Vikan

Útgáva

Vikan - 02.09.1965, Síða 22

Vikan - 02.09.1965, Síða 22
^Fpamhaldssagafeftir Whit Masfierson 7. hlufii úr búðinni. Þegar Hub kom ó eftir honum, sagði hann: — Það er bezt, að þér akið. Ég er ekki í skapi til að eiga við umferðina. Andy hafði eitt í hyggju með þessu: Meðan Hub væri önnum kafinn við að aka, myndi hann ekki taka eftir bung- unni, sem skambyssan myndaði ó jakka Andys. Gat hann í raun og veru gert sér nokkra von um, að vinna þennan risa á jafnfætis grundvelli? Hann var ekki viss um það. Gerði hann ekki rétt í því að leita aðstoðar, hversu óörugg, sem hún myndi vera? — Nei, hann vissi, að hann ótti engra kosta völ. Hann varð að heyja þessa baráttu einn, eða alls ekki. Allt í einu minntist hann gamla knattspyrnuþjálfarans síns, þegar þeir áttu að spila á móti liði, sem var sérlega hart í horn að taka, hafði hann alltaf aukið þeim kjark, með því að segja: — Þeir eru aldeil- is ekkert öðruvísi en þið; þeir geta ekki farið í nema aðra skálmina í einu. Þetta hafði haft góð áhrif þá. Ef til vill var einnig hægt að nota það nú. Hub var enginn supermað- ur. Það hlaut að vera hægt að fella hann. Andy vissi, að hann gat ekki barizt við reynslu og vöðvaafl, en hann hafði sína skynsemi — og nú hafði hann einnig vopn. Þegar hann komst í einveruna uppi í herbergi sínu, sá hann, að vopnið kom honum ekki að neinu haldi. Stolna skambyssan var .32, en skotfærin, sem hann hafði keypt sér, voru .38. Svo hann varð að nota skynsemina eingöngu. En það varð að gerast með list og umhugsun. Ennþá stóð hann ekki nógu vel, til að geta mætt óvininum jafnfætis. Hann tók símann og hringdi til framkvæmdastjóra síns. Vecchio var þreyttur og niður- dreginn. — Ég hafði hugsað mér að heimsækja þig seinna í dag, Andy. Við neyðumst til að taka einhverj- ar ákvarðanir varðandi framtíðina. Það lítur út fyrir, að þeir sem ætluðu að standa fjárhagslegan straum af fyrstu kvikmyndinni þinni, séu nú að draga sig til baka. Þeir segja, að þetta mál muni skaða kvikmynd- ina, þegar hún kemur fram. — Við getum athugað það seinna, sagði Andy og hafði ekki minnsta áhuga. Svo bætti hann við, eins og af tilviljun: — Heyrðu annars, Rocco — ég hringdi eiginlega til að biðja þig að senda mér ýmiskonar upplýsingar um þá, sem vinna fyr- ir mig. Lögreglan hefur spurt mig mikið út úr um þessi mál, en ég veit svo sáralítið um þau. — Ég skal senda þér þær undir eins. En hvernig gengur þér annars, Andy? Mér finnst annað hljóð í þér en venjulega. — Ætli það sé ekki af því að ég er ennþá timbraður, svaraði Andy. Hann var þakklátur fyrir viðvörun- ina. Ef Vecchio gat í gegnum sim- ann fundið hinn nýja viljastyrk hans, varð hann að gæta sín sér- staklega vel, þegar hann stóð frammi fyrir þeim, sem hættuleg- astur var. Hann varð að halda áfram að leika hlutverk hins ráð- vilta kjána; það var bezta vörnin. En myndi líða nokkur tími, áður en Andy fengi plöggin, og hann fann með sér óviðráðanlega starfs- löngun. Ónothæfa skammbyssan minnti hann á, að það gæti komið sá tími, að hann hefði þörf fyrir áreiðanlega skambyssu. Eftir því sem hann bezt vissi, var ekki ann- að vopn í húsinu. Hann fór niður ( bílskúrinn, tók sportbílinn og ók inn í næsta verzl- unarhverfi. Þar gekk hann frá bíln- um og fór inn í stóra sportvöru- verzlun. Afgreiðslumaðurinn kom á móti honum: — Hvað get ég hjálpað yður