Vikan

Eksemplar

Vikan - 25.02.1965, Side 32

Vikan - 25.02.1965, Side 32
ELDHÚS RÚLLAN HUSMÆÐUR! 1001, eldhúsrúllan er fram- leidd sérstaklega fyrir notkun í eldhúsum ykkar og hjálpar ykkur viö dagleg störf. ELDHUSRULLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI * ^pyjupnstp Stjörnuspáin gildii frá fimmtudcgi til fimmtudags. IlrútsmcrkiS (21. marz — 20. apríl); Þú færð gott tækifæri á vinnustað til að maka krókinn. Þú verður fyrir óþægilegum aukaútgjöld- um, en með aðstoð fjölskyldunnar og góðra vina, tekst þér að standa undir því. Þú ættir að létta þér örlítið upp. Nautsmerkið (21. apríl — 21. mai): Þú ættir að athuga framferði þitt í því ljósi, § að einhver annar hefðist hið sama að. Þér geng- ur vel i starfi þínu. Þú hefur um margt að hugsa á fjármálasviðínu. Gættu þín á eldri manni, sem þú umgengst nokkuð, hann vill þér ekki vel. Tvíburamerkið (22. maí —. 21. júní): Þú færð gjöf, sem þú þarft að dútla nokkuð við, áður en hún gerir sitt gagn. Vinur þinn, sem þú heimsækir býðst til að gera þér greiða. Þú skait fara í þau fjölskylduboð, sem þér er boðið í, þó það sé á móti vilja þínum. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Það sem eyðileggur fyrir þér að njóta lífsins er hin sifellda peningagirnd þín. Ef þú lítur í kring- um þig sérðu að þú vanrækir nokkuð, sem er miklu meira virði. Vinkona þín gerir þér mjög góðan greiða. Ljónsmcrkið (24. júlí — 23. ágúst); Til þess að geta annað öllu því, sem að þér steðjar, þarftu að hafa öll spjót úti. Kunningjar þínir verða fyrir leiðinlegum svikum. Þú átt góð- an vin, sem þú ættir að leita til með vandræði þín. Heillatala er 2. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. scptember): Þú ert óneitanlega í nokkuð slæmri aðstöðu en eins og stendur þýðir ekkert annað en að vera þolinmóður. Þú verður fyrir útgjöldum vegna hlut- ar, sem vinur þinn pressar inn á þig, en síðar, og það veiztu nú þegar, blessarðu hann fyrir það. Vogarmerkið (24. septembcr — 23. október): í gegnum kunningja þinn eignastu vin, sem hefur sama áhugamál og þú. Samvinna ykkar í milli gæti orðið afbragðsgóð ef þið farið varlega í sak- irnar. Þú færð hlut, sem þú lánaðir fyrir mörg- um árum, til skila. Drekamerkið (24. októbcr — 22. nóvember); Þú verður þátttakandi í rausnarlegri gjöf. Nokk- ur fjárútlát verða í sambandi við lúxushlut i þinni eigu. Vinur þinn heimsækir þig og færir þér gjöf, að líkindum góðan listmun. Vertu sem mest heima- við. Heillatala er 8. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Ef þú vilt njóta starfskrafta þinna og getu verð- urðu að treysta á sjálfan þig. Ef þú vilt verða sjálfstæður þarftu að brjóta margar brýr að baki þér. Þú ættir að notfæra þér þau tækifærl og sambönd, sem þú hefur, betur. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): iÞii ert með samvizkubit vegna aðgæzluleysis þíns. V Þú verður fyrir áreitni ofstækismanns. Þú ættir —að verja einhverju af vasapeningunum þínum til að gleðja aðra. Hollasta tómstundaiðjan er lest- ur góðra bóka. VatnsberamerkiS (21. janúar — 19. febrúar): Flutningar, sem eiga þó ekki við þig, verða engu að síður til nokkurra hagsbóta fyrir þig. Þú munt nokkuð þurfa á diplómatiskum hæfileikum að halda. Tilviljunarkenndur atburður vekur þig til umhugsunar. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú hefur ágætt tromp á hendinni, sem þú skalt nota þér á varfærinn hátt, með því móti gæt- irðu haft góðan slag. Þú ættir að anna meir þeim ritstörfum, sem pressa samvizkuna. Þú ferð £ skemmtilegt boð. 02 VIKAN 8. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.