Vikan - 13.08.1964, Side 20
MARGSKONAR
LOSTÆTI
HEITT SARDÍNUBRAUÐ.
Ristið franskbrauðssneiðar Ijósbrúnar, smyrjið og þekið þær
með hálfum útbeinuðum sardínum í olíu eða tómatssósu. Stráið
svolitlu hvítlaukssalti eða hvítlauksmjöli yfir og leggið eina
þykka sneið af sterkum osti ofan á. Bakið í ofni þar til osturinn
er ljósbrúnn. Berið strax á borð.
KJÖTFARS MEÐ KÚMENBÖKUÐUM KARTÖFLUM.
í hakkað kjöt er blandað köldum mörðum kartöflum, nokkr-
um baconsneiðum skornum langsum, smásöxuðum lauk, sem helzt
hefur verið soðin stutta stund fyrst í smjöri, og HP-sósu. Búið
til lengju úr farsinu og leggið í eldfast fat. Penslið með olíu,
sem blandað hefur verið í svolítið af soya (má vera kínversk).
í botninn á fatinu eru settar nokkrar matsk. af vatni, eða rauð-
vínsblöndu eða grænmetissoði og farsið síðan steikt í ca. 20 mín.
við 250 gr. hita. Minnkið síðan hitann niður í 175 gr. og steikið
áfram 1 15-—20 mín. Veljið jafnstórar kartöflur og burstið þær
tandurhreinar, kljúfið þær eftir endilöngu og penslið sárið með
olíu. Saltið og stráið pipar og kúmeni yfir hvern kartöfluhelm-
ing. Annað hvort má raða kartöflunum kringum farsið og steikja
þær með, eða nota annað fat, sem samtímis er sett í ofninn,
en þá er ágætt að strá þykku lagi af grófu salti í botn þess og
leggja kartöflurnar á það. Betra er að hafa kartöflufatið þa á
hillu fyrir neðan kjötið.
SÍLD STEIKT I MÁLMPAPPÍR.
Sé síldin steikt í málmpappír, losnar fólk við lyktina af henni.
Klippið ferhyrninga, ca. 25 cm. á hvern kant og smyrjið þá vel
að innan. Á hvert blað er svo lagt eitt síldarflak, sem hefur
verið þvegið vel og beinin tekin úr og síðan vel þerrað. Yfir
flakið er stráð persilju eða smásöxuðum lauk, svolitlu af krydd-
pipar og smjörbitum. Leggið flökin saman í tvennt og lokið vel
pakkanum. Setjið í eldfast fat og steikið í 20 mín við 250 gr.
hita. Sé óskað eftir sósu, má gera hana með því að blanda karry
eða sinnepi í rjómablöndu.
DJÚPSTEIKTIR KJÚKLINGAR.
Ca. 500 gr. kjúklingar eru skornir í stykki og soðnir í 15 mín.
í vatni með salti, lárviðarlaufi og hvítum pipar. Stykkin tekin
upp úr og látin kólna, en á meðan er gert deig úr: 214 bolla
af hveiti, 1 tsk. pressugeri, 3 matsk. matarolíu og 4 dl. volgu
vatni. Deigið á að hræra eins lítið og hægt er og láta það standa
á köldum stað í Yz—1 klukkutíma. Hitið matarolíu í þykkbotn-
uðum potti upp í 180 gr. Hægt er að prófa hitann með setja
hveitibrauðsmola út í og verði hann brúnn strax er olían hæfi-
lega heit. Skerið kjúklingana í smærri stykki ef vill og kryddið
með salti, hvítum pipar og salvía. Dýfið þeim með gaffli í deigið
og látið renna af þeim andartak, ef óþarflega mikið deig hefur
setzt á þá og sjóðið síðan í olíunni í 10—15 mín. og hafið ekki
of mikið í pottinum í einu. Látið feitina renna af á þykkum
pappír og haldið þeim heitum í ofni meðan hin stykkin eru að
steikjast. Nota má olíuna aftur. Borið fram með salati úr niður-
skornum tómötum og smásöxuðum lauk í edikssósu. Franskar
kartöflur góðar með.
SÚPA ÚR GRÆNUM BAUNUM.
í súpu fyrir 4 er rétt að reikna með 1 hálfdós af grænum
baunum og einum pakka af frystum baunum. í það fer 1 lítill
laukur, IV2 dl. þykkur rjómi, 1 matsk. rifin piparrót og 1 búnt
hreðkur. Laukurinn er saxaður smátt og soðinn mjúkur í svo-
lítilli feiti. Bætið svo niðursoðnu baununum í, en látið soðið
renna af þeim. % 1. vatn með 1 hænsnakjöts-súputening er sett
í og látið sjóða í 5 mín. Búið til smjörbollu úr IV2 matsk. af
smjöri og sama af hveiti og bætið í, látið sjóða aðrar 5 mín. og
blandið þá frystu baununum í og hitið í súpunni. Kryddið með
salti, nýmöluðum hvítum pipar og setjið V2 dl. af rjóma saman
við. Það sem eftir er af rjómanum er svo þeytt og rifinni pipar-^
rót blandað í og svolitlu salti, og sett út á hvern súpudisk. ®
Síðbuxur á síðsumri
Stærð 38-40
Efni: Um 2,10 m. (tvær síddir) af 70 sm. einbreiðu, þéttofnu, nokk-
uð grófu bómullarefni, eða sé efnið tvíbreitt, 1,40 m., þarf eina
sídd, megi munsturs eða efnis vegna sníða annað stykkið upp og
hitt stk. niður. Nægi efnisbreiddin ekki vídd buxnanna má sauma
auka við afturstykkin. í buxurnar þarf 20 sm. langan rennilás.
Búið til sniðin með því að strika ferninga á pappír, 5x5 sm. hvern,
teikna síðan útlínur sniðanna eftir skýringarmyndinni og klippa út.
Mælið nú sídd og vídd snið-
u f anna og mátið hæfilega stærð.
’JL fl <9 Ath. að buxurnar með axla-
T ■BÉ LTVi “7r —1 böndunum ná í mitti, en þær
x 2 1 -1 . með beltinu nokkru neðar.
j r mn t 1 Þessar línur eru greinilega
~ J f 1 merktar á skýringarmyndinni.
~ 1 J L Leggið sniðin á efnið þannig
g £ $JSB að það nýtist sem bezt og ath.
T 0 e jT >9 % að örvarmerki liggi eftir
L —1 ]A þræði. Sníðið streng — eða
~r IJ jr 4h axlabönd eftir jaðri efnisins.
”1 n- V Sníðið hliðar og skálmasauma
~ j 1 J \ 9 með 3ja sm. breiðu saumfari,
~ j | J TS en skref og mittissauma með
_ T r IV2 sm. saumfari.
r 7 V j u Merkið greinilega fyrir
T' 1 saumförum og sniðsaumum
I 8 með þéttri lykkjuþræðingu
f ’ 1 cðii kulkípappii o§ smðalijoli.
r’ Þræðið buxurnar vandlega
1 V m m\\
— - — m — — — Framhald á bls. 48.
2Q — VIKAN 33. tbl.