með, hr. Paxton? spurði hann. — Mig langar að sjá .... Einhverra hluta vegna fannst honum hann þurfa að líta við. Það gat ekki hafa verið hljóð, því Hub hreyfði sig hljóðlaust eins og kött- ur. En þarna stóð hann beint fyr- ir aftan Andy og horfði á hann, með örlítið bros á vörunum. Aðeins fullkominn leikari, — sem Andy alls ekki var, — hefði getað dulið undr- un sína. Andy fannst, að hann hefði stokkið hæð sína í loft upp. En Hub sá aðeins undrunina, ekki hræðsluna ( andlitssvip hans. — Halló, sagði hann. — Ekki ætlaði ég að gera yður hræddan. En Andy var hræddur. Auðvitað var honum Ijóst, að einhvern tíma yrði hann að standa andspænis Hub, en hann var ekki undir þetta búinn. Honum heppnaðist að pressa fram bros. Allt var undir því komið, að Hub grunaði hann ekki. — Ég átti alls ekki von á að hitta yrður hér, sagði hann, sem satt var, en bætti svo við, síður sannleikan- um samkvæmt: — Gaman að sjá yð- ur aftur, Hub. — Ég var á leið heim ( leigubd, þegar ég kom auga á bílinn yðar, svo ég bað bílstjórann að setja mig úr hér. Hub hafði verið í fangelsi, svo Andy neyddist fil að sýna einhvers- konar samúð og umhyggju: — Ég bað lögfræðinginn minn að setja tryggingu fyrir yður. En þér hafið greinilega bjargað yður sjálfur? — Já, það gekk mjög auðveld- lega. Ég á smá jarðarskika, sem ég gat sett sem tryggingu. Ég get alltaf bjargað mér sjálfur? Það var Andy ekki ( nokkrum vafa um. Með þá vitneskju, sem hann nú hafði, sá hann Hub í fyrsta sinn eins og hann raunveru- lega var. Það, sem Andy hafði fram til þessa virzt ró og festa, kom nú fram eins og steinhart kæruleysi. Ljós augun voru ekki róleg og al- varleg, heldur hörð og tjáningar- laus. Jafnvel þessi drafandi rödd var aðeins dulið urr. Hans raun- verulegi persónuleiki auðkenndi hvert orð, hverja hreyfingu. Hub virtist nú verða Ijóst, hvers- konar verzlun Andy var staddur (: — Ætlið þér að stækka vopnabúrið, hr. Paxton? spurði hann. — Nei, ein skambyssa er nóg handa mér, sagði Andy. Hub mátti ekki fá grun um, að hann hefði uppgötvað leyndardóm skambyss- unnar. — Ég ætlaði bara að kaupa svoKtið af kúlum í viðbót. Hann snéri sér að afgreiðslumanninum sem stóð þolinmóður og beið: — Ég ætlaði að fá einn kassa af skam- byssukúlum. 38. — Sjálfsagt. Ætlið þér að stað- greiða, eða á að skrifa það? — Staðgreiða, takk. Andy fálm- aði ( vasa sinn, en fékk svo allt í einu nýja hugmynd: — Æ, hver skrattinn, nú hef ég gleymt veskinu mínu. Eruð þér með nokkra pen- inga á yður, Hub? — Já, já, já, fullt af þeim. Hub fylgdi afgreiðslumanninum, sem var að pakka skotunum inn hjá pen- ingakassanum. Andy svipaðist hratt um. Enginn horfði ( áttina til hans. Lipur eins og áll renndi hann sér inn fyrir borðið og opnaði lina renniloku. Hann kreppti höndina um stutt- hleypta skambyssu. Á næstu sek- úndu hafði hann stungið henni und- ir skyrtuna. Andy hafði aldrei stol- ið neinu áður, en nú var ekki rétti tíminn til að hafa siðferðisgrillur. Hann neyddist til að hafa vopn. Titrandi af taugaóstyrk yfir dirfsku ,sinni gekk hann í flýti út 10. kafli. Þegar pakkinn með upplýsingun- um um starfsliðið var kominn, tók Andy möppuna, sem merkt var HUBBARD CHARLES WILEY, og tók að pæla í gegnum hana. Eftir fimm mínútur vissi hann jafn mikið um lífvörðinn og nokkur annar maður i 22 VIKAN 35. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.