Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 21.10.1965, Qupperneq 47

Vikan - 21.10.1965, Qupperneq 47
CARDIN er tvímælalaust mesti kápumeistar- inn á þessu hausti. Mjög mikil fjölbreytni var í kápum hans, en þó bar þar mest á kápum með skinnum. Skinnin hefur hann ekki frekar um háisinn, heldur oftar neðan á kápunum og þá oft líka á ermunum. Stund- um var bein rönd neðan á kápunum af loðnu skinni, eins og á kápunni hér næst fyrir neðan t.h., en nýstárlegastir voru þó kant- arnir úr sléttum skinnum, sem festir voru neð- an á kápuna með alls konar tungum upp á efnið (sjá mynd næst fyrir neðan, t.v.) Frakk- arnir hans voru stundum með stórum slám, og á kápunni neðst t.v. er sláin hneppt að aftan. Neðst t.h. er svo slákápan með heilli hettu, sem gerir konurnar eins og gangandi, rússneskar trédúkkur. Geometriska linan í algleymingi. Það er sagt að mamma hans Yves St. Laurent's hafi gefið honum bók með myndum af mál- verkum eftir Mondrian. Síðan hefur hann ekki borið sitt barr og er munstrið á sumum kjólunum hans nákvæm eftirlíking á málverkum þcssa fræga, hollenska meistara. Til að fá sannanir fyrir þessu, fletti ég upp í lista-lexikoni og sá þar t.d. málverk eftir Mondrian svo til alveg eins og kjóllinn í miðju á myndinni t.h. Flestir fletirnir eru livítir, einn sterkrauður, annar blár og sá þriðji sterkgulur, allt innrammað af þessum breiðu, svörtu strikum. Slðbuxur úr sama efni og kápurnar er bæði hlýtt og nýtt. Stundum eru þær aðeins vfðari að neðan, eða þá að gamache- buxur eru hnepptar undir ilina. Svo eru það loks % síðu kápurnar frá Balenciaga, að- skornar og telpulegar. Það má eiginlega fremur kalla þetta dragtir, þar sem þessi sídd af kápum krefst auð- vitað viðeigandi kjóla eða pilsa. VIKAN 42. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.