Vikan - 21.10.1965, Side 5
herranum, heldur kannske líka
hjá kunningjum lians.
Hvað gullhömrum viðvíkur, Jjá
ber auðvitað að taka þá eftir
atvikum hverju sinni. Stundum
er aðeins um yfirborðskurteisi að
ræða, stundum bara slundargam-
an, í önnur skipti eru þeir tilraun
til að koma sér í mjúkinn hjá
dömunni, jafnvel þótt hugur
fylgi ekki máli, og svo getur líka
verið um blákalda alvöru að
ræða. Svör við slíku verður að
gefa eftir mati hverju sinni —
en athugaðu að bíta ekki á krók-
inn við fyrstu tilraun, því það
er oftast með gullhamra eins og
beitu veiðimannsins... þeir cru
að reyna að fiska.
Það er oft rétt, sem sagt er,
að í slíkum málum eigi maður
ekki að segja hug sinn allan.
Ef þú ert hrifin að pilti, er það
stundum vafasamt að láta hann
vita það of vel — svona til að
byrja með. Hann verður þá of
öruggur um þig, „saltar“ þig eins
og sagt er og geymir í rólegheit-
um, því hann veit að til þín get-
ur hann alltaf farið. Á meðan
notar hann kannske timann til
að krækja í annan fisk.
Það er hægur vandi fyrir þig
að losna við þvingun á dansleikj-
um, einfaldlega með því að fara
í dansskóla. Þegar þú hefur öðl-
azt sjálfstraust á dansgólfinu,
hverfur þér öll feimni.
P.S. Skriftin er góð, stafsetning-
in sæmileg en greinarmerkja-
setning afleit.
MONTHÆNA.
Kæra Vika!
Ég óska þess a'ð ég fái góð
svör við spurningum mínum, en
ég spyr í fyllstu alvöru.
í fyrsta sinn sem ég skrifaði
þér kom aldrei bréf, en vonandi
birtirðu þetta.
Hvað er bezt að gera við monti?
Mér er tilkynnt úr ýmsum áttum
að ég sé að deyja úr monti og
hef að sjálfsögðu ekki hugmynd
um ástæðuna, því á því hef ég
ekki efni.
Það vantar allt hjá mér sem
hægt er að kalla fegurð og vin-
sældir (og ég á allt of fáa vini
og það pirrar mig líka).
En hvað er hægt að gera til
að venja sig af þessu monti?
Geturðu frætt mig smávegis
um tízkuskólann hér, hvað sé
kennt og hvað kosti að vera þar,
hvað tímarnir séu margir og ým-
islegt sem skólann varðar?
Er mikill munur á hárgreiðslu-
námskeiði og snyrtinámskeiði?
ef ekki, segðu mér þá hvert er
hægt að snúa sér til að læra
snyrtingu.
Mig langar að biðja ykkur
þarna hjá Vikunni að hafa oftar
myndir af tízkunni eins og hún
er.
Er það satt að Tempó spilí ekki
í vetur?
Að lokum vonast ég eftir svari
frá ykkur í Póstinum sem allra
fyrst og án útúrsnúninga.
Monthæna.
P.S. Hvernig er skriftin?
Kæra Monthæna!
Þú setur mig í nokkurn vanda
með spurningu þinni, því að það
liggur ekki ljóst fyrir hvort þú
ert í raun og veru montin, eða
hefir að ósekju fengið þetta ó-
orð. Ef þú ert í raun og veru
montin skaltu reyna að leyna
því, og temja þér eðlilega fram-
komu.
Tízkuskólarnir eru tveir, Tízku-
skóli Andreu, Skólavörðustíg 23,
sími 19395 og Tízkuskólinn í
Bankastræti 6, sími 20743.
Það er hægt að fá snyrtinám-
skeið á þessum skólum, en ekki
hárgreiðslunámskeið. Hár-
greiðsla er iðnnám. Annars er
bezt að snúa sér til þessara skóla
beint og fá allar upplýsingar.
Það getur ekki verið að þú les-
ir Vikuna, úr því þú sérð ekki
tízkumyndirnar, sem eru hérum-
bil í hverju blaði.
Við skulum vona að Tempó
spili í vetur.
Skriftin er nokkuð þokkaleg.
HÁRTOPPAR
EINN
ÚTVEGUM
HÁRKOLLUR EFTIR
MÁLI í ÖLLUM
LITUM.
STAKAR FLÉTTUR
NYLONFLÉTTUR
PEYSUFATAFLÉTTUR
TVEIR
ÞRÍR -
OG HÁRGREIÐSLAN ER
FULLKOMIN
G. PMa búðin
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3
SÍMI 24626
------------------------1
Þvær,
hreinsar
og
gefur ferskan
háralit
Þegar æfi líður á, fölnar
æskuljómi hársins. Wellaton
gefur hárinu nýjan og
fcrskan blæ og þvær um leið
eins og bezta shampoo .
Wellaton uppfyllir kröfur
allra kvenna, því fjölbreytt
litaval gefur konunni kost
á að velja sér fagran og'
persónulcgan hárblæ.
Heildverzlun: HALLDÓR JÓNSSON H. F.
Sími 23995 og 12586 Hafnarstræti 18
\|KAN 42. tbl. g