hollt fyrir sálina að hafa léttmeti með. Nei, erindið var að bera upp fyrir ykkur, Vikubændum, eftir- farandi fyrirspurn: Hve mikið af þeim bréfum, sem birtast í póstinum, er samið af ykkur sjálf- um, upp á grín? Margt af þessum bréfum er nefnilega þannig, að maður á bágt með að trúa að þau séu samin af mönnum með fullu viti, nema þá til að narrast að ykkur og háttvirtum lesendum. Einn ber sig upp undan því við ykkur, að hann sé látinn hjálpa syni sínum til kopps, með- an hann sé að borða, en konan fari upp til mömmu sinnar að drekka kaffi á meðan. Annar biður um ráðleggingar, sem dugi gegn tilvonandi tengda- móður sinni, svo hún fífli hann ekki. Fjöldi manns spyr um hluti, sem finna má svör við í hverri símaskrá. Það er svona álíka og ég skrifaði ykkur til að spyrja um markið hans Jóns í Möðrudal, í staðinn fyrir að líta eftir því í markaskránni. Með leyfi að spyrja: Er mikið af svona bjálfum á fslandi í dag? Ef svo er, þá hvar? Ég get ekki neitað, að ég hefði gaman af að kynnast svona fólki. Ég þekki engan þvílíkan glóp. Að vísu þykist ég sjá, að sumt af bréfunum sé frá börnum og börn spyrja oft um ótrúlegustu hluti. En — eru þessi börn mun- aðarlaus? Þekkja þau engan full- orðinn, sem hægt er að spyrja um einföldustu hluti? Nei, þið hljótið að semja þessi bréf sjálfir, eða þá einhver grín- fugl hefur tekið sér fyrir hend- ur, að salla þessum ósköpum á ykkur. Annars álít ég, að svona bréfakassar geti verið dálítið varasamir (ef birt eru bréf frá lesendum). Það er nefnilega ákaflega auð- velt að skrifa bréf, sem bend- ir eindregið á einhvern annan aðila, bara til að koma honum í bölvun. Ég skal taka dæmi. Við skulum setja sem svo, að bréfið frá unga manninum, sem bað um ráð til að losna undan ástarhótum tilvonandi tengda- móður, hafi ekki verið frá mann- inum, sem var í klípunni, held- ur frá einhverjum öðrum, sem þekkti allar aðstæður, eða gat sér þær til, t.d. frá manni sem lika vildi krækja í stelpuna, og skrifað í þeim tilgangi, að koma þeim, sem átti að hafa skrifað bréfið, í bölvun. Er leikurinn þá ekki orðinn heldur grár? Auð- vitað er allt í lagi, að þið semj- ið svona brandara, en að birta þá aðsenda er spurning um mannasiði. Ég hef t.d. rökstudda vissu fyr- ir því, að þátturinn Óskalög sjó- manna í Ríkisútvarpinu, hefur verið misnotaður svona. Því skyldi það ekki geta komið fyrir með „póstinn" ykkar. Ef þetta bréf birtist ekki í póstinum mun ég telja það sönnun þeirrar til- gátu, að þið semjið bréfin sjálfir. Virðingarfyllst. Austfirðingur. — — — Jæja, Austfirðingur. Margt segir þú og sumt óvitlaust. Sem svar við fyrstu spurningu þinni vill Pósturinn taka fram eftirfarandi: Hingað berst ara- grúi af bréfum, en því miður er aðeins lítill hluti þeirra birting- arhæfur, einkum vegna þess að spurt er um hluti, sem líklegt er að mjög fáir hafi áhuga á utan bréfritari sjálfur. Þér finnst mörg erindin barnaleg, sem upp eru borin við Póstinn. Þar eiga þó einkum unglingar í hlut og ástæðan er sú, að sambandið milli barna og foreldra er ekki betra en svo, að börnin trúa for- 0 — VIKAN 33. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.