Vikan

Tölublað

Vikan - 01.07.1965, Blaðsíða 30

Vikan - 01.07.1965, Blaðsíða 30
einuðu þióðunum var Thor Thors til dauðadags 1965. íslandingar tóku einnig þótt í starfsemi Evrópuráðs- ins. Sendiherrum Islands er fjölgað, og tekið upp stiórnmálasamband við æ fleiri ríki. (slenzkir ráðherrar fara í allmargar heimsóknir til út- landa, og erlendir ráðherrar heim- sækja Island. Norræn samvinna efl- ist, og fjölmörg Norðurlandamót eru haldin á íslandi. Alger tæknibylting verður í land- inu á nær því öllum sviðum at- vinnulífsins. Iðnaður verður sá at- vinnuvegur, sem flestir landsment, siunda. Fjölmörg smá iðnfyrirtæki vaxa upp. Mestur er iðnvöxturinn í Reykjavík og á Akureyri, en iðn- aður berst einnig til annarra kaup- staða, þorpa og jafnvel sveita. Og stóriðja heldur innreið sína í land- ið. Aburðarverksmiðja er reist í Gufunesi og sementsverksmiðja á Akranesi. Eftir 1960 er farið að athuga möguleika á aluminíumiðn- aði og kísilgúriðnaði. Deilur hefjast um það, að hve miklu leyti skuli stuðzt við erlent fjármagn við upp- byggingu stóriðju í landinu. Farið er að vinna að vinnuhagræðingu í iðnaði og á fleiri sviðum. Sjávarútvegurinn tekur ýmisleg- um breytingum. FiskiskipastólIinn er endurnýjaður, fjöldi nýrra fiskiskipa kemur til landsins. Togararnir eru oftast reknir með tapi, og þeim tekur að fækka, er á líður, sumir þeirra eru seldir úr landi. Hins- vegar fjölgar mjög stórum vélbát- um og miðlungsstórum vélskipum. Hraðfrystingin verður æ mikilvæg- ari verkunaraðferð, freðfiskur verð- ur mikiivægasta útflutningsvara Is- lendinga. Frystihúsum fjölgar, tala þeirra tekur að nálgast hundraðið. Og skreið verður mikilvæg útflutn- ingsvara, eins og hún var í fyrnd- inni, hún er seld í stórum stíl til Nígeríu og fleiri landa. Saltfiskur og þó einkum ísfiskur verða hins- vegar ekki eins mikilvægar útflutn- ingsvörur og áður, þótt enn hafi þeir verulega þýðingu. Og alltaf er síldin þjóðinni mikilvæg, þótt hún valdi mörgum sárum vonbrigð- um sum árin. Síldveiðarnar við Suð- urland verða miklu mikilvægari en áður. Sumarsíldveiðarnar taka að færast austur fyrir landið, en minnka við Norðurland, þetta veld- ur atvinnukreppu á Siglufirði og víðar á Norðurlandi, en síldarverk- smiðjur þjóta upp á Austfjörðum. Seyðisfjörður verður aftur mikill síldveiðibær, eins og var á fyrstu árum hinna íslenzku síldveiða á 19. öld. Allskonar ný veiðitækni er tek- in upp í sambandi við síldveiðar. Teknar eru upp margvíslegnar nýj- ar verkunaraðferðir á síld, eink- um þó frysting. Freðsíld verður mik- ilvæg útflutningsvara. Karfinn verð- ur íslendingum mikilvægur fiskur á áratugnum milli 1950 og 1960. Hann er þá mikið veiddur við Græn- land og Nýfundnaland. En karfa- veiðin tekur að þrjóta, og mjög dregur úr þýðingu karfans. Grá- sleppuhrogn verða útflutningsvara og grásleppuveiðar talsverð búbót, ekki sízt í ýmsum útkjálkahéruðum. Humarveiði er tekið að stunda í stórum stíl við Suðurland. Hinsveg- ar dofnar þegar á líður, heldur yf- ir rækjuveiðinni á Vestfjörðum. 1948 tekur til starfa hvalveiðistöð í Hvalfirði, og hvalveiðarnar verða talsvert mikilvægur atvinnuvegur. Farið er að gera tilraunir með ála- veiðar, og laxaklakstöðvum er all- víða komið upp. 1952 er gefin út reglugerð um verndun fiskimiða við (sland, og eru þá botnvörpuveiðar bannaðar við landið innan línu, sem dregin er fjórar mílur út af yztu nesjum og eyjum fyrir firði og flóa. Brezkir útvegsmenn svara þessu með því að leggja löndunarbann á íslenzk- an ísfisk í brezkum höfnum. 1958 er gefin út reglugerð um tólf mílna fiskveiðilandhelgi. Brezkir togarar halda þó áfram að veiða innan hinnar nýju landhelgi í skjóli her- skipa og verða ýmislegir árekstrar milli þeirra og íslenzku varðskip- anna. Gengur á þessu annað veif- ið þar til 1961 að gerður er samn- ingur við Breta, þar sem brezkum togurum er leyft að veiða milli sex- og tólf mílna markanna næstu þrjú árin. Þessari undanþágu lauk því 1964. Það fækkar í íslenzkum sveitum. Margar jarðir fara í eyði, sums- staðar heil byggðarlög. svo sem nyrsti hluti Vestf jarðakjálkans. Hinsvegar er reynt að hamla gegn eyðingu sveitanna með stofnun ný- býlahverfa á heppilegum stöðum. Nú er véltæknin fyrir alvöru tekin í þágu íslenzka landbúnaðarins. Allir bændur eignast vinnuvélar, og ræktunarframkvæmdir eru geysi- miklar með skurðgröfum og öðrum mikilvirkum vélum. Heyið er tek- ið á ræktuðu landi, útheyskapurinn hverfur að miklu leyti. Farið er að rækta upp afrétti og heiðalönd með áburðardreifingu og sáningu úr flugvélum. Mikið er unnið að skóg- rækt. íslenzkt og norskt skógræktar fólk skiptist á heimsóknum. 1964 er fprið að koma upp skógræktar- stöð á Kjalarnesi, að nokkru leyti fyrir gjöf frá Norðmönnum. Það dregur úr sauðfjárpestum, en þó eru þær að skjóta upp kollinum öðru hverju. Þrátt fyrir strauminn úr sveitunum fá íslenzku sveitirnar á sig nýtízkulegri svip. Vönduð íbúð- arhús rísa upp. I mörgum sveitum og þorpum eru byggð félagsheim- ili, svo að aðstaða til félagslífs verður allt önnur en áður var. Víða í sveitum eru byggðir heimavistar- skólar. Rafmagn kemur á sveita- bæina á stórum svæðum, og heita LILUU LILJU LILJU Lilju dömubindi fást með og án lykkju. í þeim er bæði vatt og bómull og silkimjúk voð. Lilju bindi eru því sérstaklega þægileg. Biðjið um pakka af Lilju bindum næst, þegar þér þurfið að kaupa þessa vöru. Lilju bindi eiga aö fást í næstu búö. MÚLALUNDUR Ármúla 16 — Sfmi 38-400. 2Q VIKAN 26. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.