Vikan


Vikan - 05.05.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 05.05.1966, Blaðsíða 32
Ronson RONSON fyrir dömuna RONSON fyrir herrann RONSON fyrir heimilið RONSON KVEIKIRRI er tilvalin tækifærisgjöf WORLD'S CREATEST MOHTERS STJ'ORNUSPfl*^ A# Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú verður að gera þitt til að hjálpa vini þínum um húsnæði. Maður nokkur, sem hefur gert þér erfitt fyrir undanfarið er nú brátt úr sögunni. Vertu ekki of eigingjarn og varastu að vera afbrýðisamur. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Það er óvenjumikið um líf og fjör í kringum þig. Vertu þátttakandi í eins miklum fagnaði og þú get- ur með nokkru móti sinnt. Innan tíðar verðurðu að beita þér öllum við umfangsmikið verkefni. Tvíburamerkið (22. ma( — 21. júní): Visst atvik verður til þess að draga nokkuð úr þér kjarkinn. Þú lendir í nokkuð óvenjulegri aðstöðu sem þú átt erfitt með að átta þig á. Þú gerir kaup á hlutum sem þig hefur lengl dreymt um að eignast. Krabbamerkið- (22. júní — 23. júl(): Þú verður að taka því sem þér býðst vegna tíma- skorts. Ef þú ert allur af vilja gerður þarf aðstaða þín ekki að vera svo afleit. Kunningi þirui gerir þér dálítið erfitt fyrir. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Þú verður að nota alla þfna umgengnishæfileika ef þú átt að geta leiðbeint kunningja þínum án þess að særa hann. Ytri aðstæður verða til þess að seinka áformum þínum um sinn. Méyjarmerkið (24. ógúst — 23. september):- Félagar þínir eru mjög hugulsamir við þig. Líkur eru á að þú farir í nokkuð langt ferðalag. Þú verður fyr- ir óvæntu happi. Kunningi þinn hrífur þig með sér inn í áhugamál sitt. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú ert mjög ánægður með sjálfan þig og sérstaklega með vissar gerðir þínar. Þú ert í góðu jafnvægi en láttu ekki bera of mikið á þínum einkamálum. Ræddu ekki við hvern sem er um vandamál þín. Drekamerkið (24. október - 22. nóvember): Þú nærð góðum árangri við verk sem þú hefur lítið spreytt þig á. Þér hættir til að hafa heldur hátt, en það er mjög óheppilegt eins og stendur. Þú skemmt- ir þér vel í vinahópi. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú verður var við orðróm sem kemur þér mjög ó- vænt, en það er í þínu valdi að draga úr honum. Þú kemst yfir hlut sem þú hefur lengi haft auga- stað á. Gakktu hægt um gleðinnar dyr. Steingeitarmerjoð (22. desember - 20. janúar): Þú átt í fjárhagslegum erfiðleikum og neyðist til að gera hluti sem þér eru ógeðfelldir. Þú verður að skipuleggja upp á ný vasapeningana þína og aðrar fjárreiður. Vertu ekki mikið að heiman. Vatnsberamerkið (21. janúar - 19 febrúar): Þú veröur í samkvæmi með góðum gestum. Vinur þinn veldur þér vonbrigðum með fyrirætlunum sín- um. Nú er rétti tíminn til að gera hverskonar samn- inga og taka bindandi ákvarðanir. Fiskamerkið (20. febrúar - 20 marz): Þú ert mjög á báðum áttum í vissum viðskiptum. Þú verður að leggja talsvert að þér ef þú ætlar að ná betri árangri. Kunningjar þínir eru mjög ósam- mála og sundurlyndir eins og stendur. 22 VIKAN 18. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.