Vikan

Tölublað

Vikan - 21.10.1965, Blaðsíða 39

Vikan - 21.10.1965, Blaðsíða 39
Ég brosti við henni: — Ég hef ekki verið rekinn, ekki ennþá. Svo bætti ég við: — Og reyndu nú ekki að slá ryki í augu mín. Ég þekki þig betur en þau hin. Hún l'ipptist við og reyndi svo að verða særð á svipinn, en gat ekki haldið því áfram. Hún leit út eins og barn, sem veit um sekt sína, en finnst hún óendan- lega hlægileg. — Þar að auki, sagð ég, — ætt- irðu að skammast þín. Þau gerðu ekkert annað en reyna að geðj- ast þér. — Ég veit það, sagði hún. ■— Ég skal gera gott úr þessu í kvöld — vð kvöldmatinn. Já, ég skal gera það. Hún brosti til mín eins og ég væri í vitorði með henni, svo byrjaði hún að flissa og það ljómaði af björtum aug- um hennar. — En stundum get ég ekki varizt því. Þau eru öll svo miklir bölvaðir bjánar! Augu hennar fylltust af hlátri: — Var ekki James hlægilegur? sagði hún. — Og Beatrice... og svo hallaði hún höfðinu aftur á bak og skellihló. ★. Flatey... Framhald af bls. 27. eins og sólusjólpin sé öll komin undir nógu glaesilegum reisupassa yfrum. Og þessi dýru úthöggnu björg vitna ekki aðeins um mann- kosti hins látna þau vitna ekki síð- ur um lánstraust aðstandenda. Þó er það svo að einn stærsti og skrautlegasti steinninn í þessum garði, og sá þeirra sem kostað hef- ur flest jarðarverðin, sá þeirra sem letraður er hvað stærstum stöfum, hann er ekki reistur kaupmanni og þaðan af síður dannebrogsmanni, ekki sýstlumanni og því síður próf- asti, það er engin forstandsmatróna sem hvílir undir þessum viðamikla steini heldur tveggja ára piltbarn. HÉR ER LAGÐUR FORELDRA FAGUR GIMSTEINN BOGI BRYNJULFSSON BENEDICTSEN FÆDDUR 28. APRIL 1849 DÁINN 22. SEPTEMBER 1851 HJÁ SYSTKINUM SlNUM JARÐÞRÚÐI, GUÐMUNDI HALLDÓRI, GUÐRÚNU, SOLVEIGU RAGNHEIÐI OG HALLDÓRU SIGRÍÐI ER ÖLL DÓU Á FYRSTA ALDURS ÁRI OG HIÐ SÍÐAST TALDA ÞEGAR Á EFTIR HONUM HANN LIFÐI ÞENNAN STUTTA TÍMA HRAUSTUR OG VEL HEILBRIGÐUR, FAGURLIMAÐUR OG AÐ ÖLLU SEM BEST AF GUÐi GEFINN UNZ DREPSÓTT Á BÖRNUM, SÚ ER GEYSAÐI YFIR LAND ALLT HREIF HANN BURT FRÁ SÝTANDI FORELDRUM BRYNJULFI OG HERDÍSI BENEDICTSEN BARA HREYFA EINN HNAPP oe HA14AFULLMATIC SJÁLFVIRKA ÞVOTTAVÉLIN ÞVÆR, SÝÐUR, SKOLAR OG VINDUR ÞVOTTINN. B-|ýVi4A%FULLMATIC ÞVOTTAVÉLIN FER SIGURFÖR UM ALLA EVRÓPU. - HAKA GERIR ÞVOTTADAGINN AUÐVELDARI EN ÁÐUR ÞEKKTISY. 12 SJÁLFSTÆÐ ÞVOTTAKERFI 1. SuSuþvottur 100‘ 2. Heitþvottur 90' 3. Bleijuþvottur 100' 4. Mislitur þvottur 60' 5. ViSkvæmur þvottur 60' 6. Viðkvæmur þvottur 40' 7. Stíf þvottur/ Þeytivinda 8. Ullarþvottur 9. Forþvottur 10. Non-lron 90 11. Nylon Non-lron 60 12. Gluggatjöld 40 ■-■/%Í4/%FULLMATIC AÐEINS MAR4>%FULLMflTIC ER SVONA AUDVELD í NOTKUN. - SNÚIÐ EINUM SNERLI OG HAKA SÉR ALGERLEGA UM ÞVOTTINN OG SKILAR HONUM ÞEYTIUNDNUM. - SJÁLFVIRKT HITASTIG OG VATNSMAGN, SEM H/EFIR HVERJU ÞVOTTAKERFI. - SJÁLFVIRKAR SKOLANIR. - TÆM- ING OG ÞEYTIVINDUÞURRKUN. - MEÐ 2 KERFUM AF 12 ER HÆGT AÐ SJÓÐA ÞVOTTINN SVO VÉL- IN SKILAR JAFNVEL ÓHREINASTA ÞVOTTI TANDURHREINUM. - ÞVOTTURINN KEMUR AÐEINS VIÐ GLANSSLÍPAÐ, SEGULVARIÐ, RYÐFRÍTT STÁL. -AJ<Áimm A. ábyrgS KOMIÐ - SKOÐIÐ - SANNFÆRIST VID ODINSTODG SIMI 1 03 2 2 E1 VIKAN 42. tbl. gg

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.