Vikan - 02.09.1965, Blaðsíða 32
TODAY’S FINEST WEATHERPROOF
ENSKIR
KARLMANNA-
FRAKKAR
H ERRAPEILP
Austurstræti 14 — Sími 12345
Laugavegi 95 - Sími 23862
*
„ 4
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprll);
Þú verður fyrir nokkrum vonbrigðum við kynn-
ingu á persónu er þú hafðir gert þér háar hugmyndir
um. Vinir þínir koma nokkru fyrr en þú hafðir
gert ráð fyrir, svo þú verður að hraða verkum
þínum.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. ma£>:
Öll viðskipti ættu að liggja niðri þessa vikuna, en
þú skalt samt líta í kringum þig og gagnrýna hlut-
ina. Með aðstoð nokkurra kunningja þinna slepp-
urðu við nokkuð sem annars allir verða að lúta í
lægra haldi fyrir.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú ert allur af vilja gerður til að aðstoða kunningja
þinn, en hvernig sem í pottinn er búið, þá náið þið
ekki saman. Hætt er við nokkurri misklíð á vinnu-
stað og skaltu hafa þig lítt í frammi í innbyrðis
deilum.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Hugsanir þínar eru mjög á víð og dreif og þú átt
fremur erfitt með að einbeita þér að því sem þú
þarft að gera. Líkur eru á að þú dveljist mikið
heimavið og starfir að málum sem eru fyrir heill
fjölskyldunnar.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Ýmsar truflanir verða til þess að þú getur ekki
lokið ætlunarverki þínu. Þú þarfnast mjög ákveð-
ins hlutar en gengur illa að fá hann. Þú verður
fyrir einhverju eignatjóni, sem þú færð þó að nokkru
bætt.
m
aí þér.
©
Meyjaímerkifi (24. ásúst — 23. september):
Þú verður að umgangast ýmsar persónur meira en
þú kærir þig um. Varastu að spilla tlma þínum og
hvíld með því að hugsa eilíflega um hversu mikið
er upp úr hinu og þessu að hafa. Heillatala er 3.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Maður nokkur sem þú þekkir vel sýnir vissum at-
höfnum þínum verðskuldaða athygli og er líklegur
til að aðstoða þig ef þú hagar þér rétt. Vinir þínir
standa fyrir skemmtiferð og skaltu ekki sitja hana
Drckamerkið (24. október — 22. nóvember).
Þú tefst nokkuð vegna þess að þeir sem aðstoða ættu
þig eru víðs fjarri. Vinur þinn verður mjög heppinn
um helgina. Þú gerir góða verzlun sem margir munu
öfunda þig af. Haltu smá partý fyrir fáeina útvalda.
Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember):
Þú skalt ekki vera í miklu fjölmenni um helgina,
heldur kjósa þér einveru eða einhvern rólegan stað
til að hvílast á. Láttu engan troða sér irm á þig sem
þú ekki villt, sýndu að þú getir staðið fyrir þínu.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Undanfarið hefurðu eytt frístundum þínum við verk
ÍBfit J sem þú hefur mjög takmarkaða kunnáttu á. Þú
lendir í smá ævintýri, líklegast um helgina eða
fljótt upp úr henni. Vegna vanrækslu þinnar miss-
irðu af góðu tækifæri.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Ef þú herjar á yfirmenn þína á réttum tíma, þá
þarftu engu að kvíða, þvi í reuninni vilja þeir gera
ýmisiegt fyrir þig. Þú ert dálítið taugaóstyrkur svo
þú skalt ekki vera mikið út á við. Heillaiitur er blár.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú ergir dálítið samferðamennina vegna þess að
þú fylgist illa með og hætt er á að þeim finnist þú
lítið skemmtilegur. Oppaðp stundum útvarpið og
líttu í blöðin. Vipir þínir verða mjög fengsælir.
22 VIKAN 35. tbl.