Vikan - 21.10.1965, Side 22
— Þið skulum nú fara yfir nokkr-
ar stillingar og eftirlitsathuganir
fyrir utan flapsa og lendingarhjóla-
æfinguna, sem þér hafið nú gert.
Fyrst verður að setja aðstoðardæl-
una á. Síðan verður bremsuþrýst-
ingurinn að sýna milli 900 og 1000
pund. Halló, Spencer! Þegar þér
hafið sett lendingarhjólin niður,
verðið þér að ganga úr skugga um,
að ekkert komi fyrir eldsneytisað-
rennslið. Og skrúfustillinn. Náðuð
þið þessu öllu? Við skulum taka
þetta allt í einu. Nú skal ég segja
ykkur hvar hlutirnir eru. Eruð þið
22 VIKAN 42. tbt
tilbúin?
Janet og George höfðu upp á
tækjunum eftir fyrirsögn Turners.
— Segðu honum, að við vitum
nákvæmlega hvar allt er, Janet.
— Halló, London Airport! Allt til-
búiðl
— Gott, 714, sagði Turner. —
Hlustað nú á mig, Spencer! Gefið
15 gráðu flapsa aftur, hraða 140
og svo skulum við fara aftur (
gegnum æfinguna með hjólin. Fylg-
izt vel með hraðanum að þessu
sinni. Samþykkt?
George kinkaði kolli til Janet.
Turner byrjaði á áttundu kaffi-
krúsinni. Einn flugumsjónarmann-
anna, Mark Stroud, gekk til hans.
— [ alvöru talað, Turner, hvern-
ig lízt þér á?
— Það er víst ekki hægt að fara
fram á það skárra, sagði Turner.
Það er verst, að við erum orðin í
tímahraki. Við hefðum þurft að
fara í gegnum flapsa og hjólaæf-
inguna, eina út af fyrir sig, tíu til
tólf sinnum. En við náum því aldrei.
— Eru nokkrar Kkur til, að hann
hafi þetta af?
Turner hristi höfuðið og kastaði
pappaboxinu frá sér.
— Ég gef ekki túskilding með
gati á fyrir möguleikana hans. En
við gefum þelm allavega eitthvað
um að hugsa um, með þessu móti.
Það er mikilsvert, jafnvel þótt allt
lendi í einni stórri pönnukökul
— Er það svona slæmt?
— Þú hlýtur að skilja, að ná-
unginn þarna uppi er viti sfnu fjær
af skelfingu! Það er eins gott að
horfast í augu við sannleikann. Ef
hann getur haldið aftur af taugun-
um og er fjandanum heppnari, get-
ur hann ef til vill komizt óskadd-