Vikan - 16.12.1965, Qupperneq 25
I
I
Þetta cr fljótleg jólagjöf, cf þið fáið
perlurnar.
Efni: Þrjár perlustærðir í tveimur
litum ásamt 2 stórum endaperlum.
Lengd beltisins um 1,40 m. Sterkur
nælonþráður til þess að þræða perl-
urnar á og er hæfil. að 1 m. af þræði
myndi 10 sm. af beltinu. Vegna lengd-
ar beltisins verður að skipta þræðin-
um og ganga frá endum þegar með
þarf.
Mynd 1. Dragið á miðjan þráðinn
2 stórar perlur, sína með hvorum lit
og 2 jaðarperlur. Hafið hæfilega gróf-
ar nálar á báðum endum þráðsins.
Mynd 2. Þræðið nú 1 stóra perlu á
neðri hluta þráðsins (raðið litum stóru
perlanna til skiptis) og dragið hann
siðan í gegn um efri perluna sem var
á þræðinum og jaðarperluna og herð-
ið.
Mynd 3. Þræðið nú á annan enda
Framhald á bls. 41.
J)erlubelii
Bréfi svarað
Svar við bréfi, undirritað „Karó-
lina“, á erindi til margra um jól-
in. Hún segir m.a. “ .. . en vanda-
mál mitt er hvernig ég á að losna
við vax úr útsaumuðum dúk sem
ég á og er úr fremur viðkvæmu
efni og þolir þvi ekki mjög sterka
sápu eins og t.d. grænsápu, og
heilræðið með því að strauja blett-
inn og hafa dagblað á milli vita
allir að er aðeins til að stækka
hann og dreifa honum út um allt“.
Þarna gætir nokkurs misskilnings,
því að ekki á að reyna að strauja
vaxbletti úr efnum með dagblöð á
milli. Efnið er lagt á strauborðið
og þerripappír settur undir bolt-
ann og pappírinn látinn draga í
sig vaxið. Það þarf að skipta um
stað á þerriblaðinu mjög ört, eða
um leið og myndast hefur á hann
vaxblettur, og sé bletturinn stór,
getur þurft fleiri arkir af þerri-
pappír, því að aðferðin byggist á
því, að vaxið sogist upp í pappír-
inn, en sé blettur í honum, sem
þegar er orðinn vaxborinn, sýgur
hann auðvitað ekki meira í sig,
og sé straujað yfir vaxblett á papp-
írnum verður það frekar til að
breiða blettinn út, eins og reynsla
Karólínu af dagblöðunum styður.
Hvort sem þessi aðferð er notuð
eða önnur, verður auðvitað að
skafa eða mylja það mesta af vax-
inu burt áður. Þau efni, sem not-
Framhald á bls. 41.
Kortahengi
í það fer: 1 herðatré, 3 m. mjótt
silkiband, 3 m. breitt silkiband,
grenigreinar, litlar jólatréskúlur, 9 litlar bjöllur, klemmur, glært límband.
1. Vefjið herðatréð með mjóu, rauðu silkibandi eða lituðu límbandi — einnig
má mála það. 2. Klippið 3 ræmur af breiða bandinu, 1 m. hver, og brjótið
neðri hornin 1 þríhyrning. 3. Saumið bjöllurnar á endana, eða aðrar kúlur til
að endarnir hangi beinir. 4. Saumið endana á þverslána á herðatrénu með jöfnu
millibili (1 í miðju og 2 til enda). 5. Skreytið herðatréð með greni og kúlum
og festið með litlum slaufum. 6. Hengið á vegg og festið kortin með klemmum.
^óladúkur
Þetta er fljótgerður jóladúkur. Efnið er rautt og
kögrið má kaupa tilbúið, en þannig kögur fást
oft. Það er haft hvítt og má auðvitað líka búa það
til úr hvítu garni, úr nælon eða bómull.