Vikan - 08.07.1965, Page 32
. ,< ///> >J
í'D» torj?t HÁr
Nú er það komið, VO-5 vinsælasti hárhreins-
ir (shampoo) Bandaríkjanna, sem gerir hár-
ið nákvæmlega eins og þér viljið hafa það.
Stendur hárið venjulega út í loftið eftir
þvottinn? Ekki lengur. Ekki með VO-5. Ger-
ið VO-5 að yðar hárhreinsi — og það verður
barnaleikur að leggja hárið.
ÍHAMPDO.
VO-5 með 5 starfrænum efnum: 3, sem
gera hárið hreint, glansandi og vellykt-
andi. 2, sem gera hárið mjúkt og viðráð-
anlegt — eins og þér viljið hafa það.
EINKAUMBOÐ:
J. P. GUÐJÓNSSON H.F.
Skúlagötu 26. — Sími 11740.
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú hefur mikla möguleika til að láta verk þín ganga
vel, en þó er hætt við að þú tapir nokkrum fjár-
munum vegna fljótræðis og athugunarleysis. Ætt-
ingi þinn reynist þér mjög hjálplegur við vissar
framkvæmdir.
©Nautsmcrkið (21. apríl — 21. maí):
Þú átt í erfiðleikum með að umgangast ákveðna
persónu og er grunnt á að upp úr sjóði milli ykkar.
Þú ættir að grípa hvert tækifæri sem gefst til að
létta þér upp og dreifa huganum. Gerðu vini þín-
um greiða, eins og hann biður þig.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú verður mjög heppin í einhverju sem má teljast
algjör slembilukka. Þú færð erfiðan verlcstjóra sem
þú fyrst í stað getur alls ekki gert til hæfis, en
hafðu hugfast að þolinmæðin þrautir vinnur allar.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú munt þurfa að standa í nokkrum útréttingum
sem taka á taugarnar. Þér er fyrir beztu að taka
boði gamals kunningja þíns og láta hann hjálpa þér
í ákveðnu máli. Þú verður þátttakandi í mjög
skemmtilegu samkvæmi.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Þú verður að hafa nokkurt samneyti við persónu
sem þú kemst að einhverjum sökum ekki fyllilega
í samband við. Verkefni þín verða mörg og fjöl-
breytileg en gættu þín vel í sambandi við allt er
varðar tölur í starfi þínu, að gera ekki axarskaft.
Meyjarmcrkið (24. ágúst — 23. september):
©Það eru líkur á stuttu en skemmtilegu ferðalagi
sem þú munt oft minnast síðar og hafa góð sam-
bönd í gegnum einhverja eða einhvern sem þú
kynnist við það tækifæri. Vertu þolinmóður við
yngri kynslóðina, hún hefur einnig sín vandamál.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Varastu að treysta um of á náungann. Eins og
stendur verðurðu að haga orðum þínum mjög gæti-
lega í nærveru ákveðinna persóna og gættu þess að
gerast ekki sekur um afskiptasemi af einkamálum
annarra. Heillalitur er rósrauður.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember).
Verkefni þín verða með nokkru öðru móti en þú
hafðir búizt við. Líkur eru á að þú tapir af einhverju
sem þú hafðir fyllilega reiknað þér. Gættu þess að
binda huga þinn ekki of mikið við fjármálahliðina
á hlutunum. Þú hefðir gott af að taka þér frí.
Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember):
©Þú færð sendingu nokkuð langt að komna sem kem-
ur þér á óvart. Einhver ættingi þinn skýtur upp
kollinum og þið eigið ánægjulegar samverustundir.
Heillatala er 2.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
©Ákveðinn maður verður til þess að þú leggur í
framkvæmdir sem þú hafðir ekki kjark til að byrja
á sjálfur. Vertu mjög varkár og notfærðu þér holl
ráð og skýra dómgreind þína. Þú þarft að standa í
leiðinlegu máli vegna fjölskyldunnar.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú hefur smá breytingar í huga varðandi bústaða-
skipti eða eitthvað þessháttar. Allar breytingar á
högum þínum ættu að lánast mjög vel eins og
stendur. Þú verður beðinn að taka þátt í verki sem
þér fellur miður en getur ekki neitað.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Nokkur ungmenni koma sérstaklega við sögu í þess-
arri viku og verða fremur til ánægju en hins. Þú
átt í einhverjum deilum við persónu sem býr ekki
fjarri heimili þínu. Vertu ekki of naumur á fé
við sjálfan þig eða þína nánustu.
vikan zi. tbl.