Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 13.08.1964, Qupperneq 9

Vikan - 13.08.1964, Qupperneq 9
Ijósarofann fyrir þá höndina, sem ekki er ætluð til gírskiptinga, og það gildir líka um þennan bíl. En vinstra megin á stýrisleggnum er raddmikil flauta og ljósarofar, allt á einum legg. Það er svo «em góður og hentugur staður, en ég myndi heldur kjósa að kveikja á ljósunum með einum hnapp, en hafa aðeins skiptinguna þarna með flautunni. En Fransmennirnir verða víst að ráða því. Hemlar eru af venjulegri gerð, en léttir og vinna vel. Þótt stýrið sé svolítið innarlega, er þægilegt að sitja undir stýri á þessum bíl, manni finnst hann viðráðanlegur og auðveldur í akstri. Fyrst í stað þreytist maður af því að halda ,,bensínfætinum“ á lofti, því hann hefur engan stuðning, en það venst fljótt af, og mér var í lok reynsluferðarinnar orðið sama. Þurrkurofi er fyrir vinstri hönd, rétt vinstra megin við stýrislegginn, en rúðusprauta er fyrir hægri hönd, inn undir miðju mælaborði. Ég vildi rétt mega benda Fransmönnum á, að meðan þeir halda sig við þetta fyrir- komulag, er eiginlega nauðsynlegt fyrir þá að láta „autopilot" fylgja hverjum bíl, sem hægt er að grípa til, meðan ökumaðurinn græjar þurkkurnar. Og meðan við erum að tala um mælaborðið, er rétt að geta þess, að Peugeot 403 er með svampfóðruðu mælaborðið að ofan og neð- an, en hvítmálaðan málm í milli. Mælar eru þessii' venjulegu, nema hvað það er rafmagnsmælir í staðinn fyrir ljós, sem er til bóta, en þeir láta sig muna um, að setja almennilegan smur- mæli líka. Þetta er fimmeyringssjónarmið. Mælarnir liggja vel við og eru sæmilega greinilegir. Fyrir miðju eru stillingar miðstöðv- arinnar, sem blæs af feikna afli, hvort heldur vill heitu eða köldu lofti. Og yzt til hægri er svo hanzkahólf, sem er af minni gerðinni. Sætin eru sófatýpur, bæði að aftan og framan, enda er það nauðsynlegt til þess að fá hann skráðan sem sex manna bíl. Um gæði þeirra hef ég áður rætt. Stokkurinn í gólfinu er ekki hár, og ætti ekki að valda neinum ama. Hurðirnar eru klæddar innan, húnar eru úr einhverskonar plastefni, sem ég hef litla trú á, og læsingarnar eru ekki eins úrvalsgóðar og á 404, þótt þær séu ágæt- ar. Og auðvitað er svo sérstök læsing til að fyrirbyggja, að börn geti opnað fyrir sér sjálf að innanverðu. Það er ekki að efa, að Peugeot 403 er sterkbyggður bíll. Hann er gerður með það fyrir augum að endast, og ég býst við, að hann geri það, hvort heldur er hjá leigubílstjórum eða í einkaeign. Ég væri ekki hissa, þótt svona bíll væri góður í einkaeign í svona 10 ár, ef sæmilega væri með hann farið og um hann hugsað. Enda er hann það ódýr, að hann er alls ekki fráleitur sem einkabíll. Hann kostar aðeins 172 þúsund til almennings, en 137 þúsund til Framhald á bls. 48. Ef þ]er eruí farin að hugsa fyrir sumarferðalaginu þá æftuð þjer að athuga að það er auðveldara nú en áður að velja malinn. Hinar Ijúffengu Honigs vörur eru á boðslólnum í næsfu búð. T.d. Honigs Júlienna súpa í pökkum, súpufeningar, sem gera má úr einn hinn Ijúffengasfa drykk á svipstundu. — Makkarónur og búðingsmjöl. — Allt fyrsja flokks vörur. HEILDSÖLUBIRGÐIR: Miðað við verð Frábær Mjög góður Góður Allgóður Sæmiiegur Viðunandi Lélegur ★★★★★★★ ★★★★★★ ★★★★★ ★★★★ ★★★ ★★ ★ Peugeot <403 Eggert Kristjánsson & Co. h.l. VIKAN 33. tbl. — Q

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.