Vikan - 05.05.1966, Blaðsíða 25
Lengst til vinstri:
Gunnlaugur hefur oft
orðið markhæsti mað-
ur Islandsmótsins í 1.
deild. Hér afhendir
Ásbjörn á Álafossi
honum blómvönd fró
„óþekktum a'ðdá-
anda".
Þetta augnablik var
stórt fyrir Gunnlaug,
því hér heldur hann á
Reykjavíkurstyttunni,
en í vetur vann hann
sitt fyrsta mót í meist-
araflokki.
omm
Myndin aS neðan:
Gunnlaugur og fjöl-
skyldan, Andrés litli 5
ára, Hulda 7 ára
og Guðný Andrésdótt-
ir eiginkona Gunn-
laugs.
handknattleiksmanna okkar og fólkið á áhorfendapöllunum kann vel að
meta kraft hans og ákveðni. Hann kann á fólkinu lagið og gerir brellur,
sem það kann að meta. En íþróttafólkið, — og þá sérstaklega mótherj-
arnir, álasa Gunnlaugi oft fyrir þetta, einkum það að herma eftir dóm-
urum og annað [ þeim dúr. Dagblöðin hafa fundið að, en strákurinn
Tumi hefur hingað til ekki getað setið á sér, þrátt fyrir það. Það er líka
engu líkara en að Gunnlaugur hafi ekki vott af minnimáttarkennd gagn-
vart andstæðingum stnum, síður en svo. Þetta er reyndar mikill eiginleiki
í íþróttum og það er e.t.v. þessu að þakka hve langt Gunnlaugur hefur
komizt. Það er þetta, sem getur snúið töpuðum leik upp í vinning, eins
og oft hefur komið í ijós.
Og hver er svo þessi Gunnlaugur, spyr e.t.v. margur.
Gunnlaugur Hjálmarsson er 27 ára gamall trésmiður, starfar hjá Bygg-
ingafélaginu Brú. Eitt kvöldið fyrir skömmu fór ég í heimsókn til Gunn-
laugs og fjölskyldu hans til að kynnast eilítið betur þessum skemmtilega
íþróttamanni.
Gunnlaugur er að eðlisfari ákaflega kátur og léttur og á vinnustað
og með félögum sínum er hann alltaf sá maðurinn sem mest kveður að.
[ leik getur Gunnlaugur þó orðið reiður, þegar illa er farið að honum og
þá getur hann orðið heldur erfiður viðfangs.
Það þætti heldur léleg frásögn af manni hér á (slandi að ættfæra hann
ekki nokkuð. í föðurætt er hann kominn af þeirri kunnu reykvísku ætt,
sem oft hefur verið kennd við Hólakot, en það var á sínum tíma vestur
á Sólvöllum þar sem gamli kirkjugarðurinn er. Guðmundur afi hans var
mesti kjarnakarl og kunnugir segja að í Gunnlaugi sé að finna heilmik-
ið af krafti gamla mannsins. Guðmundur [ Hólakoti átti 12 börn, 9 syni
og 3 dætur. Ættin er því orðin anzt stór, og margir af þessari ætt hafa
náð langt í íþróttum, og þá einkanlega í handknattleik.
Gunnlaugur ólst upp í austurhverfum borgarinnar. Hann var baldinn
strákur, stór og sterkur eftir aldri, ósvífinn og jafnvel hrekkjóttur. Hann
BQBt n •
VIKAN 18. tbl. 25