Vikan - 13.08.1964, Síða 21
Myndin að neðan: Síðbuxur og
skyrta úr venjulegum „poplin“- eða
„kaki“-efnum er mjög vinsæll sport-
klæðnaður til ferðalaga að sumar-
lagi. En það getur líka verið
skemmtileg tilbreytni að klæðast
sportfatnaði að kvöldlagi heima hjá
sér. Þessar myndir sýna okkur sport-
snið, saumað úr upphleyptu jersey-
efni og gerir það flíkurnar efnis-
kenndar og sérlega þægilegar.
Nú eru kaupakonur að mestu úr sögunni, því
miður, og mun dauflegra yfir íslenzkum byggð-
um, síðan traktorar og múgavélar komu í stað-
inn. En sárast eru þeir leiknir sem lifðu í von-
inni um nýja kaupakonu að ári með nýjum æv-
intýrum og fyrirheitum. Enda er kvartað yfir því,
að ungir menn uni sér mun verr við smala-
mennskuna og heyjannir á fósturjörðinni, síðan
kaupakonurnar hættu að sjást. Kaupakonu-
tízkan er þannig um þessar mundir, að kaupa-
konur verða fegurri en nokkru sinni fyrr í brún-
um Kaki-buxum og blússu úr sama efni.
Hún er klædd brúnum „Kaki“-buxum.
Vestið er úr sama efni með venjulegu jakka-
sniði án erma, rúnnuðum hornum og kraga,
einum vasa á vinstri hlið og hneppt að framan
með 4 tölum og nær sú efsta í hæð, aðeins að
miðjum vasa.
Blússan er úr venjulegu Ijósmunstruðu bómull-
arefni með löngum ermum, skyrtuuppslögum
og hneppt upp í háls að framan. Hún er með
litlum hornkraga og er litlu slifsi úr sama efni
hnýtt undir kragann.
VIKAN 33. tbl.
21