Vikan

Eksemplar

Vikan - 16.12.1965, Side 7

Vikan - 16.12.1965, Side 7
Ég get ekki látið hjá líða að benda hæstvirtri ritstjórn Vik- unnar á, hversu ósmekkleg íor- síða 47. tölublaðs var í hvívetna. Þama voru teknir fyrir alsak- lausir menn, sem vinna að því að koma á fót íslenzku sjónvarpi og draga þannig úr eyðileggjandi ameríkanseringaáhrifum. Andlit þeirra og líkamsvöxtur var af- skræmdur í hvívetna, mönnum til athlægis oghúsnæðisjónvarps- ins stórlega misboðið. Þetta hef- ur vakið reiði margra fleiri en mína, og ég óska að mótmælum mínum verði veitt inni í Póstin- um. Magnús H. Jónsson. Vesalings mennirnir, alsaklausir. Þessu verður sannarlega ekki mælt bót. Svona skal alltaf farið með útverði menningarinnar á þessu landi, þessum sem reyna að halda niðri áhrifum frá ó- lukkans Kananum. Og ekki var það betra að fara að svívirða húskofann. Mótmæli þín fá hér með inni í Póstinum. HJÚKRUNARNÁM. Kæra Vika! Þar sem ég veit að þú hefur gefið mörgum góð ráð, þá lang- ar mig að biðja þig um upplýsing- ar varðandi hjúkrunarnám. Um lágmarksaldur, árafjölda og hvaða próf er nauðsynlegt að hafa. Einnig langar mig að vita hvort sé kennt allt árið, eða bara á veturna. Ég hef þó nokkurn áhuga á að verða hjúkrunarkona og þætti þá vænt um, ef þú vild- ir svara þessu fyrir mig eins fljótt og auðið er. Ég vona svo að þú fyrirgefir skriftina en ég hripa þetta í flýti eins og gerla má sjá. Ég þakka svo kærlega allt bæði gamalt og nýtt en ég hef lesið Vikuna síðan fyrst ég lærði að lesa og þar áður skoð- aði ég myndasögurnar. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. Aðdáandi. P.S. Er eitthvað aukalegt til að fá að starfa við barnadeildir? Sama. MEÐ NEFIÐ OFAN í HVERJUM KOPPI. Góði Póstur! Hvað á ég að gera við hana mömmu? Hún er svo forvitin að hún er með nefið ofan í hverj- um koppi hjá mér og hnýsist hreint í öllu. Hún rífur jafnvel upp bréfin mín að fyrra bragði og ef blöðin, sem ég er áskrif- andi að, koma ekki á réttum tíma hringir hún og læzt vera ég og skammast og rífst svo hárin rísa á henni sjálfri, hvað þá þeim, sem á hiusta. Hvað get ég gert til að venja hana af þessu? Forvitnin er einn af þeim kvill- um, sem hvað erfiðast hefur gengið að Iækna. Þú gætir reynt að fá einhvern til að skrifa þér og gefa henni pillur í bréfinu fyrir forvitnina. Það er auðvitað ekki fallegt að hæðast að móð- ur sinni og frekar hún sem ætti að ala þig upp en þú hana, — en þú gætir reynt háðið. Það er bit- urt vopn, sé því fimlega beitt. Kannske hættir hún þá að hnýs- ast, en jafn forvitin verður hún eftir sem áður. Sú, sem ætlar að fara í hjúkrun- arnám, verður að vera milli 18 og 30 ára, og námstíminn er nú þrjú ár og tólf vikur. Við höldum, að nemendur eigi að vera í heimavist, en ýtarlegasta og á- reiðanlegastar upplýsingar fást með því að snúa sér til skólans sjálfs, þar sem hann stendur í túni Landspítalans. S-MÆLI. Kæri Póstur! Geturðu gefið mér ráð við s- mæli, mér þykir það svo leiðin- legt að tala svona, svo að stund- um þegi ég frekar en að tala ef margir eru saman í hóp, þá segja krakkarnir bara að maður sé drumbur og leiðinlegur (sem maður er náttúrlega ekki). Ein sem vonar eftir svari. Hér er maður undir manns hönd að reyna að finna eitthvert ráð, sem duga mundi, en allt strand- aði á því, að enginn veit hvernig þetta S-mæli er. Ég held þú verð- ir að skrifa okkur eins og eitt bréf á S-mæli, svo við getum átt- að okkur á fyrirbrigðinu. i Fallegar jólagjalir 'lamMnCfO hárþurrkan - fallegri og fljótari og hefur alla kostina: 700 W hitaelement, stiglaus hitastilIing 0—80°C og nýi tur- bo-loftdreifarinn skapa þægilegri og fljótari þurrkun. Hljóðlót og truflar hvorki útvarp né sjón- varp. Fyrirferðarlítil ( geymslu, því hjólminn mó leggja saman. Auðveld uppsetning á herberg- ishurð, skáphurð, hillu o.fI., en einnig fást borðstativ og gólf- stativ, sem líka má leggja sam- an. 2 fallegar litasamstæður, bláleit (turkis) og gulleit (beige). FLAMINGO straujárniö er létt og lipurt, hitnar og kóln- ar fljótt og hefur hárnákvæman hitastilli, hitaöryggi og hitamæli, sem alltaf sýnir hitastigið. Fæst fyrir hægri og vinstri hönd — og þér getið valið um 4 fallega liti: króm, topasgult, opalblátt og kóralrautt. Ábyrgð og traust varahluta- og við- gerðaþjónusta. FLAMINGO úðarinn er loftknúinn og úðar tauið svo fínt og jafnt, að hægt er að strauja það jafnóðum. Ómissandi þeim, sem kynnst hafa. Litir í stíl við straujárnin. FLAMINGO snúruhaldarinn er ekki síður til þæginda, því hann heldur straujárnssnúrunni á lofti, svo að hún flækist ekki fyrir. S í M I 2-44-20 - SUÐURGATA 10 - REYKJAVÍK P Ö N T U N — Sendið undirrit. í póstkröfu: .... stk. FLAMINGO hárþurrka . .. litur: .................. kr. 1115,— .... stk. FLAMINGO borðstativ ............................. kr. 115.— .... stk. FLAMINGO gólfstativ ............................. kr. 395,— .... stk. FLAMINGO straujárn .......litur: .................. kr. 495.— .... stk. FLAMINGO úðari ...........litur; .................. kr. 245,- .... stki FLAMINGO snúruhaldari .......................... kr. 109.— Nafn: ................................................................... Heimili: .......................................................... V-50 Til: FÖNIX S.F., Pósthólf 1421, Reykjavík.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.