Vikan


Vikan - 13.08.1964, Page 7

Vikan - 13.08.1964, Page 7
eldrunum ekki fyrir vandamál- um sínum, en skrifa heldur til ópersónulegs aðila í von um lausn. Hvort einhver skrifar til að koma öðrum í bölvun er í hverju tilviki gersamlega ómögu- legt að vita og Pósturinn mun framvegis sem hingað til birta bréf í þeirri von og vissu, að bréfritarar hafi ekkert slíkt haft í huga. En fyrir alla muni, Austfirð- ingur, temdu þér stuttorðari og gagnorðari bréf. Er rétt að bera fram sígarettur? Kæra Vika! Til að byrja með vildi ég þakka fyrir viðtalið við Benedikt Grön- dal um sjónvarpið, sem mér þótti mjög fróðlegt, og í öðru lagi vildi ég bera lítið og ómerkilegt áhyggjuefni upp við ykkur. Svo vill til að maðurinn minn er opin- ber embættismaður og af þeim ástæðum kemur það fyrir að ég verð að taka heim gesti. Nú eru útlendingar á ferð, sem við verð- um að bjóða heim og með þeim verður eitthvað af öðru fólki, innlendu. Ég er vön að hafa kokkteil fyrir matinn og bera fram koníak með kaffinu á eftir. En nú er búið að hrella fólk svo mikið með því, að sígarettur séu þessi ógnar skaðvaldur og marg- ir hættir að reykja af þeim sök- um. Á maður að bera fram sígar- ettur í svona boði eins og ekkert sé, eða á maður að láta það vera. Vinsamlegast svarið fljótt. Kær kveðja. Ein sem bíður. — — — Þú getur borið fram sígarettur, en það er alls ekki rangt að láta það vera. Póstur- inn mælir frekar með síðari kost- inum. Hver er ástæðan? Góði Póstur! Það er nú ekki á hverjum degi sem ég sezt niður við skriftir, en ég mátti til með að skrifa þér og spyrja þig nokkurra spurn- inga. Það er varðandi reykingar. Það sem ég ætla að spyrja um er þetta: Hvers vegna byrjar fólk sem komið er um þrítugt og yfir það, að reykja? Við vitum vel að þeg- ar unglingar fara að fikta við þetta, þá er það bara að barna- skap og löngun til þess að sýn- ast fullorðin. Nú tala ég af reynslu, því ég er búin að reykja í 2 ár og er þó aðeins sextán ára. Fyrst eftir að ég byrjaði, þá fannst mér endilega ég vaxa í áliti en nú skammast ég mín fyr- ir þetta. En það er eitt sem ég skil ekki. Það var þetta sem ég drap á áðan. Ekki getur það ver- ið að fullorðna fólkið sé að reyna aS gera sig stærra í augum al- mennings þegar það er komið til vits og ára, eins og það er kallað. Ég lagði þessa spurningu fyrir skólastjórann minn, þegar hann var að segja okkur krökkunum að hann hefði ekki byrjað að reykja fyrr en 28 ára gamall. Hann vildi ekki svara henni. Og ég hef spurt marga fleiri og eng- inn hefur svarað mér. Þess vegna spyr ég þig, Póstur góður, og ég er illa svikin ef það er ekki ein- hver þarna á Vikunni sem hefur byrjað svona seint að reykja, og vill vera svo góður að segja mér þetta. Svo sendi ég fyrirfram þakkir fyrir svarið, sem ég vona að komi einhvern tíma, og ég bið kærlega að heilsa honum G.K. með þökk fyrir allar góðu greinarnar hans. Vertu svo blessaður og sæll og ég vænti svars. Fróðleiksfús. P.S. Angelique er alveg dásamleg saga. — Fyrirgefðu skriftina, en ég er að flýta mér. •— Sama. --------Sú tilgáta þín mun vera rétt, að fullorðið fólk byrjar varla að reykja til þess að gera sig stærri í augum eins eða neins, svo sem aftur á móti oft verður séð, þegar unglingar eiga í hlut. En hvers vegna þá? Það er von þú spyrjir. Án þess að fullyrða nokkuð þar um, þá skulum við notast við það sem svar að þessu sinni, að fullorðið fólk byrjar að reykja af einhverjum sálrænum ástæðum. Það getur ómögulega verið að það langi í reyk, þegar það þekkir ekki hvað það er að reykja. En mig grunar, að það sé gert til þess að bæta sér upp, eða leita sér uppbótar á tilveru, sem ekki er víst alveg fullnægjandi. Ef til vill eru taugarnar ekki í lagi, eða eitthvað angrar hugann og þá leita sumir fróunar í þessu og aðrir í áhrifameiri meðulum. #cimmgo Nýtfzlcu straujárn er létt - sem allra léttast - því að það er hitínn - réttur hití — en ekki þyngdin, sem straujar. FLAHINGO straujárnið er fislétt — aðeins 800 grömm — hitnar og kólnar fljótt og hefur hárnákvaaman hitastílli, ásamt hitamaeli, sem alltaf sýnir hita- stígið. Stilling fyrir "straufrí" efni. Truflar hvorki útvarp né sjónvarp. Inn- byggt hitaöryggi. Lögun og léttleiki FLAMINGO gerir það leik einn að strauja blúndur, leggingar, kringum tölur og annað, sem hingað til hefur þótt erfitt. FLAMINGO straujárn eru falteg - hreint augnayndi — og fást krómuð, blé, gul og rauðbleik. Einnig fyrir vinstri hönd. FLAMINGO úðarinn úðar tauið svo fínt og jafnt, að hægt er að strauja það jafnóðum. Sem sé: gamaldags steink- un og vatnsblettír eru úr sögunni. Úðaranum fylgir hanki fyrir glas og úðabyssu. Litír: svartur, blár, gulur, rauðbleikur. FLAMINGO snúruhaldari heldur straujárnssnúrunni á lofti, svo að hún flsekist ekki fyrir. FLAMINGO gjafakassit straujám og úðari. FLAMINGO straujám, úðari og snúruhaldari eru hvert f sfnu lagi — og ekki sfður saman — kjörgripir, sem vekja spuminguna: Hvemig gat ég verið én þeiira? FLAMINGO: fyrir yðurl — FLAMINGO: falleg gjöfl s i M I 12606 - SUPURGÖTU 10 - REYKJAVIK PÖNTUN Sendið undirrit. I póstkröfu: .... stk. FLAMINGO straujárn.....litur: kr. 498,00 .... stk. FLAMINGO úðara........litur: kr. 256,00 .... stk. FLAMINGO snúruhaldara kr. 82,00 .... stk. FLAMINGO gjafakassa....litur: kr. 754,00 Nafn .. Heimili Til: FÖNIX s.f., Suðurgötu 10, Reykjavik.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.