Vikan


Vikan - 13.08.1964, Blaðsíða 18

Vikan - 13.08.1964, Blaðsíða 18
3. HLUTI ÆVINTYRIÐ UM Mamma Gustafsson grét þegar Greta og Mauritz Stiller héldu innreið sína í Konstantinópel eins og furstapar frá miðöldum. Þar lifðu þau í allsnægtum og óhófi, en dvölin endaði með sárum ósigri. Blásnauð voru heimsstjarnan og leikstjórnar- snillingurinn send heim á ríkis- ins kostnað. Þá tók Greta til sinna ráða. Stiller varð örvita af heift og afbrýðissemi...... Þegar Greta kom heim frá hinni velheppnuðu frumsýningu í Berlín, var það aðeins til að setja niður í ferðatöskurnar. í Berlín hafði hin nítján ára leikkona verið hyllt eins og stór- stjama, kvikmyndin varð mikill sigur og leik- stjórinn Mauritz Stiller varð gripinn miklum óróa við tilhugsunina um þá miklu peninga- veltu, sem þá var í Berlín. Hann ætlaði að sýna Hollywood, að Evrópubúar gætu gert kvikmynd- ir, sem nytu vinsælda hjá áhorfendum. Með þýzk rhörk í vasanum beindi hann öllu liði sínu til Konstantinopel, þar sem hann hóf upp- tökur á myndinni „Odalisken fra Smolna“, með Garbo í hlutverki rússneskrar aðalsdömu á flótta undan byltingarmönnum til örlaga, sem verri voru en dauðinn: hún lenti í tyrknesku kvennabúri. Stiller var með ráðagerðir um að slá öll sýningarmet með myndinni, og sjálfur ætlaði hann til Hollywood með uppgötvun sína, hina fögru Gretu Garbo. Greta varð að hafa sig alla við, ef hún átti að fylgjast með í þessum tryllta dansi. Heima í Blekingsgötu var móðir hennar ekki sérlega hrifin af gangi málanna, þetta kostaði mörg _ - i >•: Él : ' ' ■■ Unga stúlkan Greta Garbo og snillingurinn Mauritz Stiller við borðstokkinn á „Drottn- ingholm". Hamingjan og sigurgleðin Ijómar af þeim. Geðillir gagnrýnendur í Svíþjóð og ósigurinn í Tyrklandi tilheyrir nú fortíðinni og er grafið og gleymt. Ameríka og milljónirnar bíða þeirra! Jg — VIKAN 33. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.