Vikan

Útgáva

Vikan - 04.02.1965, Síða 13

Vikan - 04.02.1965, Síða 13
 Wé Si •..> '• •• . •*. IJI’f . * 5 .. & & §P | Œ ': ' $ 'Y, •'• y — Mér finnst hún alls ekki passa fyrir pabba, sagði ég. Andartak hélt ég að við færum að rífast aftur, en hann horfði bara hugsandi á mig og bauð mér góða nótt með kossi. Hann hefði eins vel getað sagt mér hvað hann hugsaði, því að það var ekki ný bóla fyrir mig að heyra það að ég sé þrákálfur. En ég skal fúslega játa, að þetta með fröken Stark war misheppnað. Á mánudagskvöldið gerðu pabbi og Jim ekkert annað en að bæta stöðugt í glösin sín, og sagnirnar þeirra voru brjálsæðis- lega háar, þegar líða tók á kvöldið. Hvað frök- en Stark viðvék, reyndi hún að ganga í augun á pabba með því að koma sér í miúkinn hjá mér. Allar konurnar sem vildu giftast pabba reyndu raunar þessa aðferð. Þær voru ýmist móðurleg- ar, eins og eldri systir eða hjartans vinkona. Þær voru vanar að leggia handlegginn um axlir mínar og skotra svo augunum í áttina til pabba, til þess að vita hvort hann tæki ekki eftir þessari hrífandi mynd. Ég sá þetta allt, en hann virtist aldrei taka eftir neinu. Viku seinna bauð ég frú Driver, ekkiu sem var raunar svolítið eldri en pabbi, en hreinn meistari í öllu sem að húshaldi laut. Það kom á daginn, að hún hafði aldrei eytt sínum dýr- mæta tíma í það að læra að spila bridge, svo að kvöldið leið þannig, að hún rakti upp peys- una, sem ég var að prjóna, og var næstum búin með, til þess að sýna mér hvernig ég ætti að byrja rétt, en pabbi og Jim æfðu sig með golf- kylfunum á stofugólfinu. Ég hafði aldrei getað ímyndað mér að það væri svona erfitt að koma hjónabandi á lagg- irnar. Að lokum fór ég að ráðum Jims og náði í frú Taylor, hina kátu ekkju. Það var erfið- asta kvöld, sem ég hefi upplifað. Og ( hálfan mánuð gekk pabbi um eins og örkumlamaður, eftir að hafa reynt að dansa twist þetta kvöld. Það var í raun og veru mikill léttir fyrir mig að pabbi þurfti að fara til New York í aprfl, til að vera á ráðstefnu fyrir prent- smiðjueigendur. Jim og ég hættum alveg að jagast, höfðum það alveg dásamlegt og hugs- uðum eingöngu um okkar eigin framtfðaráætl- anir. Pabbi þurfti alltaf að hitta fjölda manns þegar hann fór til New York, þar sem flestir við- skiptavinir hans voru fyrirtæki og bókaforlög þar í borg. En löngu eftir að ég var farin að búast við honum heim, hringdi hann eitt kvöld- ið, og sagðist ekki koma heim fyrr en eftir átta til tíu daga. — Hvaða hávaði og hljóðfærasláttur er þetta í kringum þig? spurði ég. — O, ég er bara úti að skemmta mér með nokkrum viðskiptavinum. Þú veizt hvernig New York-búar eru, þeir vilja gjarnan sýna okkur vesalingunum útan af landsbyggðinni hvernig þeir skemmta sér. — Jæja þá, mundu bara að fara varlega með bakið á þér. — Bakið á mér er í bezta lagi, sagði hann. Og áður en ég gat maldað f móinn, varð hávaðinn af hljómsveitinni svo mikill, að ég neyddist til að leggja -á. — Gott var það, sagði Jim, — það hefði bara eyðilagt fyrir honum skemmtunina, að vita að þú ert með áhyggjur af honum. Franiliald á bls. 30. VIKAN 5. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.