Vikan - 22.07.1965, Side 8
Allt í útileguna
Urval af tjöldum, íslenzk og erlend með stólsúlum
og föstum botni.
2ja manna
3ja —
4ra —
5 -
5 — m/himni
6 -
Svefnpokar, 10 gerSir. — Enskir dún-svefnpokar,
3 gerSir. — Norskur dún-svefnpoki. — Pottasett,
5 gerSir. — Vindsængur, 4 gerSir.
fP ■’l L í T I Ð í GLUGGANA.
m 'v:;?
ff-* nzr\ AthugiS góS bílastæði.
Skátabúðin
Sálnahirðar
Sálnahirðarnir — The Soul Agents — hafa orðið hvað þekktastir
af plötum sínum „Mean Woman Blues“ og „The Seventh Son“ og
þykja harla lagtækir í lögunum. Nafnið, Sálnahirðarnir, fundu þeir
á þann hátt, að þeir ráku augun í auglýsingaskilti frá hjálpræðishem-
um, sem á stóð: VIÐ ERUM SÁLNAHIRÐAR PYRIR ÞETTA HVERFI.
Og þetta kom þeim á sporið. Og svo fáið þið hérna smá æviágrip frá
þeim: ....
JOHNNY KEEPING. Fæddur 25. júní 1944 í Southampton. Hefur
sungið í skólakór og unnið í veggfóðurverksmiðju föður síns. Þykir
gaman í partíum.
TONY GOOD. Fæddur í Southampton 5. sept. 1942. Lærður trésmið-
ur og hefur auk þess stundað gítarnám í fimm ár. Spilar á gítar.
ROGER POPE. Fæddur í Southampton 20. marz 1946. Var rekinn úr
klæðskeranámi, af því hann neitaði að láta stuttklippa sig. Gerðist
þá bílþvottamaður, en var rekinn, af því hann vildi sjálfur skammta
sér kaffitíma — og lengd þeirra. Hann leikur á trommur.
JIM SACH. (James Victor George Raphael Sach). Fæddur í Suður-
Afríku 13. maí 1944. Hefur verið aðstoðarmaður bókara, en leikur
gítar og golf.
DON SHINN. Hann er fæddur 15. des. 1945. Hann byrjaði í hem-
um, en keypti sig út fyrir 9600 krónur í des. 1963. Hann er útlærður
organleikari.
Dýrir dropar
Við þorum varla að birta þessa frétt í VIKUNNI, því við vitum
að henni verður ekki vel tekið af fjölda lesenda. En sannleikurinn
er sá, að tveir danskir dánumenn hafa fengið þann starfa að standa
við dag og nótt og hella niður í vaskinn innihaldinu úr einni milljón
bjórflöskum ■— dönskum bjór, auðvitað.
Brugghúsið Stjarnan (Stjernen) fór semsé á hausinn, og allar til-
raunir til að selja bjórinn ódýrt hafa af einhverjum ástæðum mis-
tekizt. Þeir hefðu átt að reyna hérna heima.
Nú en ekki gátu þeir heldur gefið bjórinn, því Danir hafa líka
skattstjóra eing pg við, óg hann krafðist þess að skattur væri greidd-
ur af bv<yri flösku', sem út úr brugghúsinu fór, jafnvel þótt svöná
staeði á. Og brúgghúsið ha®i ekki ráð á þvi Þessvegna fór sem fór,
og mú er bjórino váfalhust allur kominn í vaskinn, — eð!a vántar nokk-
\rrii virúju...
-------- ------- -----■— _________________________ ■■ ------------—/
g VIKAN 29. tW.