Vikan


Vikan - 13.08.1964, Blaðsíða 25

Vikan - 13.08.1964, Blaðsíða 25
STALDRAÐ VIÐ HJÁ VEIÐIGLÖÐUM FRÚM OG BEITNINGA-_____ MÖNNUM ÞEIRRA EITT SÓLBJART SfÐDEGI VIÐ NORÐURÁ. Hrund er greinilega sammála og segir um leið og hún bandar og patar frá sér flugnagerinu, að mýbit fái þeirri staðreynd aldrei grandað, að staðurinn sé „alveg yndislegur“. Kaffið er rjúkandi heitt á könnunni. Eftir að hafa gert hlöðnu borði ráðskonunnar góð skil, höldum við aftur niður með á. Önnur ung hjón verða á vegi okkar fyrr en varir, Gunnar Hansson arkitekt og kona hans, Hulda Steinunn Valtýsdóttir. Þau eru saman um stöng eins og Örn og Hrund, og hér er nákvæmlega hið sama uppi á teningnum — frúin er með'ann á. Við göngum til Gunnars, horfum á leikinn og gætum þess að styggja hvorki fiskinn né veiðimanninn, sem takast á. Hvorugt ætlar að gefa sinn hlut eftir. Laxinn berst fyrir lífi sínu, og enginn ber meiri virðingu fyrir þeirri baráttu en veiðimaðurinn sjálfur. — Gunnar er hinn léttasti og lætur sér vel líka fiskni frúarinnar: „Hún er alveg lúsfiskin“, segir liann. „Bezt gæti ég trúað því, að hann tæki hjá henni, ef hún skrúfaði frá krananum heima. Ég hef hamazt við að beita í allan dag, og hún kvart- ar yfir því að ég sé of seinn. Já, hún er svo sannarlega búin að fá bakterí- una. Hvernig á líka annað að vera á svona stað? Hlýtur að vera ein- hver fallegasti staður á jarðríki. Hér er hægt að lilusta á róna, kyrrðina, fegurðina endalaust“. Þetta síðasta segir Gunnar með svo einlægum alvörusvip, að við efumst ekki um, að þetta séu falslausar veiðimanns- hugleiðingar. Hulda rennir fiskinum upp í vatnsskorpuna. Hann slær um sporð- inum á þurru. Nýrunnin — ferð hennar fyrsta og síðasta í Norðurá var þetta, eins og einhver sagði. „Þá er komið að mér“, segir Gunnar og seilist eftir rotaranum. „Þetta geta þær ekki gert sjálfar, enda „murder in broad daylight“ eins og allir geta séð“. Maðkurinn er svo kyrfilega kokgleyptur, að öngullinn hreinlega finnst ekki! „Þá cr ekki um annað að ræða en að slíta", segir Hulda og er orðin óþol- inmóð. En Gunnar fer sér að engu óðslega og er búinn að beita aftur að lítilli stundu liðinni. „Hún kallar það að „laga maðk- inn“. Sennilega heldur hún, að sami maðkurinn sé alltaf á“. Hulda kær- ir sig kollótta um þessa meinlegu — Og á land náðist hann eftir harða baráttu. Örn Þór aðstoðar frúna. Gunnar Hansson: „Ég hamast við að beita fyrir frúna“.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.