Vikan - 12.11.1964, Blaðsíða 28
ÞAR HEFUR TÍMINN SÉRSTAKAN GANG
um, sem mundu sóma sér í hverri höll og kvenþjóðin fór að
inna hreppstjórann eftir því, hvort postulínið væri ekki æva-
gamalt. „Þetta er nú víst nýja stellið," sagði Jónas, „það er
40 ára. Gamla stellið er hins vegar 80 ára." Einhver lét í
Ijós áhuga á því að fá að sjá það, en hreppstjórinn eyddi
því með hógværð. Það var einhversstaðar niðri í kistu.
Mér fannst timinn hafa annan gang í þessum bæ en utan
hans. Rósemin sem ríkti þar var næstum því áþreifanleg,
kapphlaupið við tímann eða öllu heldur tímaleysið líklega
óþekkt fyrirbrigði. Út um örsmáar rúður gluggans sást niður
í matjurtagarðinn, þýfða brekkuna þar fyrir neðan og síðan
í Laxá milli hraunnefjanna,- allt svo rótgróið og staðfestulegt
með svip aldanna fremur en áranna.
Uppi undir lofti í stofunni á Þverá er vegleg Ijósmynd af
Jóni Jóakimssyni, bónda á Þverá og afa Jónasar hreppstjóra.
Hann var reffilegur karl með stórt alskegg eins og tilhlýðilegt
þótti á þeirri tíð, mætur dugnaðarmaður og stórbætti jörð-
ina. Það var raunar hann, sem á heiðurinn af því að hafa
byggt þennan bæ, sem enn stendur elztur bæja. Þá mun hafa
verið talið prýðilega byggt á Þverá og það hefur kannski
verið ein ástæðan fyrir þvi, að vagga samvinnuhreyfingar-
innar stóð einmitt þar.- Kaupfélag Þingeyinga, fyrsta kaupfélag
á íslandi, var stofnað á Þverá veturinn 1882. En ástæðan mun
einnig hafa verið sú, að einn aðal hvatamaðurinn að stofn-
un félagsins, Benedikt, síðar kenndur við Auðnir, var einmitt
sonur Jóns bónda á Þverá og átti líklega heima þar um þetta
leyfi. Vegna þessa hefur það þótt koma til greina, að Kaup-
félag Þingeyinga eignaðist og varðveitti þennan gamla bæ,
þegar hætt verður að búa í honum og væri það vel til fallið.
Ein ástæða þess, hvað bærinn á Þverá hefur staðið vel
af sér árin er sú, að þil og yfirgerð voru byggð úr rekaviði
utan frá Skjálfandi eða Tjörnesi, sem fluttur var á hestum
upp að Þverá og síðan ristur niður í borðvið og bita með
handafli. Má nærri geta, að það hefur verið bæði mikið verk
og erfitt.
Jón bóndi Jóakimsson lét ekki staðar numið við bæjar-
bygginguna, en byggði siðar veglega kirkju, sem enn stend-
ur með sömu ummerkjum, enda verður hún að teljast ein
þeirra sárafáu bygginga, sem byggðar voru úr varanlegu efni
á 19. öldinni. iKrkjan var byggð út tilhöggnu grjóti, sem tek-
ið var í fjalIshlfðinni á móti, handan árinnar. Það var flutt
yfir um á ísum og límt saman með kalki. Og vegna þess
að þannig var um búið, þá mun þessi kirkja að líkindum
Framhald. á bls. 48.
Hór situr hreppstjórinn í stóssstofunni ó Þverá. Loftið er blá-
má'að en viðark’æðning neðan til á veggjum. Stóra myndin
er af Jóni Jóakimssyni, sem byggði bæinn. O
28 — VIKAN 46- tbl-
Ekta silki-fegrunarmeðul
Hún er stúlkan, sem notar silki næst húðinni . . . svo hún fær töfrandi
Ijóma . . . Ekta silki andlitspúður. . . Silki dagkrem og silki MINUTE
MAKE UP (hún tekur það auðvitað með sér hvert sem hún fer). Aðeins
silki þekur svo dásamlega.
NÚ I NÝJUM HYLKJUM
Stórkostlegt litaúrval
Skýrar og eðlilegar varalínur
Hinn nýi tízku varalitur frá Helene Rubin-
stein er lengri og grennri en annar vara-
litur, sem þér hafið áður notað. Árangurinn
- þér fáið fullkomnari línur og mjúka
áferð á varir yðar með aðeins einni
yfirferð! Reynið hina nýju tfzkuliti.
V