Vikan - 16.12.1965, Síða 19
R.M.C. Gloríag
Plymoutrft
Ford Bronco
iri götur. Á vegum ér hann líka sagSur all-
góður, þótt vitaskuld sé hann hærra gírað-
ur en algengast er um fólksbíla. — Kæmi
þessi bíll með vel heppnuðum fjögra gíra
kassa, mætti segja mér, að hann yrði mörg-
um lúxusbílunum skeinuhættur keppinautur
í sölu.
Vélin er sex strokka 105 ha. að sjálfsögðu
framan í og vatnskæld. Gírkassinn er þriggja
gíra og alsamhæfður, skifting á stýri, og
drifskiftingin mjög einföld. Henni er stjórn-
að með stöng upp úr miðju gólfi, þar sem
gólfskifting er venjulega, og hægt er að velja
um hátt fjórhjóladrif eða tvíhjóladrif á ferð
án þess að kúpla. Um er að ræða hátt og lágt
drif tvíhjóla eða fjórhjóla, eða fjögrahjóladrif
lágt. Svo er að sjálfsögðu lás fáanlegur á
framhjóladrifið og einnig er hægt að fá læst
mismunadrif. Fjöðrun er gormar að framan
og blaðfjaðrir að aftan, og gormarnir gera
það að verkum, að beygjuradíus Bronkósins
er minni en á nokkrum bíl hliðstæðum. Fljótt
á litið virðist þetta efnilegur bíll í okkar
landi. Umboðin eru tvö: Kr. Kristjánsson og
Sveinn Egilsson, svo jafnvel er valfrelsi um
hvar maður kaupir hann. Verðið er frá kr.
171.000,—- — ódýrasta útgáfa.
Jalta.
Þá eru Rússamir komnir með smábíl með
rassmótor, sem fljótt á litið virðist eiga að
geta staðið sig vel móti hliðstæðum vestan
tjalds bílum. Ég hef ekki séð þennan bíl, en
í bæklingi frá umboðinu segir, að JALTA
hafi aksturseiginleika, sem séu fyllilega sam-
bærilegir við stærri bifreiðar. Allur virðist
bíllinn smár, en tekur fjóra í sæti. Vélin er
fjögra strokka, loftkæld en gefur aðeins 27
hestöfl við 4000 snúninga. Gírskifting er í
gólfi, 4 gírar áfram, en fyrsti gírinn ekki
samæfður. Umboðið er Bifreiðar og landbún-
aðarvélar og gripurinn á að kosta 100 þúsund.
OPEL.
Af Opelbílum er mest breyting á Kadett.
Hann er allur stærri, viðameiri og rúmbetri,
eins og spáð var fyrir honum, þegar hann
kom fyrst á markaðinn, því það hefur sýnt sig,
að flestir þeirra bíla, sem byrja „litlir“, það
er í smábílaklassanum, og eiga að keppa við
þá gömlu vinsælu, sem þar hafa bitið sig
fasta, stækka áður en langt um líður og fara
nær klassanum fyrir ofan.
En hvað um það, Kadett hefur náð tölu-
verðum vinsældum sem lítill bíll og vafalaust
heldur hann áfram að vera vinsæll, þótt hon-
um vaxi fiskur um hrygg. Að útliti til minnir
hann þó töluvert á gamla Kadettinn, utan
hann hefur aftan til við miðju fengið aðkenn-
ingu að bjúgnum, sem frændur hans amerísk-
ir hafa nú gengið með í meira en ár og smit-
að fleiri af. Af myndum að sjá er þetta lag-
legasti bíll.
Hann hefur lengst um 19 cm, breikkað um
10 cm og lækkað um 1 cm. Þar að auki hefur
ann þyngzt um 60 kg. Enda er hann nú tal-
inn vel rúmur 5 manna bíll. Vélin hefur ver-
ið stækkuð um nær 100 ccm, og hestaorku-
tala fjögrastrokka vélarinnar aukin um 8
upp í 56. Þar að auki er hann fáanlegur gegn
aukagjaldi með 59 ha vél. Hann á að eyða um
7 1 á hundraðið. Og enn eina nýjung er vert
að minnast á: Hann hækkar töluvert frá
vegi, en það var öllu til skila haldið með
þann gamla, að hann væri ekki of lágur.
Sjö gerðir eru til af Kadett; tveggja dyra
Framhald á bls. 40.
VXKAN 50. tbl. jg