Vikan - 13.08.1964, Page 12
FERÐIN TEKUR 37
DAGA,
• j
þeirra ferðaskrifstofa okkar, sem skipu-
leggja og sjó um hópferðir. Útsýn
er 10 óra í sumar og hnattferðin er
einskonar afmælishátíð. Á þessum tíu
árum segist Ingólfur hafa mikið lært
af reynslunni, meðal annars það, að
yfirleitt var farið of hratt yfir. Lang-
ar dagleiðir og þreytandi bílferðir svo
og það að reyna að komast yfir það
sem tíminn ekki leyfði, — það voru
barnasjúkdómar hópferðanna bæði hjá
okkur og öðrum þjóðum. Það hefur
orðið grundvallarsjónarmið Útsýnar,
segir Ingólfur, að gera ferðirnar betri
og dagleiðir styttri.
KOSTAR 90 ÞUSUND
Á IVIANN
OG VERÐUR FARIN
SÍÐAST í OKTÖBER
VIÐTAL VIÐ
INGÖLF GUÐBRANDSS
Teheran
— Nú langar mig til þess, Ingólfur,
að þú segir lesendum Vikunnar það
afdráttarlaust, hvort íslendingar hafi
í einhverjum mæli gert sig seka um
slæmar og óviturlegar ferðavenjur. Og
þá á ég við ferðalög utanlands.
— Því er ekki að neita, að ég hef
alloft rekið mig á ýmsa óviturlega
þætti í ferðavenjum íslendinga. Jafn-
vel veraldarvant fólk, sem á að þekkja.
allan gang mála, sýnir af sér þá fá-
fræði að veigra sér við að leita upp-
lýsinga og fyrirgreiðslu hjá ferðaskrif-
stofum vegna þess að það heldur að
það kosti eitthvað. Mér liggur við að
segja að það sé ámælisverðasti þátt-
urinn í ferðavenjum íslendinga, að
þeir eru sífellt að bagsa á eigin spýtur
með margfaldri fyrirhöfn og áhyggj-
um að ráða fram úr hlutum, sem eru
verkefni okkar. Þetta fólk hefur ekki
hugmynd um, að þesskonar einka-
framtak kostar það allmikið meira fé
þar að auki. Fólk virðist enn ekki
hafa hugmynd um, að það getur komið
hingað til mín niður í Hafnarstræti og
fengið skipulagða einstaklingsferð (
smáatriðum — án þess að það þurfi
sérstaklega að borga eyri fyrir þá
þjónustu.
— Geturðu nefnt áþreifanlegt dæmi
um hagnað af því að kaupa farmiða
hjá þér og fara í einstaklingsferð á
vegum Útsýnar, borið saman við hitt,
að farið væri á eigin spýtum?
Einhver skaut því að mér á förn-
um vegi, að fyrsta íslenzka hópferð-
in kringum hnöttinn yrði staðreynd
áður en langt um liði. Það var ekki
meir en svo að ég hefði trú á þeim
orðrómi, en svo vildi svo vel til að
ég hitti Ingólf Guðbrandsson í Útsýn
og fékk að vita það, að ekkert
minna
en allur heimurinn er baráttusvæði
§§| hans. Sem sagt: Hann ætlar að efna
til hópferðar kringum hnöttinn ef nægi-
leg þátttaka fæst — og þátttakan er
nú þegar orðin slík, að líklegast er að af þessu verði.
Þessi ferð markar tímamót í ferðamálum okkar; fram til
þessa hafa fleiri og fleiri farið í lengri og skemmri ferðir
um næsta nágrenni, um nálega gervalla Vestur-Evrópu og
fjöldi manns hefur fótum troðið Norður-Ameríku heimshaf-
anna á milli. Svo ber þess að geta rétt einu sinni, að
heimurinn er alltaf að verða minni og hnattferð er ugg-
laust ekki meira fyrirtæki nú á dögum, en það var að
bregða sér í orlofsferð milli landsfjórðunga á íslandi með-
an allar ár voru óbrúaðar. Samt sem áður, mér liggur við
að segja sem betur fer, þá er heimurinn þó enn ekki svo
Iftill, að ein hringferð með viðkomu í helztu og frægustu
borgum leiðarinnar, tekur ekki minna en mánaðartíma. Hér
verður að fara meðalveg; menn hafa takmarkaðan tíma,
en vilja þó fá ráðrúm til að líta sómasamlega í kringum
sig á hverjum merkisstað. Svo Ingólfur hefur ákveðið að
ferðin taki einn mánuð og einni viku betur.
Ég var víst ekki búinn að geta þess, að Útsýn er elzt
12
VIKAN 33. tbl.
Beirut.