Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 02.09.1965, Qupperneq 32

Vikan - 02.09.1965, Qupperneq 32
TODAY’S FINEST WEATHERPROOF ENSKIR KARLMANNA- FRAKKAR H ERRAPEILP Austurstræti 14 — Sími 12345 Laugavegi 95 - Sími 23862 * „ 4 Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprll); Þú verður fyrir nokkrum vonbrigðum við kynn- ingu á persónu er þú hafðir gert þér háar hugmyndir um. Vinir þínir koma nokkru fyrr en þú hafðir gert ráð fyrir, svo þú verður að hraða verkum þínum. Nautsmerkið (21. apríl — 21. ma£>: Öll viðskipti ættu að liggja niðri þessa vikuna, en þú skalt samt líta í kringum þig og gagnrýna hlut- ina. Með aðstoð nokkurra kunningja þinna slepp- urðu við nokkuð sem annars allir verða að lúta í lægra haldi fyrir. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú ert allur af vilja gerður til að aðstoða kunningja þinn, en hvernig sem í pottinn er búið, þá náið þið ekki saman. Hætt er við nokkurri misklíð á vinnu- stað og skaltu hafa þig lítt í frammi í innbyrðis deilum. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Hugsanir þínar eru mjög á víð og dreif og þú átt fremur erfitt með að einbeita þér að því sem þú þarft að gera. Líkur eru á að þú dveljist mikið heimavið og starfir að málum sem eru fyrir heill fjölskyldunnar. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Ýmsar truflanir verða til þess að þú getur ekki lokið ætlunarverki þínu. Þú þarfnast mjög ákveð- ins hlutar en gengur illa að fá hann. Þú verður fyrir einhverju eignatjóni, sem þú færð þó að nokkru bætt. m aí þér. © Meyjaímerkifi (24. ásúst — 23. september): Þú verður að umgangast ýmsar persónur meira en þú kærir þig um. Varastu að spilla tlma þínum og hvíld með því að hugsa eilíflega um hversu mikið er upp úr hinu og þessu að hafa. Heillatala er 3. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Maður nokkur sem þú þekkir vel sýnir vissum at- höfnum þínum verðskuldaða athygli og er líklegur til að aðstoða þig ef þú hagar þér rétt. Vinir þínir standa fyrir skemmtiferð og skaltu ekki sitja hana Drckamerkið (24. október — 22. nóvember). Þú tefst nokkuð vegna þess að þeir sem aðstoða ættu þig eru víðs fjarri. Vinur þinn verður mjög heppinn um helgina. Þú gerir góða verzlun sem margir munu öfunda þig af. Haltu smá partý fyrir fáeina útvalda. Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember): Þú skalt ekki vera í miklu fjölmenni um helgina, heldur kjósa þér einveru eða einhvern rólegan stað til að hvílast á. Láttu engan troða sér irm á þig sem þú ekki villt, sýndu að þú getir staðið fyrir þínu. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Undanfarið hefurðu eytt frístundum þínum við verk ÍBfit J sem þú hefur mjög takmarkaða kunnáttu á. Þú lendir í smá ævintýri, líklegast um helgina eða fljótt upp úr henni. Vegna vanrækslu þinnar miss- irðu af góðu tækifæri. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Ef þú herjar á yfirmenn þína á réttum tíma, þá þarftu engu að kvíða, þvi í reuninni vilja þeir gera ýmisiegt fyrir þig. Þú ert dálítið taugaóstyrkur svo þú skalt ekki vera mikið út á við. Heillaiitur er blár. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú ergir dálítið samferðamennina vegna þess að þú fylgist illa með og hætt er á að þeim finnist þú lítið skemmtilegur. Oppaðp stundum útvarpið og líttu í blöðin. Vipir þínir verða mjög fengsælir. 22 VIKAN 35. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.