Vikan


Vikan - 13.08.1964, Síða 34

Vikan - 13.08.1964, Síða 34
vísu stundum ýmis sálfræðileg brögð". „Eins og t.d. hvað?" „Ja — við skulum segja að ég hafi mann í yfirheyrslu í sambandi við eitthvað eitt mál, og að mig gruni jafnframt að hann sé við fleira riðinn — hafi fleira á sam- vizkunni. Þá mundi ég e.t.v. hafa skýrsluna um mál hans opna á borð- inu fyrir framan mig, en leggja svo nokkrar aðrar skýrslur á hvolf í bunka við hliðina á henni á borð- inu. Þá fara þeir oft að geta sér til hvað ég viti mikið, hvaða mál verði tekin fyrir næst, og æsa sig upp í allskonar hræðslu og spenning. Svo lýkur þessu eina máli, og ég fer að tala um allt aðra hluti, forðast að minnast á önnur mál, þangað til þeir springa loks af forvitni eða einhverskonar spennu, og fara að játa á sig fleiri afbrot, sem þeir halda að ég viti um, en sé að geyma þangað til síðar. Annað er t.d. að . . . Nei, ann- ars, ég má ekki segja þér meira um þetta, því það kemur alveg upp um okkur, og við getum ekki notað þetta í framtíðinni". „Jæja. Segðu mér þá eitthvað annað. Eitthvað í sambandi við yfirheyrslur, svo ég geti varað mig á þér þegar þar að kemur". „Ég veit svei mér ekki . . . Ann- ars kemur oft ýmislegt skrýtið í Ijós í yfirheyrslum og við hús- leit . . ." „Húsleit? Ekki gerið þið húsleit nema fá um það úrskurð, er það?" „Jú, ef sakborningur leyfir okk- ur að leita hjá sér". „Og er nokkur svo vitlaus að gera það?" „Já, það kemur oft fyrir, og ekki svo gott að komast hjá því. Við erum t.d. að ásaka þá fyrir þjófn- að, en þeir neita. Þá segir maður t.d.: „Ef þú ert svona alsaklaus, þá hlýtur þér að vera sama um það þótt við leitum heima hjá þér?" „Leita? Það er nú líklega. Þið finnið ekkert hjá mér hvort sem er", — segja þeir og vona að maður sé bara að blekkja þá og ætli alls ekki að leita neitt. En þá tekur maður þá á orðinu, skrifar svarið niður á skýrslu, sem þeir undirrita. Og það eru furðulegustu hlutir, sem maður finnur við svoleiðis leit. Einu sinni vorum við með stráka, sem höfðu játað á sig eitthvað smávegis, en við fengum ekki meira út úr þeim, þótt við værum vissir um að þeir hefðu meira á sam- vizkunni. Meðal annars, sem þeir höfðu játað, var þjófnaður á nokkr- um hjólkoppum af bílum. Svo sam- þykktu þeir að við fengjum að leita, en voru þá búnir að gleyma því að þeir höfðu játað á sig hjól- koppaþjófnaðinn. Þegar við komum heim til þeirra, fórum við að spyrja þá um hjól- koppana, hvar þeir væru geymdir. Það kom töluvert á þá, en loks losuðu þeir nokkrar fjalir innan úr súð á háaloftinu, og þar voru hjól- kopparnir geymdir. En þar var líka meira, sem þeir höfðu aldrei játað á sig. Það fund- um við heilan fjársjóð af stolnum munum, og gátum upplýst fjölda innbrota og þjófnaða með því". „En er ekki stundum erfitt að finna stolna muni á heimilum — ef þeir eru ekki faldir, heldur aðeins hafðir þar eins og hverjir aðrir munir?" „Það getur orðið. En oft höfum við svo góða lýsingu á hlutunum, að við getum þekkt þá strax. Og það er t.d. dálitið einkennilegt að finna transistor útvarpstæki eins og þetta þarna á skápnum, falið inni í fataskáp. Eða nýja kvenmanns- skó innpakkaða langt undir dívan o.s.frv." „Hvernig er það í sambandi við innbrot, Haukur, getið þið stund- um fundið sannanir á staðnum, eins og maður les um í reyfurum . . . fingraför, t.d.?" „Já, það er oft að við finnum fingraför og vitum þannig hver þjófurinn er. En við reynum í allra lengstu lög að láta sökudólginn ekkert vita af því. Notum það ekki fyrr en í allra síðasta lagi. En auð- vitað fær dómarinn að vita það". „Hvernig stendur á því?" „Jú, það er einfaldlega vegna þess, að við kærum okkur ekki um að þjófurinn viti að við höfum fingraför hans á skrá. Þá varar hann sig í framtíðinni á því að láta þau sjást. Ef hann veit ekkert um það, má reikna með að hann sé kærulausari með fingraför og að við getum notað þau síðar sem vitneskju eða sönnun gegn honum". „Utlendir Sherlockarar geta fund- ið það út af mörkum eftir verkfæri, hver hefur opnað peningaskáp og svoleiðis. Getið þið það?" „Það er oft. Tæknideildin getur oftast sagt okkur hvaða verkfæri hafa verið notuð, hvaða tegund- ir af kúbeinum, töngum, hömrum og svoleiðis. Stundum vitum við fyrirfram hvaða verkfæri við mun- um finna hjá þjófnum, þegar við náym honum". „Þú átt við að innbrot séu fyrir- fram skipulögð og að menn hafi með sér á staðinn sín eigin verk- færi, rétt eins og handverksmaður?" „Já, mikil ósköp. Það held ég nú. Hér hafa verið til vel og vandlega skipulagðir innbrotsflokkar, sem hafa stolið ógrynni fjár. Það eru ekki ýkjamörg ár síðan að nokkrir menn tóku sig saman um að fara tveim til þrem tímum of snemma í „vinnuna" á morgn- ana, og nota tímann til að brjót- ast inn. Enginn þeirra var undir áhrifum víns, og þeir gengu að þessu „starfi" eins og tæknilegir sérfræðingar og höfðu með sér öll nauðsynleg verkfæri. Þannig tókst þeim að stela töluverðu magni af peningum, og voru orðnir óvenju- færir í faginu. Ég minnist eins þjófnaðar þeirra, sem var svo snyrtilega framkvæmd- ur — ef ég má nota slíkt orð — að engin leið var að finna þar nokk- ur vegsummerki. Þetta var í skrifstofu þar sem miklir peningar voru geymdir í pen- ingaskáp. Það voru aðeins þrír menn, sem vissu hvar lyklarnir að skápnum voru geymdir í opinni skúffur úti í horni skrifstofunnar. Engin ummerki sáust á skápnum, og engan grunaði að innbrot hefði verið framið fyrr en nokkru síð- ar. Þegar við fórum að rannsaka 34 VIKAN 33. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.