Vikan


Vikan - 13.08.1964, Page 10

Vikan - 13.08.1964, Page 10
BJARNASON rannsóknarlögregluþjónn segir Hann segir að þar geti allt komið fyrir og að aldrei sé hægt að fullyrða um nokkurn hlut fyrirfram, nema eitt: Að þjófurinn finnist fyrr eða siðar. HAUKUR frá ýmsum viðskiptum við afbrotamenn. Þau hömuðust baeði við að vikurkenna á sig þjófnað- inn og skila pengingun- um . . . Það var mikið að gera hjó skart- gripasalanum þennan eftirmiðdag, svo að afgreiðslufólkið tók ekkert sérstaklega eftir unga manninum, sem beið kurteis eftir afgreiðslu við endann ó borðinu. Það voru ferm- ingar framundan og margir a@ velja gjafir. Konurnar vildu fó að skoða alla hluti, spyrja um verð og ræða um það sín á milli hvað væri bezt og ódýrast. Þess vegna þurfti maðurinn að bíða nokkra stund áður eh hægt var að sinna honum. Loks kom að því að úrsmiðurinn sjálfur spurði hvað hann gæti gert fyrir hann. Jú, hann var með arm- bandsúr, sem þurfti viðgerðar við, hvort ekki væri hægt að Ijúka því fljótlega, því hann væri ekki bú- settur í bænum, en vildi gjarnan taka það með sér aftur þegar hann færi heim. Til þess að geta eitthvað um það sagt, hversu langan tíma viðgerð- in tæki, fór úrsmiðurinn með úrið inn á vinnustofu sína, til að gæta að hvað að því væri. Hann sá fljót- lega að úrið var óhreint og þurfti að hreinsa það. Það mundi taka einn til tvo daga. Hann ætlaði að fara að loka því aftur og segja manninum úr- skurðinn, þegar hann tók eftir þv! af hvaða gerð úrið var. Þessi gerð var í rauninni algeng, og ekkert við það að athuga, því úrið var vandað og vel þess virði að leggja peninga í að gera við það . . . en . . . það var komið upp í vana að þegar hann fékk þessa gerð úra til athugunar, að gæta sérstaklega að því hvaða úrsmiður hefði selt það, hvenær og hvaða númer væri á úrinu. I hvert sinn, sem úr er selt í verzlun í Reykjavík, þá merkir úr- smiðurinn úrið og skrifar hjá sér framleiðslunúmer þess. A þann hátt hefur mjög oft tekizt að finna aftur úr, sem hafa á einhvern hátt komizt í annarra manna hendur vegna þjófnaðar eða annnarra atvika, og þessi úrsmiður vissi að árið áður hafði töluverðu magni af samskonar úrum verið stolið, þegar innbrot var framið hjá einum samstarfsmanni hans í bænum. Númerin á öllum þeim úrum höfðu verið skrásett á lista, sem lá frammi hjá úrsmiðunum. Og af gömlum vana leit hann á númerið á úrinu og bar það saman við listann. Jú, það bar ekki á öðru. Númerið var einmitt á listanum. Hann settist niður augnablik til að hugsa sig um hvernig hann ætti að fara að því að afgreiða þetta mál. Svo tók hann upp símann og hringdi á lögregl- una. Þegar hann hafði skýrt málið fyrir þeim, báðu þeir hann um að reyna að tefja fyrir manninum dálitla stund. Maðurinn var þegar búinn að bíða nokkuð lengi, svo hann hlaut að vera farinn að gruna eitt- hvað, svo þeir komu sér saman um aðra aðferð. Svo gekk úrsmiðurinn fram í verzlunina aftur. „Jú", sagði hann við manninn, ,,það er greinilegt hvað er að úrinu. Það er í sjálfu sér ekki mikið verk að gera við það — tekur kannske tvo til þrjá tíma — en þv! miður þá hefi ég ekki til þau varastykki, sem til þarf. Eg hefi ekki seit þessa gerð, og á því miður ekkert í þau. En ef þér farið með það til hans N.N. hérna að- eins neðar í götunni, þá gerir hann við það fyrir yður á skömmum tíma". „Hvað er að úrinu?" spurði maðurinn. „Nú, óróaásinn er brotinn og spírallinn flæktur. Það þarf að skipta um hvorttveggja. Á ég kannske að hringja fyrir yður og vita hvort þetta er til?" „Já, þakka yður fyrir. Það væri mjög vingjarn- legt". Og úrsmiðurinn hringdi til N.N. og spurði hvort stykkin væru ekki til. Jú, jú, sendu bara manninn hingað, það verður tekið á móti honum hérna. Það bíður alveg sérstök móttökunefnd . . . Og svo gekk ungi maðurinn út með úrið í vasan- um. Þegar hann kom inn úr dyrunum hjá N.N. var klappað kurteislega á öxlina á honum og hann vin- ViStal: GuSmundur Karlsson fjf- & samlega beðinn um að „koma með". Það sannaðist fljótt, unga manninum til mikils léttis, að hann var alsaklaus og honum var sleppt, eftir að hann hafði skýrt frá því, hvar hann hefði fengið úrið og hvenær, hvað hann hefði greitt fyrir það og ýmislegt annað smávegis. Það kom í Ijós að hann hafði keypt það af manni á förnum vegi, sem hann vissi þó deili á. Sá náungi átti heima á Akranesi, stundaði þar sína löglegu vinnu, og ekki ti! þess vitað að hann hefði innbrot og þjófnað að tómstundaiðju. Það var samt því miður nauðsynlegt að halda unga manninum einangruðum, þangað til hinn hafði fund- izt, enda voru þegar gerðar ráðstafanir til þess. En hann neitaði auðvitað öllu, og ekkert fannst hjá honum, hvernig sem leitað var. Hann var yfirheyrður í þaula, honum sýnt úrið og sagður framburður unga mannsins, þar til hann loks gafst upp og játaði. Svo vísaði hann lögreglunni á felustað þýfisins. Það var í bílskúr þar í bænum, og þeir urðu að brjóta upp stóran hluta af steinsteyptu gólfinu. Þá komu þeir niður á kassa og í honum voru tugir eða hundruð úra, vandlega innpökkuð í plast til geymslu um óákveðinn tíma. Þannig komst upp um einn stærsta skartgripaþjófn- að á síðari árum, sem framinn hafði verið rúmu ári áður. Þetta má vissulega verða þeim til varnaðar, sem hafa áformað ólögleg eigendaskipti á úrum, hvort sem um er að ræða eitt einasta úr, eða nokkur hundruð, hvort sem þau eru ný eða gömul — það benda allar líkur til þess að slíkt muni komast upp um síðir. „Það eru oft tilviljanir", sagði Haukur Bjarnason rannsóknarlögreglumaður, „sem koma okkur á spor- ið. En oftast er það, að við finnum mennina sjálfir eftir ýmsum leiðum. Við þekkjum starfsaðferðir margra, og þótí við getum e.t.v. ekki sannað á þá ákveðin innbrot eða þjófnaði, þá kemur eiginlega alltaf að því að þeir verða teknir fyrir eitthvað annað, og þá kemur mjög oft í Ijós heilmikið af eldri afbrotum um leið". JQ _ VIKAN 33. tÞl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.