Vikan - 23.12.1965, Qupperneq 47
Stjarnan.
Hægt er að gera fallegar stjörnur
og dúka úr málmpappír, sérstak-
lega ef hann fæst gylltur. Allir
kunna að gera dúka með því að
brjóta hring í fernt og klippa
munstur í, en stjarnan, sem hang-
ir 1 glugganum er gerð með því
að búa til 3 — 4 kringlótt stykki
úr pappírnum, klippa upp i miðju
á þeim og fella þau saman í blæ-
væng og síðan líma saman. Ör-
litlar jólatréskúlur eru festar á
þráð og látnar í miðju, en þræð-
irnir svo festir með góðu, glæru
límbandi á bakhliðina, öruggast er
að festa hvern þráð fyrir sig.
Jólatrésskraut úr silkibandi.
Rautt, vel stíft silkiband er notað í þetta skraut. Stífustu böndin eru þau, sem blóma-
búðirnar nota. Þeim er snúið í hringi, og eigi að vera bil milli hvers hrings, eru litlar
perlur festar inn á milli, eins og sjá má á skýringarmyndinni. Jólatréskúlur eru svo
festar neðst á þráðinn, sem böndin eru fest saman með að ofan og mynda hankann
til að festa á tréð.
Omótstæðilegur pakki, hvert svo sem innihaldið er. Fer-
hyrndur pakki í bleikum pappír, rófa, eyru og tunga límt á
úr þykkum, rauðum pappír, og blettir gerðir á bakið úr sama
rauða pappírnum, en fæturnir eru úr bleika pappírnum, sem
er utan um pakkann sjálfan. Milli eyranna eru tvær gylltar
jólatréskúlur bundnar saman með slaufu ásamt tveimur græn-
um blöðum.
Skemmtilegur
jólaórói.
Þessi hangandi
jólasveinn væri
skemmtilegur í
barnaherbergi.
Hann er klipptur
úr pappa og gat
gert fyrir andlit-
ið. Húfan er lituð
rauð með hvítum
kanti, en skeggið
auðvitað haft
hvítt. Augun,
nefið og yfir-
skeggið er svo haft laust, hengt í mjóa þræði á sama hanka
og höfuðið, en þannig breytir jólasveinninn stöðugt um
svip, því að allir hlutarnir eru stöðugt á hreyfingu. Augun
eru bláleitar litlar jólatréskúlur, en nefið aftur úr rauðri
kúlu og hvítt bómullar- eða pappaskegg límt á eða látið
hanga rétt undir nefinu.
Einfalt og jólalegt borðskraut, sem bregða má yfir flösk-
urnar með jólaölinu. Myndin skýrir sig að mestu sjálf.
Búin er til keila úr karton og á hana límdur rauður glans-
pappír og er þá hatturinn kominn. Siðan er andlitið mynd-
að úr sporöskjulöguðum karton og límt innan á hattinn.
Augu og kinnar eru úr glanspappír, en munnur og nef
teiknað. Skeggið og bryddingin neðan á hattinum eru
annaðhvort úr skinnafgöngum eða bómull og fest með
lími. A hatttoppinn er svo loks límdur bómullarhnoðri.
Myndin sýnir hvernig lífga má
upp á einlit hvít jólakerti með
þvi að bræða vax á þau úr kertis-
bútum i þeim litum og formi,
sem smekkur okkar segir til um.
Flöskuskraut.
Jólakcrtin.
Margir vilja hengja jólakortin upp
eða hafa þau til sýnis á einhvern
hátt. Hér er bent á eina leið. Búið
til grænt teppi úr filti eða ein-
hverju öðru efni, stingið bambus-
stöng í gegnum faldinn að ofan,
búið til hanka, sem nær endanna
á milli og hengið upp á vegg. Ef
ekki þykir taka þvi, að festa nagla
aðeins fyrir þetta, má taka eina
mynd niður um jólaleytið og
hengja teppið í hennar stað. Efst
á teppið er svo fest skrautleg
stjarna, er kortunum raðað fyrir
neðan hana þannig að .þau myndi
jólatré. Þau eru fest með örsmá-
um títuprjónum eða glæru lím-
bandi á teppið.