Vikan - 01.12.1966, Blaðsíða 29
Nýlega var haldin hér iðn-
sýning meS pomp og pragt
og mikilli auglýsingu. Fyr-
irferSarminni en athyglis-
verS þó var sýning á ís-
lenzkum heimilisiðnaði í
húsnæði Rammagerðar-
innar í Hafnarstræti.
Vikan hefur hitt að máli
18 konur og menn, sem þátt
áttu í þessari sýningu.
Fantasíur
SÓLVEIG EGGERZ PÉTURS-
DÓTTIR er kunn listakona og mál-
verk hennar á rekavið eiga að
sjálfsögðu ekkert skylt við iðnað
eða listiðnað. Samt var hún með
á þessari heimilisiðnaðarsýningu í
Rammagerðinni og sýndi þar
nokkrar fantasíur, málaðar á reka-
við, sem hún hefur fundið á fjör-
um, einkum á Hornströndum og í
Grindavík. Hún notfærir sér það
form, sem fyrir er í viðnum, svo
sem æðar og kvisti, en teiknar
allskonar fígúrur og þetta hefur
svo aftur á móti haft mikil áhrif
á það sem hún málar á léreft. Þar
koma fyrir samskonar fígúrur og
hún hefur fundið í viðnum. Hún
málar á viðinn með daufum olíu-
lit og sterkum, svörtum útlínum.
Hún skírir allar sínar myndir og
kveðst alltaf vera að segja frá ein-
hverju. Solveig hefur áður sýnt
myndir málaðar á við og t.d. hefur
hún sýnt þær í Færeyjum, þar
sem henni var mjög vel tekið.
Lanosiöl
Mógkcnurnar ANNA BETÚELSDÓTTIR, Rauðalæk
37 og HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR, Hlíðarvegi 36,
eru vel heima í gamalli, íslenzkri prjónleshefð. Þær
höfðu á sýningunni handprjónuð langsjöl, sem mik-
ið dáindi var á að líta. Þessi sjöl prjóna þær úr ís-
lenzku eingirni og í sauðalitunum. Þær eru báðar
húsmæður og prjónaskapurinn er tómstundavinna
þcirra. Það var tengdamóðir Önnu, sem kenndi
henni kúnstina og hún hafði lært hana 1 æsku. Það
er eins með sjölin og herðaslárnar, að ferðamenn
kaupa mest og það selst mest á sumrin. Þær Anna
og Helga sögðu annan prjónaskap og saumaskap
verða að sitja á hakanum vegna þessarar fram-
leiðslu.
Peysnr
Þær prjóna peysur, litlar
peysur, stórar peysur, slétt-
ar peysur. útprjónaðar
peysur, jakkapeysur, karl-
mannapeysur: VALDÍS
GUÐMUNDSDÓTTIR, Njáls-
götu 55, HUGBORG HJART-
ARDÓTTIR, Skaftahlíð 4,
GUÐNÝ GUÐNADÓTTIR,
Grettisgötu 90 og GUÐRÚN
HJARTARDÓTTIR, Skafta-
hlíð 6. Prjónaskapurinn er
heimilisiðja og aukavinna
jafnframt húsmóðurstörf-
um hjá þeim flestum. Guð-
rún vinnur þó mest við
prjónaskapinn yfir vetur-
inn. Allar hafa þær prjón-
að fleiri hundruð peysur,
kannski þúsund. Valdís og
Guðrún prjóna eingöngu
jakkapeysur.
Smelti
BÁRÐUR JÓHANKESSON, Skeggjagötu 19, er
guílsmiSur og rekur gull- og silfursmíSa-
verkstæSi. En jafnframt þeirri vinnu, bræSir
hann 6 mólma eSa emalerar; þaS hefur ver-
iS nefnt smelti ó islenzku. Á heimilisiSnaSar-
sýningunni sýndi BárSur nokkrar skálar úr
málmi, sem hann hefur smellt. Hann stundar
smeltiS bæSi á gullsmíSaverkstæSinu svo og
heima hjá sér og bræSir á gull, silfur og eir,
mest skálar, öskubakka og skartgripi. Hann
teiknar mynztrin á grunninn, hver sem hann
er, en oftast er hluturinn handsleginn. BárS-
ur er búinn aS fást viS þetta í 15 ár. Hann
lærSi smelti á sínu tíma á sumarnámskeiSi í
Þýzkalandi.