Vikan - 01.12.1966, Side 36
Ronson
Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F.
/
Reykjavík
Lóðar % losar ryðgaða
bolta og rær * hreinsar
og þurrkar rafkerti *
losar málningu af við-
kvæmum flötum # þíðir
frosnar vatnsleiðslur &
nothæfur sem suðutæki
% og hentar við óteljandi
fleiri verk.
Just the limited flame you need th6 pérfoct Way of heating up
to strip window frames of paint I ^ thermoplastic tiles when fixing
them to floors or walls.
Play a little heat opjrozen water ... it lies down to give a 'Bunsen
pipes, you'll have them thawed burnor* effect for many labora-.
in no time. . tory uses.
Stillanlegur logi fyrir
hvaða verk sem er.
STJti RNÖSPÁ*^
% Hrútsmerkið (21. marz — 20. apr(l): Þér býðst freistandi boð, ef þú hefur minnsta grun um vangetu þína, þá skaltu ekki gefa samþykki þitt. Þú framkvæmir eitthvað, sem veitir þér and- lega fullnægju. Skemmtu þér sem minnst.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Mörg vandamál bíða þín í vikunni og mun þér ganga misjafnlega að leysa úr þeim, láttu ekki á þig fá smá mistök þú mátt ekki vera að ergja þig yfir smá- munum. Þú skemmtir þér konunglega um helgina.
ff Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú kynnist einkennilegri persónu, sem þú gætir lært mikið af, ef þú hefur næga þolinmæði. Þér mistekst eitthvað sem þú hafðir hlakkað til að framkvæma. Láttu það ekki skyggja á skemmtun laugardagsins.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júl(): Þú hefur ekki efnt loforð þín og gæti orðið erfltt fyrir þig að losna úr klipunni. Þú getur gert góða verzlun, en farðu samt varlega með peninga, það verður lögð fyrir þig gildra.
§sr Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst); Þú ferð í ferðalag, ekki langt. en ógleymanlegt, um nýjar slóðir. Þú hrífst að einhverju sem þú lest eða heyrir, og átt eftir að kynna þér það betur. Lang- bezti dagur vikunnar er þriðjudagurinn.
kpi Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Þú hefur giftusamlega lokið af verkefni sem hefur legið þungt á þér alla síðustu viku. Þú tekur til starfa við léttari verk og hvilir þig. Það verður ekki margt um að vera, en þó færðu sérstætt símtal.
Vogarmerkið (24. september — 23. október): Vikan verður mjög jákvæð, og gætirðu þessvegna búið í haginn fyrir þig. Vertu iðinn og vakandi við hvaðeina sem þú fæst við. Kunningi kunningja þíns sýnir þér áhuga.
Drekamérkið (24. október — 22. nóvember): Þú fæst við verkefni sem þér finnst mjög athyglis- vert og nýtur þess að vera við það. Þú sýnir fjöl- skyldu þinni of lítinn áhuga og skalt hið bráðasta gera bót og betrun.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú ert ekki í góðu jafnvægi og sennilega talarðu af þér. Reyndu að hafa sem minnst fyrir lífinu og skemmtu þér í hófi. Dveldu sem mest heima hjá þér og slakaðu á spenntum taugum.
& Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Láttu ekki tilfinningasemi eyðileggja allt fyrir þér, smá mistök verða að engu ef maður er rétt stemmd- ur. Þú hefur vanrækt skyldustarf þitt en það kem- ur verst niður á sjálfum þér.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú ættir að hvíla þig og sjá hvað tíminn færir þér. Eitthvað leyndardómsfullt er á seyði. Það er mikill grundvöllur fyrir rómantík flest kvöld vikunnar. Vertu ekki mikið á ferli útivið eftir miðnættið.
tkk- Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Allt sem þú gerir er fremur tilviljanakennt og illa skipulagt. Þú hefur ekki mikla ánægju að því sem þú ert að gera. Fyrir tilviljun vekurðu athygli á þér. Heillatala er sjö.
36 VIKAN
48. tbl.