Vikan - 16.12.1965, Page 18
Ýmislegt nýtt er að gerast í bílamálunum
eins og venjulega á þessum tíma árs og marg-
ar nýjungar um að ræða. Við höfum áður á
þessum árshelmingi kynnt Peugeot 202,
Farmobil, Moskvitsinn nýja og Haflinger. Nú
er mál að taka upp þráðinn að nýju og hér
kemur sá fyrsti:
Ford Bronco.
Ford Motor Company virðist ætla að slá í
gegn með villihestaseríunni sinni. Fyrsti villi-
hesturinn þeirra, Mustang, hefur orðið jafn-
mikið uppsláttarverkfæri fyrir þá og þeir
gerðu ráð fyrir, en sú saga var rakin í VIK-
UNNI skömmu áður en Mustang kom á mark-
aðinn. Hann er nú með söluhæstu bílum í
Ameríku og mér er sagt, að hann sé kallaður
The Poor Mans Sport, eða sportbíll fátækl-
inganna.
Og nú í haust kom villihestur nr. tvö,
Bronco. Þetta er bíll af þeirri gerðinni sem
við íslendingar köllum jeppa hvað sem hver
segir og í trássi við hvað rétt er á amerísku
og hvað ekki. Hann er nefnilega með drifi
á öllum hjólum og af hinni réttu stærð.
Bronco er sem sagt á svipaðri bylgju og
þessir gömlu og góðu sem þið þekkjum öll:
Villís, Landróver, Gipsý og Rússi, og má
segja að sín ögnin minni á hvern. Vonandi
sameinar hann það bezta úr þeim öllum, og
sé svo, þarf enginn íslendingur að velta vöng-
um yfir því, hvort Broncó sé góður bíll.
Ef til vill má kalla broncóinn Jeppafólks-
bíl. Hann er laglegur utan sem innan og
þægilegur ísetu, sem sagt vel frambærileg-
ur til að bjóða konunni upp í jafnvel þótt
hún sé í sparikjólnum dýra og fína. Og svo,
þegar húsbóndinn er kominn í útprjónuðu
peysuna og frúin í síðbuxurnar, þarf ekki
að tjalda ár eftir ár í sömu troðnu lautinni
rétt utan við veginn eða vera að kroppa upp
berin sem löngu er búið að tína við alfara-
leiðir áætlunarbílanna, því broncóinn flökr-
ar ekki við ójöfnu landslagi og fer sínar eig-
Jg VIKAN 50. tbl.
Opefl Kadett
Clirysler