Vikan


Vikan - 12.11.1964, Blaðsíða 32

Vikan - 12.11.1964, Blaðsíða 32
NILFISK Nl LFISK bónvélar eins og NILFISK ryksugur: AfburSa verkfæri í sérflokki. ___________________________I, verndargólfteppin - því að hún hefur nægilegt sogafl og afburða teppasogstykki, sem rennur mjúklega yfir teppin, kemst undir lægstu húsgögn og DJÚP- HREINSAR ja.fnvel þykkustu gólf- teppi fullkomlega, þ. e. nær upp sandi, smásteinum, glersalla og öðrum grófum óhreinindum, sem berast inn, setjast djúpt í teppin, renna til, þegar gengið er á þeim, sarga undirvefnaðinn og slíta þannig teppunum ótrúlega fljótt. NILFISK, slítur alls ekki tepp- unum, þar sem hún hvorki bankar né burstar, en hreinsar aðeins með rétt gerðu sogstykki og nægilegu sogafli. Aðrir NILFISK kostir: * Stillanlegt sogafl * Hljóður gangur * Tvöfalt fleiri (10) og betri sogstykki, áhaldahilla og hjólagrind með gúmmíhjólum fylgja, auk venjulegra fylgihluta * Bónkústur, hárþurrka, málning- arsprauta, fatabursti o. m. fl. fæst aukalega. * 100% hreinleg og auðveld tæm- ing, þar sem nota má jöfnum höndum tvo hreinlegustu ryk- geyma, sem þekkjast í ryksugum, málmfötu eða papírspoka. * Dæpialaus ending. NILFISK ryksugur hafa verið notaðar hér- lendis jafn lengi og rafmagnið, og eru flestar í notkun enn, þótt ótrúlegt sé. * Fullkomna varahluta- og við- gerðaþjónustu önnumst við. * Hagstætt verð. * Góðir greiðsluskilmálar. * Sendum um allt land. ORVAL ANNARRA HEIMILISTÆKJA: ATLAS kæliskápar, frystikistpr — BALLERUP hrærivélar — BAIICO eld- húsviftur, tauþurrkarar, gufubaðstofutæki — FERM þvottavélar, þeytivindur, strauvélar — GRILLFIX griilofnar —« FLAMINGO straujárn, úðarar, snúru- haldarar — ZASSENHAUS rafmagnskaffikvarnir, brauð- og áleggssneið- arar — Hraðsuðukatlar, vöfflujárn, brauðristar, eldhúsvogir, baðvogir o.fl. SÍMI 1-26-06 SUÐURGATA 10 REYKJAVÍK ----------------------------Klippið hér--------------------------- — — Undirrit. óskar nánari uppiýsinga (mynd, verð og greiðsiuskilmála) um: ...................................... .............................. Nafn .................................................................... Heimili ................................................................. ii * 'i Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið (il. marz — 20. apríl): Þú ert orðinn alltof þrasgjarn og verður að venja þig sem skjótast af þessum hvimleiða ávana, sem fer í taugarnar á kunningjum þínum. Á sunnudag- inn ferðu í heimsókn eða færð heimsókn sem margt gott á eftir að leiða af sér. ONautsmerkið (21. april — 21. maí): Það er engu líkara en dómgreind þinni hafi farið eitthvað aftur undanfarið, því að þú leggur mikið upp úr fáfengilegustu hlutum. Sennilega stafar þetta af fljótfærni. Þú verður að gefa þér meiri tíma til að íhuga hlutina nánar. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú færð góða gjöf í vikunni og í sambandi við það gerist margt skemmtilegt. Þú hefur ekki sinnt áhugamálum þínum sem skyldi undanfarið og er það miður. Þú virðist óvenjúlega stefnulaus þessa dagana. Þú verður að koma einhverju formi á líferni þitt. Krabbamerkið (22. júní — 23. júií): Þú virðist verja alltof miklum tíma í eintóma draumóra og það er engu líkara en þú þorir ekki að horfast í augu við staðreyndirnar. Taktu nú á þig rögg, útlitið er ekki svo dökkleitt. Heilla- dagur vikunnar verður föstudagur. ©Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú virðist gera þér lífið alltof erfitt þessa dagana. Það er eins og þú búir sjálfum þér til alls kyns mótlæti, sem í rauninni er alls ekki til. Þú verð- ur að reyna að njóta lífsins, þvi þú færð mörg tækifæri til þess. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú munt eiga afar annríkt í þessarri viku, lík- lega eitthvaö í sambandi við heimilið. Þótt ástæða sé til að Ijúka þessu verki sem fyrst, máttu samt ekki leggja of hart að þér. Þú verður að gera þér grein fyrir því, að hóglífi hentar þér bezt. Vogarmcrkið (24. september — 23. október): Þú munt kunna bezt við þig heima við í vikunni og er það vel, því að þú hefur lítið að sækja utan heimilisins. Þú virðist dálítið uppstökkur og móðg- unargjarn þessa dagana, og þótt segja megi, að þú hafir nokkrar málsbætur, þá verðurðu að hafa hemil á þér. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Þú hefur erfitt verkefni að glíma við þessa dag- ana og ekki virðist blása byrlega sem stendur. Gríptu samt fyrir alla muni ekki til örþrifaráða, þó þér fljúgi ýmislegt í hug. Þú getur leyst verk- efni þín með seiglu og iðjusemi. ©Bogamannsmcrkið (23. nóvembcr — 21. dcsembcr): Vikan verður mjög óvenjuleg að flestu leyti. Þú munt í aðra röndina verða mjög heppinn — en eitthvað sérstakt verður þó til að skyggja á gleð- ina. Láttu það samt ekki verða til að draga úr þér kjarkinn, því fátt fæst fyrirhafnarlaust. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þessarri viku mun mjög svipa til viku frá fyrra J mánuði og máttu vel við una. Fólk undir tvítugu verður rækilega fyrir skeytum Amors, en ekki munu þau hafa mikilvæga þýðingu að þessu sinni. Þú skalt varast að sýna náunganum lítilsvirðingu. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þetta verður einkar þægileg og skemmtileg vika. Að vísu gerast engir stórviðburðir, en þú munt kunna að njóta lífsins í ríkum mæli. Þú eignast nýjan kunningja, líklega í sambandi við eitthvert áhugamál þitt. ©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Það hefur borið talsvert á þeim eiginleika þínum, að vilja aldrei viðurkenna, að þú hafir rangt fyr- ir þér, og í þessarri viku mun þessi þrjózka þín draga einhvern dilk á eftir sér. Þú munt fara í skemmtilegt samkvæmi, líklegast um helgina. m TU FÖNXX sX, Suðurgötu 10, Reyltjavlk.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.