Vikan

Issue

Vikan - 16.12.1965, Page 11

Vikan - 16.12.1965, Page 11
Gamli kjötmarkaðurinn í Smithfield er fró tímaskeiði Victoríu drottningar og jafnvel þar þótti vel sæmandi að hafa bogadregnar hvelfingar og íburð. Þarna fóst allar hugsanlegar tegundir af kjöti og viðskiptin ganga fyrir sig eftir gömlum venjum. ganga að innleiða annað ó næstu einum til tveim áratugum. Ég hygg, að |.að verði okkur áfram hagstæð- ast að flytja kjötið út ( heilum skrokkum þar til meiri háttar breyt- ingar hafa átt sér stað á dreifingar- kerfinu. — Nú ert þú búinn að selja fram- leiðslu þessa árs. Hversu langan tíma tekur að selja kjötið? — Kjötfarmarnir byrja að koma hingað I lok september og stðan koma skipin öðru hvoru í 6 — 8 vikur. Það sem við gerum, er að finna kaupendur fyrirfram og vera búnir að selja skipsfarmana áður en skipin koma. Hér er öll kjötsala á einum stað, á Smithfield Market, sem er hér ekki langt undan og líklega einhver stærsti kjötmarkað- ur sinnar tegundar í heiminum. Sá markaður er í fullum gangi allan ársins hring, en íslenzkt kjöt sést þar aðeins um fæpt tveggja mán- aða skeið. City, það er fjármálahverfið í London þar sem stórfínansinn ( Bretaveldi er saman kominn á fáum fermílum. Þar er það fræga Þráðnálarstræti og kauphöllin, þar eru stofnan- ir eins og Englandsbanki og Lloyds og önnur tryggingafélög. Hvergi eru innfæddir virðulegri en einmitt í þessum fornlegu peningastrætum; þar spranga þeir um með kúluhatt- ana sína og regnhlífarnar eftir gam- algrónum fyrirmyndum þessa venju- bundna þjóðfélags. Jafnvel fram- hliðum húsanna er ætlað að segja það svo ekki misskiljist, hvað fyrir- tækin standi á traustum fjárhags- legum grunni, sem þar eru til húsa. Þannig er líka húsið nr. 16 við Eastcheap, traustleikinn uppmálað- ur unz maður kemur að lyftunni. Þá hugsar maður sig aðeins um og gengur síðan upp stigana. Einhvers- staðar ofarlega ( húsinu er skrif- stofa Sambands (slenzkra sam- vinnufélaga, nýlega flutt til London frá Leith, þar sem hún hafði verið áratugum saman. Þarna eru gerð innkaup fyrir kaupfélögin og auk þess fer þar fram veigamikil þátt- ur ( sölu á íslenzkum afurðum, bú- vörum og fiski. Sá er ræður ríkjum á þessum stað er Guðjón B. Ólafs- son, framkvæmdastjóri SÍS ( Lond- on; búinn að vera rúmt ár ( þessu starfi og aðeins þrítugur að aldri. Hann hefur framúrskarandi útsýni yfir þökin ( City með óendanleg- um tilbrigðum af kvistum og þak- gluggum, innskotum og útskotum og allsstaðar eru fólkið með pappír og ritvélar til þess að viðskiptin geti blómstrað. Viðskiptin blómstra líka hjá Guð- jóni; hann seldi á árinu 1964 land- búnaðarafurðir fyrir um 72 millj. króna og sjávarafurðir fyrir 110 milljónir. Og nú er hann nýlega búinn að selja kjötframleiðsluna 1965. En hvernig gerist þessi sala? Hún gerist þannig, að um það bil sem skipin láta úr höfn með kjötið að heiman, þá gengur Guðjón yfir til þeirra á kjötmarkaðnum í Smith- field og býður það til sölu. En það er bezt, að hann segi frá þv( sjálf- ur. — Hversu mikill hluti er það af heildar kjötframleiðslunni, sem þið fáið til sölumeðferðar, Guðjón? — Það munu vera um 10% að jafnaði. Sambandið er eini aðilinn, sem flytur út kjöt og meirihluti þess flyzt hingað til Bretlands. 1963 seldum við til dæmis 85 þúsund skrokka og það virðist ( fljótu bragði þó nokkuð magn af kjöti, en við verðum að hafa í huga, að Bretland er stærsti markaður heims- ins fyrir landbúnaðarafurðir og þessir 85 þúsund skrokkar hrökkva skammt á þeim markaði. Til þess að gefa þér einhverja hugmynd um, hvað okkar framleiðsla skiptir miklu máli, þá má geta þess að Bretar kaupa af Ný-Sjálendingum meira en 19 milljónir skrokka af lambakjöti, 880 þúsund skrokka frá Ástralíu, 450 þúsund frá Suður- Amertku fyrir utan það sem þeir framleiða sjálfir. Sem sagt; þetta er dropi í hafinu, hálft prósent af heildar innflutningnum. Við eigum engra annarra kosta völ en að haga okkur eftir ríkjandi söluvenjum á markaðnum. Þótt okkur kynni að finnast eitthvað að dreifingarkerf- inu til dæmis, eða þá að eitthvað sé á eftir tímanum, þá má augljóst vera að við megum okkar lítils á meðan Nýsjálendingar ekki knýja fram breytingu. — Eins og þú sjálfsagt veizt, þá hafa heyrzt raddir um það hjá okk- ur, að við ættum að selja okkar ágæta dilkakjöt ( sérstökum neyt- endapakkningum sem gæðavöru. — Já þetta hefur heyrzt, en er byggt á ókunnugleik. Það er auð- vitað aðeins gott um það að segja að vera vel á verði til að selja afurðirnar á sem beztu verði og Sambandið hefur raunar gert marg- ar tilraunir til þess á undanförnum árum og þeim er og verður haldið áfram. En staðreyndin er sú, að nálega allt dilkakjöt á brezka markaðnum, er flutt inn ( heilum skrokkum og dreift þannig til kjöt- sala, „butchers", um allt land. Þeir þýða síðan skrokkana og höggva með kjötöxi og skera niður eftir óskum húsmæðra. Heildsalar skera kjöt niður á svipaðan hátt fyrir veit- ingahús og stofnanir. Innpakkað, fryst kjöt má heita óþekkt fyrir- brigði og það er talið, að það skipulag, sem nú ríkir f kjötsölu sé svo fast gróið, að erfiðlega muni Við gengum yfir á Smithfield Market, sem raunar er rétt hjá City, fjármálahverfinu. Á leiðinni spyr ég Guðjón hve langt sé stðan fyrst var farið að selja kjöt til Bretlands. — Það munu vera yfir 40 ár s(ðan íslenzkt lambakjöt var fyrst flutt til Bretlands. Ekki hefur verið um árleg'an útflutning að ræða síð- an, fyrr en upp úr stríðinu og síð- ari árin hefur magnið haldizt nokk- uð stöðugt 80 — 120 þúsund skrokk- ar. Sigursteinn Magnússon ræðis- Framhald á bls. 31. VIKAN 50. tbl. -Q

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.