Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 08.07.1965, Qupperneq 32

Vikan - 08.07.1965, Qupperneq 32
. ,< ///> >J í'D» torj?t HÁr Nú er það komið, VO-5 vinsælasti hárhreins- ir (shampoo) Bandaríkjanna, sem gerir hár- ið nákvæmlega eins og þér viljið hafa það. Stendur hárið venjulega út í loftið eftir þvottinn? Ekki lengur. Ekki með VO-5. Ger- ið VO-5 að yðar hárhreinsi — og það verður barnaleikur að leggja hárið. ÍHAMPDO. VO-5 með 5 starfrænum efnum: 3, sem gera hárið hreint, glansandi og vellykt- andi. 2, sem gera hárið mjúkt og viðráð- anlegt — eins og þér viljið hafa það. EINKAUMBOÐ: J. P. GUÐJÓNSSON H.F. Skúlagötu 26. — Sími 11740. Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú hefur mikla möguleika til að láta verk þín ganga vel, en þó er hætt við að þú tapir nokkrum fjár- munum vegna fljótræðis og athugunarleysis. Ætt- ingi þinn reynist þér mjög hjálplegur við vissar framkvæmdir. ©Nautsmcrkið (21. apríl — 21. maí): Þú átt í erfiðleikum með að umgangast ákveðna persónu og er grunnt á að upp úr sjóði milli ykkar. Þú ættir að grípa hvert tækifæri sem gefst til að létta þér upp og dreifa huganum. Gerðu vini þín- um greiða, eins og hann biður þig. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú verður mjög heppin í einhverju sem má teljast algjör slembilukka. Þú færð erfiðan verlcstjóra sem þú fyrst í stað getur alls ekki gert til hæfis, en hafðu hugfast að þolinmæðin þrautir vinnur allar. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú munt þurfa að standa í nokkrum útréttingum sem taka á taugarnar. Þér er fyrir beztu að taka boði gamals kunningja þíns og láta hann hjálpa þér í ákveðnu máli. Þú verður þátttakandi í mjög skemmtilegu samkvæmi. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): ©Þú verður að hafa nokkurt samneyti við persónu sem þú kemst að einhverjum sökum ekki fyllilega í samband við. Verkefni þín verða mörg og fjöl- breytileg en gættu þín vel í sambandi við allt er varðar tölur í starfi þínu, að gera ekki axarskaft. Meyjarmcrkið (24. ágúst — 23. september): ©Það eru líkur á stuttu en skemmtilegu ferðalagi sem þú munt oft minnast síðar og hafa góð sam- bönd í gegnum einhverja eða einhvern sem þú kynnist við það tækifæri. Vertu þolinmóður við yngri kynslóðina, hún hefur einnig sín vandamál. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Varastu að treysta um of á náungann. Eins og stendur verðurðu að haga orðum þínum mjög gæti- lega í nærveru ákveðinna persóna og gættu þess að gerast ekki sekur um afskiptasemi af einkamálum annarra. Heillalitur er rósrauður. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember). Verkefni þín verða með nokkru öðru móti en þú hafðir búizt við. Líkur eru á að þú tapir af einhverju sem þú hafðir fyllilega reiknað þér. Gættu þess að binda huga þinn ekki of mikið við fjármálahliðina á hlutunum. Þú hefðir gott af að taka þér frí. Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember): ©Þú færð sendingu nokkuð langt að komna sem kem- ur þér á óvart. Einhver ættingi þinn skýtur upp kollinum og þið eigið ánægjulegar samverustundir. Heillatala er 2. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): ©Ákveðinn maður verður til þess að þú leggur í framkvæmdir sem þú hafðir ekki kjark til að byrja á sjálfur. Vertu mjög varkár og notfærðu þér holl ráð og skýra dómgreind þína. Þú þarft að standa í leiðinlegu máli vegna fjölskyldunnar. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú hefur smá breytingar í huga varðandi bústaða- skipti eða eitthvað þessháttar. Allar breytingar á högum þínum ættu að lánast mjög vel eins og stendur. Þú verður beðinn að taka þátt í verki sem þér fellur miður en getur ekki neitað. ©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Nokkur ungmenni koma sérstaklega við sögu í þess- arri viku og verða fremur til ánægju en hins. Þú átt í einhverjum deilum við persónu sem býr ekki fjarri heimili þínu. Vertu ekki of naumur á fé við sjálfan þig eða þína nánustu. vikan zi. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.